Morgunblaðið - 25.07.2013, Qupperneq 10
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Tjarnargatan er framleiðslu-fyrirtæki og við höfum ver-ið að einbeita okkur aðsamfélagsmiðlum og
óhefðbundnum auglýsingum. Við
höfum verið að benda fyrirtækjum á
mikilvægi þess að nota samfélags-
miðla og jafnvel færa mikið af birt-
ingum úr þessum hefðbundnu miðl-
um sem við höfum hingað til nýtt
yfir í samfélagsmiðlana og á verald-
arvefinn,“ segir Arnar Helgi Hlyns-
son, einn forsprakka fyrirtækisins
Tjarnargötunnar sem getið hefur
sér góðs orðs á hinum ýmsu sam-
félagsmiðlum upp á síðkastið.
Hugsað út fyrir rammann
„Við höfum verið í samstarfi
með fyrirtækjum, til að mynda aug-
lýsingastofum, og verið að vinna
allskonar hugmyndavinnu. Mikið af
þessu gengur út á að hugsa aðeins út
fyrir rammann og kreista fram meiri
eftirtekt en gengur og gerist. Það
sem okkur finnst mikilvægast af öllu
er þegar þú færð fólk til að deila
auglýsingu án þess að því sé gefið
eitthvað á móti. Þegar aðeins voru
liðnar átta klukkustundir frá því að
auglýsingunni með Umferðarstofu
og Símanum var hleypt í loftið, þá
var til dæmis búið að deila henni ell-
efu þúsund sinnum,“ segir Arnar
Helgi, en hann segir mikla vinnu
hafa farið í umrædda auglýsingu.
„Við teljum okkur vera framar-
lega í því sem er nýtt á markaði og
við höfum verið að horfa mikið út í
heim og fylgjast með því hvað er að
gerast þar. Við nýtum okkur líka
nýjustu tækni til þess að skara svo-
lítið fram úr með okkar verkefni. Við
erum því að reyna að bjóða okkar
viðskiptarvinum nýjungar, þá einna
helst á veraldarvefnum,“ segir hann.
Listin að ná til áhorfandans
„Þessi hugmynd er búin að vera
í kollinum á okkur í eitt og hálft ár.
Við vorum bara ekki vissir um hvort
það væri hægt að framkvæma þetta,
þetta hefur aldrei verið gert áður í
heiminum. Þegar Umferðarstofa
kom til okkar í fyrstu þá vildu þau
gera eitthvað sem vakti athygli. Við
lögðum upp með að nýta nokkuð
mörg tengsl við áhorfendur auglýs-
ingarinnar, til dæmis fésbókina,
smáskilaboðin og símann og per-
sónugera hana þannig. Um leið og
þú horfir á eitthvað sem tengist þér
persónulega, eins og aðalpersónan í
viðkomandi auglýsingu á að kalla
fram, þá verður það miklu áhrifa-
ríkara. Við vorum ekki vissir um að
tæknin myndi bjóða upp á þetta og
það fór mikil vinna í þetta allt sam-
an. Síðasta hálfa árið hefur farið í að
vinna rosalega náið með Umferð-
arstofu og Símanum til þess að láta
þetta gerast,“ segir Arnar Helgi.
„Við höfum svolítið oft hellt
okkur út í djúpu laugina með alls-
konar hugmyndir sem við höfum
fengið, jafnvel fáránlegar hug-
myndir. Við reynum þó alltaf að at-
huga hvort að það sé grundvöllur
fyrir þeim og það er sama með þessa
hugmynd. Það er langt síðan við
fengum hana og við tókum langan
tíma í það að ganga úr skugga um að
þetta myndi ganga upp. Ég held að
það sé líka þetta sem skilar árangri,
ef þú gerir ekki eitthvað nýtt þá
nærðu ekki árangri,“ segir hann.
Gat í markaðnum
„Fyrirtækið hefur verið starf-
rækt frá því í lok árs 2011. Við erum
tíu sem erum fastir starfsmenn en
við styðjumst mikið við utanaðkom-
andi fólk sem kemur inn í allskonar
verkefni með okkur. Ég og meðeig-
andi minn, Einar Benedikt Sigurðs-
son, vorum báðir að læra markaðs-
fræði í London. Við leigðum síðan
báðir á Tjarnargötunni og þekkt-
umst þá voða lítið. Við sáum gat í
markaðnum fyrir hluti sem við gef-
um okkur út fyrir að vera að gera í
dag. Það var skortur á því að fara
óhefðbundnar leiðir í markaðs-
aðgerðum og við riðum á vaðið. Út
frá þessu varð til þetta framleiðslu-
fyrirtæki og við tökum í raun að okk-
ur að framleiða allt þrátt fyrir að við
séum svolítið að einblína á verald-
arvefinn og allt sem hann býður upp
á,“ segir Arnar Helgi um upphaf fyr-
irtækisins.
