Morgunblaðið - 12.07.2013, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 12.07.2013, Qupperneq 40
Rokksumarbúðarverkefninu Stelpur rokka! lýkur með lokatónleikum í húsnæði TÞM að Hólmaslóð 2 í dag kl. 17. Á tónleikunum munu átta hljómsveitir flytja frumsamin lög sem eru afrakstur mánaðarlangra rokksumarbúða fyrir stelpur á aldr- inum 12 til 16 ára. Í rokkbúðunum var boðið upp á hljóðfærakennslu, hljómsveitaæf- ingar, vinnusmiðjur um ýmis þemu tengd konum og tónlist auk tónleika- heimsókna frá frægum íslenskum tónlistarkonum. Stelpur rokka! er styrkt af Hlaðvarpanum - menning- arsjóði kvenna, Kraumi tónlistarsjóð og Menningarráði Akureyrar. Rokk Hver veit nema þátttakendur eigi síðar eftir að taka þátt í Músíktilraunum. Stelpur rokka á lokatónleikum Glæsilegt Bolshoi-leikhúsið er tignarlegt en órói innan dyra. Öldur hefur ekki lægt í Bolshoi-ballettinum sögufræga í Moskvu, eftir sýruárásina sem listrænn stjórnandi hans varð fyrir í vetur að undirlagi dansara í hópnum. Á þriðjudag tilkynntu menningaryfirvöld í Rússlandi óvænt að skipt yrði um forstjóra Bolshoi-leikhússins og er ætlunin að reyna að ná tökum á ófremdarástandi ill- deilna og undirróðurs sem mun hafa ríkt innan veggja. Að sögn The New York Times sat forstjóri hússins til þrettán ára þungbúinn á blaðamannafundi þar sem til- kynnt var um stjóraskiptin. Við af honum tekur Vlad- imir Urin, sem hefur verið hrósað fyrir að byggja upp næstvirtasta leikhús borgarinnar. Innanbúðarmenn segja hann eiga erfitt verk fyrir höndum í Bolshoi. Skipt um stjórnanda Bolshoi Dramatískri sögu miðlað í einleik Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Kaldalónshátíð verður haldin í fyrsta sinn í Dalbæ á Snæfjallaströnd sunnudaginn 14. júlí, en hátíðin er eins og nafnið gefur til kynna helguð tónskáldinu og lækninum Sigvalda Kaldalóns. Dag- skráin hefst kl. 18 með sýningu Kómedíuleik- hússins á einleik um tónskáldið, sem frumsýndur var á Ísafirði fyrr á þessu ári. Að sýningu lokinni fer fram sögu- stund um ár Kaldalóns við Djúpið og því næst verða Viðar Guð- mundsson og Snorri Hjálmarsson með tónleika þar sem þeir flytja nokkrar af helstu perlum tónskálds- ins. „Það er tilvalið að mæta snemma og njóta náttúrunnar á svæðinu,“ segir Elfar Logi Hannesson, leikari og forsprakki Kómedíuleikhússins, um leið og hann fagnar frumkvæði ábúenda í Dalbæ sem áttu hugmynd- ina að Kaldalónshátíðinni. Aðspurður um einleik sinn um tónskáldið segir hann um dramatíska sögu að ræða. „Sigvaldi Kaldalóns átti litríka ævi. Hann tók við læknisembætti í einu afskekktasta og víðfeðmasta lækn- ishéraði landsins, Nauteyrarhéraði, árið 1910. Hann bjó og starfaði í Djúpinu í ein ellefu ár, en varð frá að hverfa þegar hann fékk berkla. Hann leitaði sér lækningar á berklaspítala í Danmörku og þar læt ég verkið ger- ast,“ segir Elfar Logi sem bregður sér í hlutverk tónskáldsins í ein- leiknum sem hann samdi sjálfur. Hann fílaði fólkið „Djúpið hafði gríðarleg áhrif á Kaldalón, bæði náttúran og Djúp- menn. Hann fílaði fólkið og sveitung- arnir fíluðu hann líka. Hann var inn- blásinn af náttúrunni og segir sjálfur að þarna hafi hann komist á skrið sem listamaður,“ segir Elfar Logi og bendir á að þau ellefu ár sem Sig- valdi Kaldalóns bjó í Djúpinu hafi hann, þrátt fyrir mikið annríki sem læknir, samt samið um hundrað lög. „Þeirra á meðal eru mörg hans kunn- ustu verka, s.s. „Ég lít í anda liðna tíð“, „Hamraborgin“, „Þú eina hjart- ans yndið mitt“ og „Sofðu góði sofðu“. Í Djúpinu kynntist hann líka Höllu skáldkonu, sem bjó á næsta bæ við hann, og samdi allmörg lög við ljóð hennar,“ segir Elfar Logi og tek- ur fram að helstu perlur tónskáldsins séu fluttar í sýningunni, en Dagný Arnalds sér um píanóundirleik. Þess má að lokum geta að miðaverð á há- tíðina er 2.900 krónur og eru miðar seldir við innganginn. Fjölhæfur Tónskáldið og læknirinn Sigvaldi Kaldalóns átti litríka ævi.  