Morgunblaðið - 25.07.2013, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 25.07.2013, Qupperneq 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013 Árni Matthíasson arnim@mbl.is Sigtryggur Berg Sigmarsson, tónlistar-, óhljóða- og myndlistarmaður sýnir nýleg bók- verk í bókaversluninni Útúrdúr á Hverfisgötu 42 í dag kl. 16. Verkin eru unnin í Belgíu á undanförnum mánuðum, en Sigtryggur býr þar um þessar mundir. Sigtryggur segir að verkin séu margskonar, en eitt þeirra hafi verið á sýningunni Huglæg landakort í Listasafni Íslands í vor. „Eitt verkanna, sem er bæði bókverk og hljóðverk, vann ég með austrríska listamaninum Franz Graf og því fylgir geisladiskur með hljóðum og myndefni á DVD. Svo sýni ég bók með 200 teikningum og svo er líka hljóðbók, geisla- diskur, þar sem ég segi sögur.“ Minimal Avant Garde Difficult Conceptual Naive Outsider Art Verkin eru öll framleidd í mjög takmark- aðri útgáfu og eitt verkanna, Minimal Avant Garde Difficult Conceptual Naive Outsider Art, er þegar uppselt að sögn Sigtryggs. „Ég gef þetta allt út sjálfur og þá í fimmtíu eintök- um hvert verk. Ég man svo vel hvernig þetta var í gamla daga þegar maður var að gefa út pötur í fimmhundruð eintökum og svo enduðu þrjúhundruð eintök í kjallaranum hjá ömmu,“ segir hann og hlær. „Maður nennir ekki að lenda í því veseni aftur. En það er líka skemmtilegra að gefa út takmarkaðan fjölda og hafa hann tölusettan og líka gaman að láta þetta klárast.“ Eins og Sigtryggur nefnir er eitt bókverkanna hljóðbók sem hann segir sprottna af dálæti dóttur hans, og hans sjálfs líka, á hljóðbókum, þau eigi það sameiginlegt að vera æst í hljóðbækur og hann hafi líka gaman af útvarpsleikritum. Því ákvað hann að gera hljóðbók þar sem hann segir sögur með áhrifshljóðum. Bókverkin geyma texta, skrásetningu gjörninga og teikninga, meðal annars. Allt ný- legt en samband hluta sem ekki hafa litið dagsins ljós áður, eins og Sigtryggur lýsir því. Ghentískur innblástur Vinir Sigtryggs á Facebook, ofanritaður meðtalinn, hafa séð að það er talsverð þróun í teikningum hans, eða í það minnsta þeim teikningum sem orðið hafa til eftir að hann fluttist til Belgíu og hann deilir með Face- book-vinum. Hann neitar þvi ekki að það sé ýmislegt að gerast í myndlistinni og eflaust megi kenna dvölinni ytra um það að einhverju leyti. „Ég dreg alltaf mikinn innblástur frá þeim stöðum sem ég er á hverju sinni, verkin verða eins og nokkurskonar dagbók, og Ghent hefur gert mér mjög gott í leit að öðrum slóð- um. Ég hef líka reynt að setja mér skorður í tækni og efnum og fyrir vikið hafa myndirnar orðið klassískari í útliti, líkar myndunum sem Svanbjörg Hróbjartsdóttir amma mín gerir,“ segir Sigtryggur, brosir að tilhugsuninni og bætir svo við að það séu að koma í ljós lands- lagsmyndir útúr abstraksjóninni. „Ég hef samt enga stjórn á þessu og hugsa ekki um það hvað ég er að fara að teikna, ég byrja bara og þarf stundum að temja það hvenær ég á að hætta, því hver stroka getur eyðilagt myndina fyrir mér, en hver einasta mynd sem ég vinn; ef mér finnst hún meingölluð þá reyni ég að redda henni.