Morgunblaðið - 25.07.2013, Side 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013
Gréta Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabba-
meinssjúkra barna, er í góðu sambandi við vinnustaðinn í sumar-
fríinu, enda stendur sumarhátíð félagsins fyrir dyrum. Hún er hald-
in í Fljótshlíð og alltaf í góðu veðri, jafnvel þótt spáin gefi ekki
fyrirheit um blíðu.
Hátíðin er í lok júlí og nokkrum sinnum hefur afmælið borið upp á
einhvern hátíðardaganna. „Það er ekki slæmt að eiga afmæli í þess-
um góða félagsskap, þó að afmælið mitt hafi að sjálfsögðu aldrei
verið neitt atriði. Afmælissöngurinn hefur að vísu verið sunginn og
einu sinni kröfðust tónlistarmenn, sem voru að skemmta okkur, þess
að ég kæmi upp og tæki lagið fyrir sjálfa mig. Ég lét auðvitað undan
þó að það væri alveg þrælhallærislegt að standa og syngja: Ég á af-
mæli í dag!“ segir Gréta.
„Það hafa engar sérstakar hefðir myndast í kringum afmælið. Þar
sem það er um hásumar er ekki auðvelt að ná fólki saman. Nú erum
við búin að tryggja okkur borð fyrir fjölskylduna á Hótel Geysi í
kvöld þar sem á að vera yfir 20 stiga hiti.“ Gréta segist nota allt árið
til að gefa fjölskyldumeðlimum, og þá aðallega eiginmanninum, vin-
samlegar ábendingar um ýmislegt sem sig „vanti“ og væri tilvalið til
afmælisgjafa en það hafi yfirleitt ekki borið neinn sérstakan árang-
ur. Hún er samt bjartsýn og segir ekkert víst að það klikki í ár.
Gréta Ingþórsdóttir er 47 ára
Sumarhátíð Með Grétu á myndinni eru Jónas Bjartmar Jónasson, Gísli
Hjartarson, eiginmaður Grétu, og dóttir þeirra, Halldóra Karitas.
Eltir blíðuna með
fjölskyldunni
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Árnað heilla
Demants-
brúðkaup
Í dag, 25. júlí, eiga
demantsbrúðkaup
hjónin Sólveig
Árnadóttir og
Árni Bjarnason,
Uppsölum í
Skagafirði. Þau
giftust árið 1953 í
Grenjaðarstað-
arkirkju í Aðaldal,
S-Þing.
Reykjavík Aþena Þórleif fæddist 13.
nóvember kl. 17.50. Hún vó 4.520 g og
var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru
Rakel Ósk Steindórsdóttir og Ólafur
Birgisson.
Nýir borgarar
Mosfellsbær Nói Alexander fæddist
3. nóvember kl. 5.40. Hann vó 3.736 g
og var 52 cm langur. Foreldrar hans
eru Ingibjörg Jóna Nóadóttir og Birg-
ir Már Gunnarsson.
Ó
lafur Bragason Thorodd-
sen fæddist 25. júlí 1953
á Patreksfirði og ólst
þar upp. „Í æsku var
leiksvæðið fjaran og
fjallið, klettarnir og lækirnir en á
unglingsárum á Patreksfirði var lífið
körfubolti. Ég var í sveit frá 11 ára til
15 ára að Hvallátrum í Rauðasands-
hreppi hjá Þórði Jónssyni og Sigríði
Ó. Thoroddsen föðursystur minni.
Þessi fimm sumur á Hvallátrum voru
mikil þroskasumur þar sem ég kynnt-
ist því að búa við frekar gamaldags
búskaparhætti. Þar var ekki rafmagn
nema til ljósa (12 volt) og við krakk-
arnir lærðum að slá með orfi og ljá og
rifja og raka með hrífu. Látrabjargið
var heillandi heimur sem gaman var
að kynnast af eigin raun og af sögum
fólksins á Látrum um atburði og
hvernig björg var sótt í bú í þessa
miklu matarkistu. Ég hef búið að
þessum góðu sumrum alla ævi. Þar
lærði ég að vinna og taka ábyrgð á
störfum af ýmsum toga. Ég hef ekki
beðið skaða af því að vinna mikið og
taka þátt í lífsbaráttunni á Látrum.“
Náms- og starfsferill
Ólafur var í grunnskólanum á Pat-
reksfirði, einn vetur á Núpi í Dýra-
firði í landsprófi 1969-1970 og stúdent
frá Menntaskólanum á Akureyri
1974. Fór í Háskóla Íslands 1975 í
landfræði og sögu og lauk BSc-prófi í
landfræði og síðan uppeldis- og
kennslufræði í sama skóla 1980. Dip-
lóma í stjórnun menntastofnana frá
Kennaraháskóla Íslands 2009.
Á námsárum var Ólafur í vega-
vinnu í mörg sumur víða um Barða-
strandarsýslu og síðustu árin á
þungavinnuvélum. Tvö sumur vann
hann svo í lögreglunni í Reykjavík.
Ólafur var kennari í Dalvíkurskóla
1980-1985 og forstöðumaður Dal-
bæjar, dvalarheimilis aldraðra á Dal-
vík, 1985-1988 og síðan kennari í Dal-
víkurskóla 1988-1990. Hann var í
bæjarstjórn Dalvíkur fyrir Sjálfstæð-
isflokk og óháða kjósendur 1986-
1990. Fjölskyldan fluttist að Kristnesi
í Eyjafirði árið 1990 og þremur árum
síðar til Akureyrar. Hann var kennari
við Síðuskóla á Akureyri 1990 til
1995, starfaði eitt ár á skólaþjónustu
Eyþings og varð skólastjóri í Síðu-
skóla 1997 og hefur verið það síðan.
Á Dalvíkurárum var Ólafur for-
maður björgunarsveitar Slysavarna-
félags Íslands á Dalvík í átta ár. Hann
tók þátt í ýmsum félagsmálum kenn-
ara, meðal annars í skólamálaráði
Kennarasambands Íslands, í stjórn
Bandalags kennarasambands Norð-
urlands eystra, BKNE, og síðar í
stjórn FSNE sem er félag skóla-
stjórnenda á Norðurlandi eystra.
Hann hefur verið í stjórn Skógrækt-
arfélags Eyfirðinga nokkur síðast-
liðin ár.
Ólafur B. Thoroddsen, skólastjóri í Síðuskóla – 60 ára
Í Grásteini Stórfjölskyldan mætt um verslunarmannahelgina 2012. Þar voru foreldrar Þóru ásamt bróður hennar
og fjölskyldu og svo Ólafur og Þóra og tveir synir þeirra með sínar fjölskyldur.
Unir sér í Svarfaðar-
dal í frítíma sínum
GJÖRIÐ
SVO VEL!
Hafðu það hollt
í hádeginu
HAFÐU SAMBAN
D
OG FÁÐU TILBO
Ð!
HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is
HEITT OG KALT býður starfsfólki fyrirtækja hollan og
næringaríkan mat í hádegi.
Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is
Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari
og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta
matreiðslukeppni heims.