Morgunblaðið - 20.08.2013, Side 6

Morgunblaðið - 20.08.2013, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2013 WC HREINSIR án ilms, 1 ltr. Verð 630 kr. Skeifunni 11 | Sími 515 1100 PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 17 72 www.rekstrarland.is Á MÁLMA Bistro stál og silfurhreynsir Verð frá 4.449 kr. ARROW OFNAHREINSIR með dælu, 750 ml Verð 729 kr. VNR. 35957 VNR. 91990 VNR. 95883 Hreinsiefni Í Rekstrarlandi fæst fjölbreytt úrval hreinsi-, þrif- og sótthreinsunarefna fyrir öll verkefni, stór eða smá, á öllum sviðum atvinnulífsins. Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is Eyþing, samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, hef- ur óskað eftir heimild aðildarsveit- arfélaga fyrir yfirdráttarheimild vegna rekstrarvanda almennings- samgangna á Norðurlandi. „Það eru átta landshlutasamtök á landinu og Eyþing eru þau samtök sem sjá um Eyjafjörð og Þingeyj- arsýslur. Á síðasta kjörtímabili hjá síðustu ríkisstjórn var ákveðið að færa almenningssamgöngur frá Vegagerðinni og til þessara lands- hlutasamtaka. Það hefur gengið upp og ofan,“ segir Geir Kristinn Aðalsteinsson, stjórnarformaður Eyþings. Hann bætir við: „Ríkið gerði samninga til tíu ára við öll landshlutasamtökin. Annars vegar er það höfuðborgarsvæðið sem fær um 900 milljónir á ári í þetta verk- efni, og er því svolítið sér á báti. Samtökin á Suður- og Vesturlandi og á Suðurnesjum fá svo 29 millj- ónir króna á ári í svokallaðan þró- unarkostnað. Hins vegar er svo restin, þ.e. Vestfirðir, Norðurland vestra, við í Eyþingi og Austfirð- ingarnir, sem fáum ekki nema 3,2 milljónir á ári, svo að það slagar í tífaldan mun.“ Geir og Sigurður Valur Ásbjarn- arson, formaður nefndar Eyþings um almenningssamgöngur, funduðu með Hreini Har- aldssyni vegamálastjóra fyrir síðustu alþingiskosn- ingar og því segir Geir að „Við fjölskyldan erum nýflutt aftur til Eyja og okkur fannst svo leið- inlegt að geta ekki boðið ferða- mönnum upp á ferskan fisk þannig að við byrjuðum að hugsa þetta út frá því. Svo vatt það upp á sig þann- ig að það nú eru aðallega Vest- mannaeyingar sem eru að versla við okkur,“ segir Emilía Borgþórs- dóttir sem rekur fiskbúðina VE 123 á Vigtartorgi við höfnina í Vest- mannaeyjum. Verslunin er aðeins rétt um fjórir fermetrar að stærð og er skær- fjólublá að lit. „Afi minn var kall- aður Malli á Júlíu og hann átti bát sem hét Júlía VE 123. Seinni bátur hans var svo í þessum lit þannig að það kom eiginlega ekkert annað til greina,“ segir Júlía. Hún segir það liðna tíð að Vestmannaeyingar fari á bryggjuna og sæki sér fisk í mat- inn og að Eyjamenn hafi tekið nýju fiskbúðinni vel. „Við erum með opið tvisvar í viku frá kl. 15-18 og það er gaman að sjá þegar fólk kemur einu sinni og kemur síðan aftur. Við höfum átt fastakúnna alveg frá fyrsta degi,“ en verslunin selur að- eins nýjan fisk svo að úrvalið er breytilegt dag frá degi. Hún segir gaman að kynna ungu kynslóðinni fiskinn enda þurfi ekki að verka fiskinn, hann sé tilbúinn beint á grillið. agf@mbl.is Fiskbúð á fjórum fermetrum  „Sjarminn er að hafa ferskan fisk“ Eftirspurn Á opnunardegi versl- unarinnar myndaðist mikil röð. Geir segir að þingmenn Norðausturkjördæmis séu með öll gögn undir höndum og viti af málinu, og það sama megi segja um ráðherra úr kjör- dæminu. „Við vonumst til þess að málið leysist þannig að við fáum þennan þróunarstyrk eins og aðrir fyrir sunnan og vestan og þá getur þetta gengið vel,“ segir Geir. Hann segir samtökin ekki hafa verið í sambærilegum skuldbindingum. „Við lítum svo á að Eyþing eigi ekki að vera í skuldbindingum sem þessum nema með heimild allra sveitarfélaganna.