“ Sigtryggur er staddur hér í stuttri vinnu- ferð, kemur vegna sýningarinnar í Útúrdúr og einnig til að vinna við verk eftir Ernu Ómars- dóttur sem flutt verður í Kassanum í Þjóðleik- húsinu í haust. Það eru svo fleiri verkefni framundan, meðal annars er hann að undirbúa sýningu með vini sínum, belgíska listamann- inum Dennis Tyfus í strandbænum Knokke skammt frá Zeebrugge. „Þar verður haldin listakaupstefna og við Dennis sýnum þar á vegum gallerísins sem ég er að vinna með í Belgíu, Galerie Tatjana Pieters. Sú sýning verður opnuð 15. ágúst og svo verð ég með sýningu í gallerínu 15. september þar sem ég sýni skúlptúra og teikningar.“ Verða einskonar dagbók  Sigtryggur Berg Sigmarsson sýnir bókverk í versluninni Útúrdúr  Vann bókverkið í Belgíu Morgunblaðið/Eggert Stjórnlaus Sigtryggur Berg Sigmarsson sýnir bókverk í Útúrdúr á Hverfisgötu í dag. Stilluppsteypa Stilluppsteypa meðal annars ÓHLJÓÐALISTIR Sigtryggur Berg Sigmarsson er ekki bara myndlistarmaður, heldur hefur hann líka fengist við tón- og óhljóðalist á und- anförnum árum eins og getið er hér til hlið- ar. Hann er helmingur Stilluppsteypu, Helgi Þórsson hinn helmingurinn, og sú sveit er býsna dugleg við að gefa út plötur, fjöl- margar komnar út og fleiri framundan. Þannig er sveitin að taka upp plötu sem gefa á út á næsta ári, en líka að vinna að plötu með sænska hljóðlistamanninum Benny Jonas B.J. Nilsen. A-hliðin er tilbúin en nú er verið að vinna að B-hliðinni, eins og Sigtryggur lýsir því. „Svo er líka að fara að koma út kassetta með sólóverkum mínum í Bandaríkjunum sem Aaron Dilloway úr Wolf Eyes gefur út hjá Hanson Records. Helen Scarsdale Agency gefur svo út aðra sóló- plötu með verkum eftir mig á næstunni. Það sem Hanson Records og Helen Scarsdale Agency gefa út er ekki alveg ný verk, en drone-músík eldist ekki, hún er tímalaus og það breytir því ekki neinu hve- nær hún er gefin út.“ Svonefndur langlisti vegna Man Booker-bókmenntaverðlaunanna var kynntur í vikunni en af þeim lista verða síðar í sumar valdar bæk- ur fyrir stuttan lista yfir þær sem til- nefndar eru. Á langlistanum eru eftirtaldar bækur: Five Star Billionaire eftir Tash Aw, We Need New Names eft- ir NoViolet Bulawayo, The Luminaries eftir Eleanor Catton, Harvest eftir Jim Crace, The Marrying of Chani Kaufman eftir Eve Harris, The Kills eftir Richard House, The Lowland eftir Jhumpa Lahiri, Unexploded eftir Alison MacLeod, TransAtlantic eftir Colum McCann, Almost English eft- ir Charlotte Mendelson, A Tale for the Time Being eftir Ruth Ozeki, The Spinning Heart eftir Donal Ryan og The Testament of Mary eft- ir Colm Tóibín. Í umfjöllun á vef breska dagblaðs- ins Guardian kemur fram að Jhumpa Lahiri teljist einna sig- urstranglegust á langlistanum og djörfung og tilraunamennska sögð einkenna bækurnar á listanum. For- maður dómnefndar verðlaunanna, Robert Macfarlane, segir nefndina ekki hafa lagt upp með að „drepa risa eða slátra heilögum kúm“ og á þar við höfundana. Verðlaunahafinn mun hljóta 50 þúsund sterlingspund í verðlaunafé, jafnvirði um 9,3 millj- óna króna. Breski rithöfundurinn Hilary Mantel hlaut verðlaunin í fyrra, fyrir skáldsöguna Bring Up the Bodies og var það í annað sinn sem hún hlaut þessi eftirsóttu verð- laun. AFP Verðlaunahafi Hilary Mantel með skáldsögu sína Bring Up the Bodies. Langlisti Man Booker- verðlaunanna kynntur bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.