„Við erum líka mikið að vinna í
grafík og þrívíddarvinnslu. Við erum
með samstarfssamning, sem við er-
um stoltir að segja frá, við Höfuð-
borgarstofu. Þar sjáum við til dæmis
um gagnaöflun á öllum viðburðum á
vegum Reykjavíkurborgar og sjáum
um að halda utan um myndbands-
upptökur og fleira. Við erum í raun í
öllu, við reynum bara að finna lausn-
ir á því sem viðskiptavinir okkar leit-
ast eftir,“ segir hann.
Óreyndir fá tækifæri
Spurningar hafa vaknað á hin-
um ýmsu samskiptasíðum verald-
arvefsins eftir síðasta verkefni fyr-
irtækisins þar sem auglýsingin fór
fram á að áhorfandinn gæfi af hendi
ákveðnar upplýsingar, til dæmis
símanúmer sitt. Arnar Helgi segir
fólk ekki þurfa að örvænta.
„Það sem þarf kannski að taka
Fyrirtækið Tjarnargatan hefur skapað sér nafn sem eitt frumlegasta framleiðslu-
fyrirtæki landsins og má sjá verk þess víða. Arnar Helgi Hlynsson, einn forsprakka
fyrirtækisins, segir galdurinn meðal annars vera að hugsa út fyrir rammann.
Fyrirtæki Tíu starfsmenn eru fastráðnir hjá Tjarnargötunni auk þess sem fleiri koma inn í einstaka verkefni.
Forvörn Nýtt verkefni Tjarnargötunnar hefur vakið mikla athygli.
Hugmynd, fram-
kvæmd og framleiðsla
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013
Um miðjan júlí var haldið námskeið í
fýsísku leikhúsi í Frystiklefanum á
Rifi, en það var Hrefna Lind Halldórs-
dóttir, sem er nú að klára masters-
nám í sviðslistum í Naropa háskól-
anum í Colorado, sem stóð fyrir því.
Námskeiðið, sem bar heitið Kviksyndi
drauma þinna, var einstaklega vel
heppnað, að sögn Hrefnu töfrum lík-
ast.
Hrefna heldur úti vefsíðunni fire-
andicetheatre.org ásamt Gloriu Bar-
aquio þar sem hægt er að kynnast
starfi þeirra tveggja nánar. Þar má
finna allar helstu upplýsingar um
vinnusmiðjur og námskeið þeirra auk
þess sem þar er hægt að finna ljós-
myndir. Hrefna stendur fyrir sams-
konar námskeiði á Havaí í janúar en
samkvæmt henni verður andrúms-
loftið ekki síðra þar en á Rifi.
Vefsíðan www.fireandicetheatre.org
Leikhús Svipað námskeið og það sem haldið var á Rifi verður haldið á Havaí.
Fýsískt námskeið á Havaí
Á laugardaginn verður efnt til Druslu-
göngunnar svokölluðu en yfirlýst
markmið hennar er að uppræta þá
fordóma sem endurspeglast í áherslu
á klæðaburð og ástand brotaþola í
umræðu um kynferðisofbeldi. Þannig
vilja skipuleggjendur göngunnar vekja
athygli á því að það eru gerendur sem
bera ábyrgð á kynferðisofbeldi, ekki
þolendurnir. Í Reykjavík verður gengið
frá Hallgrímskirkju klukkan 14 og mun
gangan enda á Austurvelli þar sem
fundarhöld og tónleikar taka við. Á
Akureyri verður gengið frá Akureyrar-
kirkju á sama tíma og í Vestmanna-
eyjum hefst gangan í Herjólfsdal,
einnig klukkan 14.
Endilega...
... farið í
Druslugönguna
Morgunblaðið/Ernir
Ganga Fólk lætur sig málefnið varða.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM
GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST.
MARKMIÐ
FULLKOMIÐ HÁR
SÉRSTAKAR ÞARFIR
EINFALDAR LAUSNIR
Spurðu hárgreiðslumeistara þinn hvernig þú getur
notað REDKEN-hárvörur til að nálgast hið fullkomna hár.
KEYPTU 2, 1 FRÍTT
REDKEN
hárgreiðslustofur:
REDKEN Iceland á
Dreifing:
Hár ehf - s. 568 8305
har@har.is
Keyptu tvær REDKEN-hárvörur í dag og þú færð
REDKEN-sjampó frítt.