Morgunblaðið - 25.07.2013, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Eldhús- og skolvaskar
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Vestmannaeyjum
Bol-834 80x48x18cm þykkt 0,8mm
11.990,-
Bol-604 48x43x18cm
Þykkt stáls 0,8mm
7.490,-
(fleiri stærðir til)
Gua 539-1 með veggstál-
plötu, grind fylgir, 1mm stál
16.990,- Botnventill og
vatnslásar fylgja
öllum vöskum
CR Plast skolvaskur
55x34x21cm með botn-
ventli og vatnslás
6.990,-
Gua-543-1 vegghengdur,
1mm stál, einnig fáanlegur
í borð kr. 17.990
19.900,-
Mikið úrval af
blöndunartækjum.
Á MÚRBÚÐARVERÐI
SVIÐSLJÓS
Árni Grétar Finnsson
agf@mbl.is
„Loksins, loksins!“ hafa flestir íbúar
höfuðborgarsvæðisins eflaust hugs-
að eftir svo gott sem sólarlaust sum-
ar. Hinsvegar virðist biðin eftir blíð-
unni vera á enda, í bili, og ekki ber á
öðru en að fólk taki sólskininu fagn-
andi.
„Þetta er fjölmennasti dagur sum-
arsins hjá okkur og veðrið er frá-
bært,“ segir Herdís Kristjánsdóttir,
starfsmaður ylstrandarinnar í Naut-
hólsvíkur. Hún segir að gærdag-
urinn hafi verið betri en dagurinn
þar á undan, enda hafi verið heitara í
veðri. Þessir tveir dagar hafi verið
þeir bestu í sumar á ströndinni, en
hún sagði hitann líklega hafa verið
yfir 20 stigum.
Mörg hundruð í sólbaði
Herdís segir að beðið hafi verið
eftir sólardögum með mikilli eftir-
væntingu og bætir við að í gær hafi
mörg hundruð manns verið í Naut-
hólsvík. „Það voru mjög margir
hérna, líklega nokkur hundruð,“ seg-
ir Herdís. „Ströndin var þétt setin en
þetta er svo stórt svæði og fólk situr
einnig á grasbölunum hér í kring.“
Þegar blaðamann bar að garði
skömmu eftir hádegi í gær var um 15
metra röð þyrstra og svangra
strandgesta í veitingasöluna. „Við
seljum grillaðar pylsur, samlokur og
smákökur, en fólk getur einnig mætt
með sínar eigin pylsur. Þetta gengur
alveg rosalega vel en mest fer af gos-
inu og ísnum. Á svona degi streymir
ísinn út úr sjoppunni!“
Alltaf einhver umferð
Herdís segir að gestir mæti á
ströndina við minnstu sólarglætu og
því sé yfirleitt eitthvað að gera allt
sumarið þó umferðin hægist þegar
grátt er yfir. „Svo mætir mikið af
fólki reglulega í sjósund, og það eru
alltaf jafn duglegt, sama hvernig
viðrar.“
Loksins sól og sumarylur
Blíðskaparveður hefur verið á Norður- og Austurlandi Síðan skein sól á höfuðborgarsvæðinu
Í gær var fjölmennasti dagur sumarsins í Nauthólsvík Búist við miklum mannfjölda næstu daga
Morgunblaðið/Rósa Braga
Fjölmenni Mörg hundruð manns fögnuðu veðurblíðunni og sóluðu sig á ylströndinni í Nauthólsvík í gær, en dagurinn var sá fjölmennasti í allt sumar.
Sólskin Gunnhildur Sveinbjarnardóttir hefur beðið lengi eftir sólinni. Hún
ætlar samt að skella sér til Berlínar í næstu viku og njóta hitans þar.
Bolti Þeir Vignir Daði Valtýsson, Andri Már Eggertsson og Lansana Ban-
goura sýndu lipra takta í sandinum og voru ánægðir með sumarfríið.
Eftir ítarlega skoðun á málinu hefur Fjár-
málaeftirlitið ákveðið að endurgreiða þeim
22 lánastofnunum sem greiddu umframeft-
irlitsgjald vegna vinnu við greiningar á
áhrifum gengistryggðra lána á stöðu við-
skiptabanka, sparisjóða og lánafyrirtækja,
í kjölfar dóma Hæstaréttar frá 16. júní
2010 í málum nr. 153/2010 og 92/2010. Í
fréttatilkynningu sem Fjármálaeftirlitið
birti á vefsíðu sinni í fyrradag segir að
þetta sé gert með hliðsjón af áliti umboðs-
manns Alþingis frá því í vor þess efnis að
Fjármálaeftirlitið þurfi að endurgreiða
rúmlega 40 milljónir vegna eftirlitsgjalda
sem það lagði á fyrrnefnd fyrirtæki án
heimildar.
Samkvæmt upplýsingum frá Fjármála-
eftirlitinu stendur til að endurgreiða sem
fyrst eftir að búið er að reikna þetta út og
ganga frá nokkrum formsatriðum. Þá
munu endurgreiðslurnar bera með sér
vexti en þó ekki dráttarvexti heldur seðla-
bankavexti. skulih@mbl.is
Fjármálaeftirlitið endur-
greiðir 22 lánastofnunum
Endurgreiðslurnar nema rúmum 40 milljónum króna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Endurgreiðslur Fjármálaeftirlitið ætlar að endurgreiða umfram-
eftirlitsgjaldið sem fyrst en umrætt gjald var lagt á án heimildar.
Skannaðu kóð-
ann til að horfa
á myndband frá
Nauthólsvík.