Morgunblaðið - 25.07.2013, Qupperneq 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013
STOFNAÐ 1987
M
ál
ve
rk
:
K
ar
ó
lín
a
Lá
ru
sd
ó
tt
ir
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n S k i p h o l t 5 0 a | S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s
Teiknimyndafyrirtækið Pix-ar, sem nú heyrir undirDisney-stórveldið, hefursent margar stórgóðar og
frumlegar teiknimyndir frá sér í
gegnum árin. Ein þeirra er Mon-
sters Inc., eða Skrímsli hf., frá árinu
2001. Í henni voru kynnt til sög-
unnar tvö kostuleg og ólík skrímsli,
þeir Maggi og Sölli, annað lítið,
grænt og eineygt en hitt stórt, fjólu-
blátt og loðið. Skrímsli þessi störf-
uðu fyrir skrímslafyrirtækið
Skrímsli hf. en starfsemi þess gekk
út á að senda skrímsli inn í mann-
heima að næturlagi til að hræða
börn. Ótta barnanna var síðan
breytt í orku sem nýtt var til að
knýja skrímslaborg, heimkynni
skrímslanna. Maggi og Sölli festust í
mannheimum með kostulegum af-
leiðingum.
Nú er komin framhaldsmynd
þessarar ágætu myndar og nær hún
ekki sömu hæðum í frumleika og
skemmtanagildi, þó vissulega sé hún
skemmtileg, bæði fyrir börn og full-
orðna. Í Skrímslaháskólanum er
sögð sagan af því hvernig Maggi og
Sölli kynntust þegar þeir voru tán-
ingsskrímsli og nemendur við
Skrímslaháskólann. Maggi er metn-
aðarfullur nemandi og hyggst rúlla
upp náminu, læra allt sem hægt er
að læra um það að hræða börn. Fyr-
irstaða hans í námi er hins vegar sú
að hann er ekkert hræðilegur. Það
er Sölli hins vegar en á móti kemur
að hann er metnaðarlaus nemandi
og telur sig ekkert þurfa að leggja á
sig til að útskrifast úr hræðsludeild
skólans. Maggi og Sölli eru í upphafi
svarnir óvinir og deilur þeirra í
kennslustund valda því að þeir eru
reknir úr hræðsludeildinni. Eina von
þeirra um að komast aftur inn er að
leiða lið sitt til sigurs í sk. Skelfi-
leikum en liðið er ekki líklegt til sig-
urs þar sem það er á engan hátt
hræðilegt, að Sölla undanskildum.
Maggi, Sölli og liðsfélagar þeirra
þurfa því að leggja sérstaklega mik-
ið á sig og kafa djúpt í skrímsla-
fræðin til að eiga möguleika á því að
sigra mótherjana, lið skelfilegra
skrímsla.
Söguþráður þessarar teiknimynd-
ar er ekki ýkja frumlegur sem fyrr
segir en skemmtilegar persónur og
skondin uppátæki þeirra bæta hins
vegar fyrir það að miklu leyti.
Myndin er að stórum hluta í anda
bandarískra skólamynda á borð við
Revenge of the Nerds, eða Hefnd
busanna, en í þeirri ágætu mynd
segir af hópi lúðalegra nýnema sem
lagðir eru í einelti af eldri og öllu
svalari nemendum. Lúðarnir ná þó
að hefna sín á þeim svölu, líkt og
lúðaskrímslin í Skrímslaháskól-
anum. Boðskapurinn sem mat-
reiddur er ofan í börnin er ágætur,
þ.e. að maður uppskeri eins og mað-
ur sáir og að það borgi sig heldur að
beita vitsmunum en afli. Það er ekk-
ert út á kvikunina að setja, hún er
fantagóð sem fyrr hjá Pixar og ís-
lenska talsetningin sömuleiðis.
En galli myndarinnar felst í því að
heldur klisjukennd og hugmynda-
snauð leið er farin í frásögninni, boð-
ið upp á gamla tuggu í stað nýrrar
pg spennandi. Fyrir vikið verður
Skrímslaháskólinn lítt eftirminnileg
og langt frá því að teljast til bestu
teiknimynda Pixar.
Hefnd skrímslabusanna
Skrímslahópur Lið Magga og Sölla í Skelfileikunum þarf að leysa marga þrautina í Skrímslaháskólanum.
Sambíóin, Laugarásbíó og
Smárabíó
Skrímslaháskólinn/ Monsters Uni-
versity bbbnn
Leikstjóri: Dan Scanlon. Aðalleikarar í
íslenskri talsetningu: Felix Bergsson,
Ólafur Darri Ólafsson, Magnús Ragn-
arsson, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Sturla Sighvatsson og Björn Thor-
arensen. Bandaríkin, 2013. 104 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Sönghópurinn 3 klassískar, þ.e.
söngkonurnar síkátu Björk Jóns-
dóttir, Signý Sæmundsdóttir og Jó-
hanna V. Þórhallsdóttir, heldur
tónleika í Bragganum á Hólmavík
annað kvöld, 26. júlí, kl. 20.30
ásamt Bjarna Jónatanssyni píanó-
leikara og Gunnari Hrafnssyni
bassaleikara sem þær hafa kallað
„tvo prúðbúna“. Á efnisskránni
verða m.a. lög eftir Gunnar Þórð-
arson, Burt Bacharach og Megas.
3 klassískar hafa haldið tónleika
vítt og breitt um landið til fjölda
ára og einnig í Danmörku og Sví-
þjóð. Þær hafa einnig gefið út
breiðskífuna Fyrir austan mána og
vestan sól.
Fimm Þrjár klassískar og tveir prúðbúnir halda tónleika á Hólmavík.
Gunnar, Bacharach og Megas á
tónleikum 3 klassískra í Bragganum