Morgunblaðið - 25.07.2013, Qupperneq 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013
Það er varla nokkur
samhljómur um nýlega
forsetaákvörðun síð-
ustu dagana. Og það er
eins og fólk sé fast í ein-
hverju allt öðru en því,
sem ritari leyfir sér að
kalla aðalatriði. Og
hvað er það þá? – Það
eru í fyrsta lagi fisk-
veiðigjöldin og hins-
vegar stjórnlagatext-
inn. Ritari skrifar þessi orð í
framhaldi af því, sem nokkrir þekktir
pennar hafa sett á pappír.
Karl Th. Birgisson ritstjóri (?) rit-
ar á netsíðunni Eyjan: – „Kommon
krakkar.“ Já, já. Ritari skal koma í
slaginn. Hann lítur á þetta herkall
sem það sé til sín m.a. – Karl Th. seg-
ir, að forsetinn hafi uppskorið mikinn
skæting og að hann hafi ekki átt hann
skilið núna. Og af hverju? – Vegna
þess að ritstjóranum er fyrirmunað
að skilja hvernig þeir stjórnlagaráðs-
menn (eins og hann
sjálfur) geta núna viljað
fá þjóðaratkvæða-
greiðslu, sem nýja
stjórnarskráin hefði
komið í veg fyrir. – Þar
sem ritari hefði nú frek-
ar viljað þjóð-
aratkvæðagreiðslu
heldur en þá þumb-
aralegu þögn, sem nú
ríkir, er ljóst að hann
verði að rýna nánar í
stjórnlagaákvæðin, sem
fyrir liggja til að geta
skilið hvernig þau ættu að geta boðið
upp á ákvæði, sem tryggði betri með-
ferð á fiskveiðimálum en tætingslega
þjóðaratkvæðagreiðslu nú.
Af hverju hefði ritari nú viljað
þjóðaratkvæðagreiðslu? – Vegna
þess að hann trúir því, að þá hefðu
lögin verið felld, þau sem nú eru ný-
sett. Þótt sumir þingmanna hafi með
háðsglotti látið í það skína, að þá ríki
engin lög um veiðigjöld og útgerðin
geti gert út frítt. Og þá hló Skaði,
næstum því. – Ef stjórnin ætlaði sér í
svona billega glímu við andstæðinga,
þá kæmi upp alveg ný staða. Stjórn-
arandstaðan í þinginu kemur þá með
tillögu, þingsályktunartillögu ef ekki
vill betur til, um að sett verði lög um
innheimtu veiðigjalda til þess að
fiskiskip fái úthlutaðan veiðirétt til
eins árs þann 1. september nk. Ráð-
herra verði falið að annast til-
lögugerð um innheimtu veiðigjalda,
sem séu samtals ekki lægri en verða
fiskveiðiárið, sem er að líða.
Stjórnarliðar verða að sjálfsögðu
ekkert hressir með þá tillögu og fella
hana. Þeirra er jú valdið, en hvorki
ríkið né dýrðin. Ef flotanum verður
hleypt á miðin án gjaldtöku, þá kem-
ur upp nýtt ástand í þjóðfélaginu,
sem ritari efast um að stjórnvöld vilji
bera ábyrgð á. Þau átök, sem munu
geta fylgt á vinnumarkaði í kjölfarið
eru ófyrirsjáanleg og hættuleg.
Forsetanum finnst nú meiri ró yfir
hlutunum en verið hefur. Það voru
ein af rökum hans. En þau eru miklu
nær því að endurspegla svikalogn. –
Um hvað er að tefla? Það er miklu
meira en fáeinir milljarðar og ritari
heldur, að flestir skynji það þótt sum-
ir sjái bara peningana og geri frá-
drátt í huganum. – Um er að ræða
eignarhald á auðlindum sjávar,
hvorki meira né minna. Það hafa þeg-
ar farið fram margar skoðanakann-
anir og auk þess þjóðaratkvæða-
greiðsla. Þrír fjórðu þjóðarinnar eða
meira vilja að sjávarauðlindirnar séu
í þjóðareigu, eins og stendur í lög-
unum um fiskveiðar í landhelgi Ís-
lands. Stjórnin er nú, eins og stjórn-
arandstaðan gerði áður, búin að
forðast málið í heild sinni og lætur nú
aðeins brjóta á smotteríi eins og
veiðigjaldinu einu saman – eða bara
fáeinum milljörðum.
