Morgunblaðið - 25.07.2013, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013
Nokkrir vís-
indamenn innan
bandarísku
geimvís-
indastofnunar-
innar NASA
rannsaka nú
hvort mögulegt
sé að ferðast
hraðar en ljósið
með því að búa til
vörpudrif eins og
m.a. er notað í Star Trek-þáttaröð-
unum. Það gæti í kenningunni stytt
ferðatíma í geimnum úr tugum þús-
unda ára í vikur eða mánuði.
Harold G. White, eðlisfræðingur
og vélaverkfræðingur, fer fyrir
litlum hópi starfsmanna NASA sem
kanna hvort hægt sé að verpa ferli
ljóseindar til að breyta vegalengd-
inni sem hún ferðast.
Lögmál Einsteins segir að ekkert
geti ferðast hraðar en ljósið en síð-
an hafa komið upp kenningar um
að hægt sé að eiga við tímarúmið
sjálft til þess að fleyta hlut áfram í
gegnum geiminn. White reynir nú
að sannreyna á örsmáum skala
hvort það sé hægt. Praktísk not eru
þó fjarlægur draumur. „Við erum
ekki að fara að smella þessu á geim-
far,“ segir White.
Skoða hvort vörpu-
drif sé raunhæft
VÍSINDI
Drifið gæti opnað
mönnum geiminn.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Bandaríski uppljóstrarinn Edward
Snowden situr enn sem fastast á við-
komusvæði Sheremetyevo-flugvall-
ar í Moskvu en vonir höfðu vaknað í
gær um að honum yrði gert kleift að
yfirgefa það og fara frjáls ferða
sinna um Rússland. Hjörð fjölmiðla-
manna beið hans fyrir utan flugvöll-
inn í gær en ekkert bólaði á Banda-
ríkjamanninum.
Snowden hefur hafst við á flugvell-
inum frá 23. júní þegar hann kom
þangað frá Hong Kong. Hann hefur
óskað eftir hæli í Rússlandi þar sem
hann hefur ekki komist úr landinu
eftir að bandarísk yfirvöld lýstu eftir
honum og felldu vegabréfið hans úr
gildi vegna uppljóstrana hans um
umfangsmiklar njósnir þeirra á sím-
um og neti.
Vilja skýringar á stöðunni
Fregnir bárust af því um miðjan
dag í gær að Snowden fengi í hendur
skjöl frá innflytjendayfirvöldum sem
staðfesti að verið sé að fjalla um hæl-
isumsókn hans. Það ætti að gera
honum kleift að yfirgefa viðkomu-
svæðið á flugvellinum.
Anatoly Kucherena sem hefur
komið fram fyrir hönd Snowdens
sagðist ekki hafa fengið skjölin í
hendur og sagði að hafa yrði rúss-
neskt skrifræði í huga vegna tafa á
afgreiðslu máls uppljóstrarans.
Hann sagði óráðið hvort hann yrði
áfram um kyrrt á flugvellinum.
Bandarísk stjórnvöld kröfðust í gær
skýringa á stöðu Snowdens í Rúss-
landi vegna misvísandi frétta af af-
drifum hans.
Bíður leyfis til að
fara af vellinum
Snowden enn fastur á flugvellinum
AFP
Fastur Kucherena, lögmaður Snow-
dens (t.v.), á flugvellinum í gær.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Þrátt fyrir að margir á norður-
slóðum hugsi sér gott til glóðarinnar
með bráðnun íss á norðurskautinu
vegna hlýnunar jarðar þá gæti skjót
bráðnun þar valdið hagkerfi heims-
ins búsifjum sem hlaupa á tugum
þúsunda milljarða dollara. Þetta er
niðurstaða rannsóknarhóps hag-
fræðinga og vísindamanna.
Fjöldi þjóða hefur séð fyrir sér
efnahagslegan gróða af völdum
bráðnunarinnar þar sem nýjar olíu-
og gaslindir opnist og siglingaleið
norður fyrir Evrópu og Asíu verði
fær. Hópurinn sem stendur að rann-
sókninni segir hins vegar að bráðn-
unin feli í sér „efnahagslega tíma-
sprengju“ vegna þeirra áhrifa sem
hún getur haft á loftslagið á jörðinni.
Geigvænlegar afleiðingar
Gríðarlegt magn af gróðurhúsa-
lofttegundinni metani er bundið í sí-
frera og ísbreiðum á norðurskautinu.
Vísindamennirnir óttast að losni það
eftir því sem frostið hopar þá hafi
það geigvænlegar afleiðingar fyrir
heimsbyggðina. Þar skipti engu
hvort gasið losnar í einni gusu eða
yfir margra ára tímabil.
„Yfirvofandi bráðnun sumar-
sjávaríssins á norðurskautinu mun
hafa gríðarleg áhrif til að flýta fyrir
loftslagsbreytingum og losun met-
ans,“ segir Peter Wadhams, prófess-
or og yfirmaður rannsóknarhóps í
eðlisfræði heimskautasjávar við
Cambridge-háskóla á Bretlandi, sem
er einn höfunda rannsóknarinnar
sem birt var í tímaritinu Nature.
Magnast við metanlosunina
Wadhams segir einnig að stór
hluti kostnaðarins við loftslagsbreyt-
ingarnar félli á þróunarlönd fjarri
norðurskautinu í formi öfgakennds
veðurs og flóða auk áhrifa á heilsu og
landbúnaðarframleiðslu. Efnahags-
legu áhrifin af hraðri bráðnun séu
vanmetin af stjórnvöldum í heimin-
um.
„Flóð yfir láglendissvæði, gríðar-
legt álag af hita, þurrki og stormum
magnast allt vegna viðbótar-metan-
losunarinnar,“ segir Wadhams.
Efnahagsleg tímasprengja
Vísindamenn og hagfræðingar segja snögga bráðnun á norðurskauti geta orðið
heimsbyggðinni gríðarlega dýrkeypta Losun metans flýtir hlýnuninni
AFP
Hlýnun Rússneskt olíuskip siglir um norðurskautið. Ís bráðnar nú hratt þar
og opnast þá fyrir siglingaleiðir. Það gæti reynst skammgóður vermir.
Bráðnun íss
» Norðurskautshafísinn hopar
hratt. Í september í fyrra var
hann aðeins 3,5 ferkílómetrar.
Það eru um 40% af flatarmáli
hans árið 1970.
» Sumir vísindamenn telja að
Norður-Íshafið verði nánast ís-
laust þegar árið 2020.
» Rússnesk yfirvöld segja 218
skip hafa sótt um leyfi til að
sigla norðurhafsleiðina í ár.
Svarið við spurningu dagsins
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
tilbúnar í pottinn heima
Fiskisúpur í Fylgifiskum
Verð 1.790 kr/ltr
Súpan kemur í fötu en fiskinum er pakkað sér.
Eldunaraðferð þegar heim er komið: Súpan er hituð upp að suðu, fiskinum er jafnað út milli súpudiska
eða settur í pottinn um leið og súpan er borin fram.
Hvað þarftu mikið?
Súpa sem aðalréttur – 0,5 ltr/mann Súpa sem forréttur – 0,25 ltr/mann
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Útsölustaðir: Bústoð Keflavík, Bjarg Akranesi
Íslensk hönnun og framleiðsla
A81
Hönnuðir: Atli Jensen og
Kristinn Guðmundsson
Verð frá: 27.800,-
www.facebook.com/solohusgogn