Morgunblaðið - 25.07.2013, Page 36

Morgunblaðið - 25.07.2013, Page 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013 Sími 571 2000 | hreinirgardar.is Garðsláttur Láttu okkur sjá um sláttinn í sumar Saxófónleikarinn Sigurður Flosa- son og organistinn Gunnar Gunn- arsson sendu nýlega frá sér fimmta diskinn sinn sem nefnist Íslenskir sálmar. „Diskurinn er safndiskur af þremur eldri sálmadiskum okkar Gunnars og við vildum með þessum diski leggja áherslu á íslensk sálmalög,“ segir Sigurður en hann og Gunnar hafa spilað kirkjutónlist saman frá árinu 1999 og útfærsla þeirra á tónlistinni fengið góðar viðtökur enda diskar þeirra selst vel að sögn Sigurðar. Á nýja disknum er að finna 12 út- setningar þeirra Gunnars og Sig- urðar á ólíkum sálmalögum og seg- ir Sigurður að spuni sé sem fyrr miðlægur í sálmanálgun þeirra fé- laga sem báðir hafa töluverða reynslu úr djasstónlistarheiminum sem gerir útfærslu þeirra á kirkju- tónlistinni áhugaverða og skemmti- lega. „Gunnar er kirkjuorganisti en hann spilar líka á píanó og hefur spilað töluverðan djass og ég er djass-saxófónleikari. Þegar við kynntumst rétt fyrir aldamótin ákváðum við að prófa að tengja þessa bakgrunna okkar saman, þ.e. kirkjutónlistina og djassinn. Við fengum strax mjög sterk viðbrögð frá fólki og höfum í framhaldi gefið út fjóra sálmadiska og einn disk með íslenskum ættjarðarlögum sem nefnist Draumalandið.“ Þar sem diskurinn Íslenskir sálmar er safndiskur eru engar nýj- ar upptökur á honum en hann tekur saman íslenska sálma af diskunum Sálmar lífsins sem kom út árið 2000, Sálmar jólanna frá 2001 og Sálmar tímans frá 2010. Ásamt því að gefa út safndiskinn Íslenskir sálmar var Draumalandið endurútgefið í sumar. „Endur- útgáfan á Draumalandinu kemur til hreinlega vegna þess að platan er uppseld en hún hefur fengið góðar viðtökur eins og annað efni okkar.“ Útgáfutónleikar fyrir safndisk- inn Íslenskir sálmar fara fram í kvöld í Fríkirkjunni í Reykjavík. vilhjalmur@mbl.is Tónlist Sigurður Flosason saxófónleikari og organistinn Gunnar Gunn- arsson gefa út sinn fimmta disk saman. Hann nefnist Íslenskir sálmar. Sálmatónlist í djassbúningi  Fimmti diskur Sigurðar og Gunnars Útgáfutónleikaröð » Fríkirkjan í Reykjavík 25. júlí kl. 20.00 » Húsavíkurkirkja 27. júlí kl. 13.00 » Dalvíkurkirkja laugar- daginn 27. júlí kl. 17.00 » Siglufjarðarkirkja laugar- daginn 27. júlí kl. 20.00 » Akureyrarkirkja sunnu- daginn 28. júlí kl. 17.00 » Akraneskirkja mánudag- inn 29. júlí kl. 20.00 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is KEXP nefnist útvarpsstöð í Seattle sem helgar sig öðru fremur sk. „indie“-tónlist, eða jaðartónlist. Stöð þessi gengur fyrir frjálsum fram- lögum og laugardaginn sl. var í ann- að sinn haldin tónlistarhátíð við KEX Hostel henni til styrktar, KEXPort, 12 klst. löng hátíð þar sem 12 flytjendur tróðu upp á klukkustundar fresti, frá hádegi til miðnættis. Hátíð þessi er samstarfs- verkefni stöðvarinnar og gistihúss- ins og meðal þeirra sem komu fram að þessu sinni voru tónlistar- maðurinn Friðrik Dór og hljóm- sveitirnar Moses Hightower og stórsveit Samúels J. Samúelssonar. KEXP hefur undanfarin ár sent út beint frá KEX Hosteli meðan á tón- listarhátíðinni