Ef litið er á málið í heild, þá er um
margt að ræða. Innheimta veiði-
gjalda er eitt og í henni endurspegl-
ast sá skilningur, að auðlindin sé í
eigu þjóðarinnar enda rennur rentan
í ríkissjóð eða til sérstakra opinberra
verkefna. Einnig er að einhverju leyti
um að ræða endurskoðun á hinum
svokallaða „rétti“ til fiskveiða og end-
urskipulagningu á úthlutunaraðferð
til fyrirtækja eða einstaklinga á jafn-
ræðisgrundvelli. Það er ekki eins
flókið mál og sumir vilja halda. – Í
þessu sambandi er augljóst, að einnig
er um aðferðafræði við úthlutun
veiðileyfa að ræða. Þ.e. hvort notuð
verða uppboð á leyfum eða önnur að-
ferð. – Til þess að það geti farið fram
er mikið og erfitt stjórnmálalegt
verkefni að fara með öll þessi atriði í
gegnum þjóðaratkvæðagreiðslur og
pólitíska úrvinnslu.
Í ljósi þessa má nokkurn veginn
sjá, að breyting á innheimtu veiði-
leyfa nú til lækkunar um þrjá millj-
arða, er ekki nema pínulítill hluti af
öllu málinu. Og ekki er nóg með það,
heldur stefnir málið í öfuga átt nú
með þeim lækkunum, sem orðið hafa
á fiskveiðigjöldum. Ritari reiknar
með því að forsetinn hafi tæplega al-
veg áttað sig á þessu samhengi öllu
og ekki metið til fulls. – Af hverju eru
sumir menn að æsa sig yfir málum
nú? Svona veigalitlum eins og þau
eru? – Það er nefnilega málið. Að þau
skuli vera svona lítil nú og stefna í öf-
uga átt. Með þessu háttalagi verður
seint búið að koma á þjóðfélagslegri
stjórnun á fiskveiðum. Og forset-
anum fannst lítill munur á málum nú í
samanburði við þau eins og þau voru.
– En það er nefnilega málið og vanda-
málið. Það er full ástæða til að hindra
að málin snúist upp í strútshaus nú
og að stjórnin geti verið með háðs-
glósur yfir litlum heimtum stjórnlag-
aráðs og andstæðinga núverandi
stjórnunar á fiskveiðum og að eign-
arhald á fiskveiðiauðlindinni lúri
áfram í óvissu.
Eftir Jónas
Bjarnason » Sýn fólks og forseta
á breytingar á lög-
um um fiskveiðigjöld er
tætingsleg. Ákvörðun
forseta nær til pínulítils
hluta af endurheimt á
fiskauðlindinni
Jónas Bjarnason
Höfundur er efnaverkfræðingur
dr.rer.nat.
Öfugsýn á auðlindamál
Reiðhjólið hefur notið
sívaxandi vinsælda á Ís-
landi. Reykjavík er kom-
in með ágætis brautir
fyrir reiðhjól en lands-
byggðin ekki. Margir er-
lendir ferðamenn koma
til landsins með reiðhjól
sín og hafa ákveðið að
hjóla hringveginn.
Margir Íslendingar
hjóla líka hringinn.
Svo þegar út á landsvegina er kom-
ið kárnar gamanið. Mikil hætta skap-
ast vegna þess hve vegirnir eru mjóir,
þegar bíll fer fram úr reiðhjóli og er
jafnvel í sömu andrá að mæta öðrum
bíl.
Hjólreiðamennirnir hjóla ekki allt-
af alveg í beinni stefnu og reiðhjólin
sveiflast oft inn á vegina þegar ekið
er framhjá þeim. Flestir ökumenn
kannast við þetta hættuástand.