Kaldalónshátíð haldin á sunnudag Elfar Logi Hannesson 40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013 fi p y j g p Carpaccio með valhnetu-vinaigrette og klettasalati Grafið lam með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté með paprik mauki Bruchetta með tvíreyk hangikjöti, bal- samrauðla og piparrótarsósu Bruchet ta með hráskinku, balsam grill uðu Miðjarðar- hafsgrænm K r a b b a - salat f skum kryddjurtum í brauðbo B r u c h e t t a með Mi jarðarhafs-tapende R i s a rækja á spjóti með peppadew Silunga hrogn með japönsku majón sinnepsrjóma-osti á bruchettuBirkireykt-ur lax á bruchettu með alio grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar, 3 smáar á spjóti m/kryddju taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum Vanillufy tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum Kjúklingu satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is MöndluMix og KasjúKurl er ómissandi í ferðalagið. Útá salatið og við grillið í sumar. Hollt og gott frá Yndisauka. Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum, Melabúðinni, Fjarðarkaup, Miðbúðinni, Kjöthöllinni, Hreyfingu, Garðheimum, Mosfellsbakaríi og Bakaríinu við brúna Akureyri. Hvernig sýnum við bestannarri manneskju aðokkur þykir vænt umhana? Og hvort vegur þyngra, orð eða gjörðir? Þetta eru lykilspurningar í sænsku met- sölubókinni Maður sem heitir Ove eftir Fredrik Backman. Þegar bókin hefst er ljóst að titilpersónan telur sig hafa lítið til að lifa fyrir. Ove er 59 ára gamall, hefur ný- lega misst vinnuna, heilsan er farin að bila og fáir vinir eft- ir til að deila með gleði og sorgum. Tilveru hans er raskað svo um munar þegar inn í næsta hús flytur fjögurra manna fjöl- skylda frá Íran, en fyrstu kynni hans af nýju nágrönnunum felast í því að fjölskyldufaðirinn bakkar yfir blóma- beð Ove og á bréfalúgu hans. Við fyrstu sýn virðist Ove ekki sér- lega geðfelldur náungi. Hann stundar það að uppnefna nágranna sína í rað- húsahverfinu með orðum eins og „ljóskusnoppa“ og „lufsukrangi“, er sérlega geðstirður í samskiptum sín- um við annað fólk og svo mikill prin- sippmaður að hann fylgir settum reglum út í ystu æsar samferðarfólki sínu til lítillar ánægju. Með þrjósku sinni og þumbarahætti hefur hann t.d. glatað fyrri vinskap við hjónin Rune og Anitu sem verið hafa ná- grannar hans sl. fjóra áratugi. Engu að síður er eitthvað heillandi við þennan skrýtna, miðaldra karl, sem lítur á það sem eitt mesta hrós að segja um aðra manneskju að hún sé „ekki fullkominn hálfviti“ (bls. 270). Eftir fyrstu kynningu á Ove fer höfundur fljótlega að rifja upp æsku hans og ævi. Þannig er til skiptis flakkað í köflum bókarinnar milli nú- tíðar og fortíðar svo að lesandinn fær smám saman innsýn í og skilning á gjörðum hans og persónuleika. Aug- ljóst er að höfundur hefur mikla sam- úð með söguhetju sinni og miðlar þeirri samkennd með fallegum hætti og því er ekki hægt annað en að standa með Ove í baráttu hans við til dæmis „mennina í hvítu skyrtunum“, eins og hann kýs að kalla opinbert starfsfólk sem er jafn ósveigjanlegt og hann sjálfur þegar kemur að reglugerðarverkinu. Ekki má gefa of mikið upp um söguþráð bókarinnar til að skemma ekki fyrir væntanlegum lesendum, því einn helsti kostur bókarinnar felst í því hversu listilega vel uppbyggð hún er og full af óvæntum augnablik- um. Þannig er lesandinn sífellt að fá upp í hendurnar fleiri púsluspil sem mynda loks heildarmyndina. Óhætt er að segja að bókin sé grátbrosleg, því hún framkallar jafnt hlátur og tár. Hún lumar einnig á sérlega hugljúfri ástarsögu. Þetta er því sannkallaður yndislestur, þó bókin dansi vissulega alloft á mörkum þess melódrama- tíska. Þýðing Jóns Daníelssonar er heilt á litið vönduð og vel úr garði gerð. Sökum þessa stakk nokkuð í stúf að rekast á setninguna „Eigðu góðan dag“ (bls. 161) sem getur varla talist falleg íslenska þó setningin heyrist víða nú til dags. Kápa bókarinnar er einstaklega skemmtilega hönnuð og vel útfærð hjá Nils Olsson, enda upp- full af áhugaverðum smáatriðum sem gaman er að rýna í eftir því sem lestri bókar vindur fram. Ekki fullkominn hálfviti Skáldsaga Maður sem heitir Ove bbbbn Eftir Fredrik Backman. Jón Daníelsson þýddi. Kilja, 383 bls. Veröld 2013. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR BÆKUR Flinkur „Einn helsti kostur bókarinnar felst í því hversu listilega vel upp- byggð hún er,“ segir m.a. í umsögn um nýjustu bók Fredriks Backman.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.