Iceland Airwaves stendur og voru fyrstu KEXPort- tónleikarnir haldnir til kynningar á tónlistarmönnum, Airwaves og út- varpsstöðinni. KEXP sendi tvo menn á Airwaves árið 2009 og hefur átt í góðu samstarfi við hátíðina æ síðan. Nöfnin svipuð KEXP var stofnuð árið 1972 og hlaut Webby-verðlaunin árið 2004, fyrir besta vef útvarpsstöðvar en hann má finna á slóðinni kexp.org. Jim Beckmann, vefritstjóri KEXP, var staddur hér á landi í síðustu viku og blaðamaður ræddi við hann stuttlega degi fyrir KEXPort. „Við vorum búnir að koma tvö ár í röð án þess að senda út, tókum upp nokkrar hljómsveitir hjá RÚV og víðar, m.a. Of Monsters and Men ár- ið 2010 og ýmsar aðrar. Við vildum senda út beint héðan líkt og við ger- um í nokkrum borgum í Bandaríkj- unum og vantaði stað til þess. Tón- listarstjórinn okkar, Kevin Cole, kom hingað í leit að hentugum stað. KEX Hostel var einn þeirra sem hentuðu vel, var þá nýr af nálinni og nafnið auðvitað mjög svipað nafni stöðvarinnar. Við skoðuðum nokkra aðra staði, vildum finna stað sem væri keimlíkur stöðinni hvað varðar stíl og andrúmsloft,“ segir Beck- mann, spurður að því hvernig sam- starf KEXP og KEX Hostels hafi komið til. Beckmann nefnir sem dæmi um óvenjulega útsendingar- staði stöðvarinnar í gegnum árin reiðhjólaverslunina Mellow Johnny’s Bike Shop í Austin í Tex- as. Boðið hefur verið boðið upp á hina ýmsu tónleika í versluninni frá opnun hennar árið 2008 en hún er í eigu hjólreiðakappans Lance Arms- trong. Hlustendur undirstaðan Spurður út í vinsældir KEXP, hvort hlustendur stöðvarinnar séu margir, segir Beckmann svo vera þó hann geti ekki nefnt neina tölu. Hvað fjármögnun varðar segir Beckmann framlög frá hlustendum nema um 60% af rekstrarfé stöðv- arinnar sem hljóti einnig styrki frá ríkinu og víðar að. Hlustendur séu samt sem áður undirstaða reksturs- ins. En hvernig líst Beckmann á ís- lensku tónlistarsenuna í dag? „Ja, við myndum ekki koma hing- að á hverju ári ef okkur líkaði hún ekki,“ svarar hann og hlær. „Það er alltaf eitthvað nýtt að sjá og upp- götva. Markmið okkar sem útvarps- stöðvar er einmitt það, að uppgötva nýja tónlist og deila með hlust- endum og þetta er kjörinn staður til þess. Alltaf eitthvað nýtt og spenn- andi að sjá.“ „Alltaf eitthvað nýtt að sjá og uppgötva“  Vefstjóri KEXP ber íslensku tónlistarlífi vel söguna Ljósmynd/William Mirra KEX Jim Beckmann ávarpar gesti á KEXPort-hátíðinni í fyrra. Morgunblaðið/Kristinn Útitónleikar Loji á hátíðinni KEXPort á laugardaginn var. Kammerhóp- urinn Nordic Affect heldur tónleika í dag kl. 20 og á laug- ardaginn kl. 15 á Sumartón- leikum í Skál- holtskirkju. Yf- irskrift tónleikanna er Tónlist um stund og vísar hún til verks Henrys Purcells, „Music for a while“, en dagskrá tónleikanna er helguð honum. Einsöngvararnir Hallveig Rún- arsdóttir sópran, Benedikt Krist- jánsson tenór og Ágúst Ólafsson barítón koma fram með hópnum en meðal erlendra gesta Nordic Affect eru Ian Wilson blokk- flautuleikari og Tuomo Suni fiðluleikari. Wilson heldur masterklassa á hátíðinni á morgun kl. 15 en hann er einn fremsti blokkflautu- leikari heims. Tónlist um stund í Skálholtskirkju Ian Wilson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.