Sjálfbær samgönguáætlun ríkisins
á ekki aðeins að snúast
um að skipuleggja sam-
göngur innan þétt-
býliskjarna heldur þarf
líka að huga að sjálf-
bærum samgöngum
hringinn í kringum allt
landið.
Það væri því alger
snilld ef hægt væri að
fjármagna hjólreiða-
braut meðfram þjóðveg-
unum. Þá yrðu hjól-
reiðamennirnir öruggir
með að fá ekki bíl á sig
og ökumenn þyrftu ekki að vera
skjálfandi á beinunum yfir að aka
óvart á hjólreiðafólk.
Svona braut kostar ekki lítið en
yrði fljót að borga sig upp í auknu
umferðaröryggi, minni slysatíðni,
skatttekjum af ferðafólkinu og
tengdri þjónustu.
Þetta málefni samgangna á ekki að
vera spurning um fjármagn og þol-
inmæði eins og talað er um í þings-
ályktun um 12 ára samgönguaætlun.
Þetta á að vera forgangsatriði í þjóð-
vegahluta samgönguáætlunarinnar.
Hjólreiðafólkið er nú þegar á veg-
unum í hundraðatali. Það hefur ekki
þolinmæði til að bíða eftir að verða
öruggt í umferðinni. Fjármagnið þarf
að útvega fljótt og örugglega áður en
einhver hjólreiðamaðurinn týnir lífi
sínu. Það myndi spyrjast fljótt út um
allan heim hve góð aðstaða er á Ís-
landi fyrir hjólreiðafólk og þá myndi
ferðamönnum fjölga gríðarlega sem
kæmu hingað í þeim tilgangi að hjóla
hringveginn. Þessi hjólreiðabraut um
hringveginn myndi efla lýðheilsuna
og hvetja fólk til sjávar og sveita til að
hjóla meira.
Þegar brautin er tilbúin verður
hægt að halda keppnina „Tour de
Iceland“ þar sem öflugustu hjólreiða-
menn heims myndu koma til landsins
til að hjóla í fjölbreyttu landslagi og
keppast um þann titil.
Hjólað hringveginn
– „Tour de Iceland“
Eftir Magnús
Sigurðsson
Magnús Sigurðsson
»Þessi hjólreiðabraut
um hringveginn
myndi efla lýðheilsuna og
hvetja fólk til sjávar og
sveita til að hjóla meira.
Höfundur er flugvélfræðingur og
áhugamaður um hjólreiðar.
Smiðjuvegi 4 (Græn gata), 200 Kópavogi, sími 578 3030, gsm 824 0240, laugin.is
Erum með allt fyrir
Góður endir
á góðum degi
Nuddpottar
Hreinsiefni
Síur
Viðgerðarþjónusta
Varahlutir
fi p y j g p
Carpaccio með valhnetu-vinaigrette og klettasalati Grafið lam
með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté með paprik
mauki Bruchetta með tvíreyk
hangikjöti, bal- samrauðla
og piparrótarsósu Bruchet
ta með hráskinku, balsam
grill uðu Miðjarðar- hafsgrænm
K r a b b a - salat f
skum kryddjurtum í brauðbo
B r u c h e t t a með Mi
jarðarhafs-tapende R i s a
rækja á spjóti með peppadew Silunga hrogn með japönsku majón
sinnepsrjóma-osti á bruchettuBirkireykt-ur lax á bruchettu með alio
grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar, 3 smáar á spjóti m/kryddju
taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum Vanillufy
tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum Kjúklingu
satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is
MöndluMix og KasjúKurl er
ómissandi í ferðalagið. Útá
salatið og við grillið í sumar.
Hollt og gott frá Yndisauka.
Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum,
Melabúðinni, Fjarðarkaup, Miðbúðinni,
Kjöthöllinni, Hreyfingu, Garðheimum,
Mosfellsbakaríi og Bakaríinu við brúna
Akureyri.