“ Í Eyþingi eru þrettán sveitarfélög. Þau eru: Akureyrarbær, Dal- víkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Grýtubakkahrepp- ur, Hörgársveit, Langanesbyggð, Norðurþing, Skútustaða- hreppur, Svalbarðshreppur, Svalbarðsstrandarhreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit. Vilja sama styrk og aðrir GEIR KRISTINN ER BJARTSÝNN Á FRAMHALDIÐ Geir Kristinn Aðalsteinsson málið sé Vegagerðinni vel kunnugt. Þann 11. september nk. munu for- svarsmenn Eyþings funda með Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, inn- anríkisráðherra, vegna málsins. Akureyri frábrugðin öðrum Geir segir að Akureyri, og þá Eyþing, sé frábrugðin öðrum landshlutasamtökum vegna þess að almenningssamgöngur í bænum þurfa að taka mið af bæjum í allar áttir frá Akureyri. „Akureyri er miðdepillinn í allar áttir á strjál- býlu svæði og erfitt er að fá megn- ið af íbúum til þess að nota strætó. Það er hins vegar mun auðveldara á Vesturlandinu, Suðurlandinu og á Reykjanesi þar sem stór hluti fólks sækir sér vinnu suður. Það sem við erum að benda á núna er að þessi þróunarkostnaður þarf að vera sá sami hjá okkur eins og hjá hinum,“ segir Geir. Hann telur að rekst- urinn ætti að geta gengið vel ef ríkið mætir þessum kröfum sam- takanna. Ef ekki, telur hann að sveitarfélögin þurfi að taka á sig háar upphæðir í lok árs og segir hann óásættanlegt fyrir sveit- arfélögin að taka við verkefnum af ríkinu sem þau þurfa svo sjálf að leggja út fleiri milljónir fyrir. „Ef þetta fer þannig að ríkið getur ekki komið að þessu þá er hljóðið í flest- um sveitarstjórnarmönnum hér fyr- ir norðan það að þá munum við hreinlega skila verkefninu aftur til ríkisins. Ég er þó bjartsýnn á framhaldið,“ segir Geir. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Til allra átta Strætó á leið til Egilsstaða frá Akureyri í gær. Stoppistöðin er við menningarhúsið Hof á Akureyri. Eyþing vill fá 10 millj- óna króna yfirdrátt  Rekstur almenningssamgangna erfiður fyrir norðan Sunna Sæmundsdóttir sunnasaem@mbl.is Farsímaþjónusta hefur hækkað samfellt frá því í lok árs 2011 og er nú um 23% dýrari en fyrir tveimur árum, þar af nemur hækkunin það sem af er þessu ári ríflega 10% samkvæmt verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ. Netþjónusta hefur einnig hækkað í verði og er nú tæplega 16% dýrari en í júlí 2011. Heimilissímaþjónusta hefur hækkað um tæplega 8% á sama tímabili. Í tilkynningu verðlagseftirlitsins gagnrýnir ASÍ fjarskiptafyrirtækin fyrir að hafa ekki sýnt aðhald í verðlagsmálum líkt og sammælst var um við endurskoðun kjarasamninga í upp- hafi árs. Hrannar Pétursson, fjölmiðlafulltrúi Voda- fone, segir gagnrýni ASÍ byggjast á misskiln- ingi, þar sem tölurnar séu byggðar á tölum frá Hagstofunni, sem skoði ekki raunverulegan kostnað fólks af farsímanotkun og taki þannig ekki mið af ódýrari áskriftarleiðum. Hann seg- ir að einungis sé horft á mínútuverð fyrir hefð- bundna farsímanotkun og fáir viðskiptavinir velji slíka áskriftarleið. Hann segir hækkun á mínútuverði skýrast af hækkun á ýmsum rekstrarkostnaði og hagræðingu til þess að tryggja ódýrari áskriftarleiðir. Þá segir hann hækkanir á internetþjónustu helst skýrast af verðhækkun á gagnaflutningum til og frá land- inu. Önnur fjarskiptafyrirtæki taka undir gagnrýni Hrannars og segir Liv Bergþórsdótt- ir, upplýsingafulltrúi Nova, að ASÍ þurfi að taka tillit til breyttrar notkunar farsímans og segir meðalreikning viðskiptavina Nova ekki hafa hækkað sem þessu nemi. Ef hins vegar er litið einungis til hækkunar á mínútugjaldi hjá fjarskiptafyrirtækjunum, líkt og verðlagskönnunin gerir ráð fyrir, má sjá að mínútugjaldið hjá fyrirtækinu Hringdu er það eina sem ekki hefur hækkað í verði á umræddu tímabili. Farsímaþjónusta hækkar í verði  Könnun ASÍ sýnir 23% hækkun á tveimur árum  Fjarskiptafyrirtæki segja tölur ASÍ byggjast á misskilningi  Segja fáa viðskiptavini greiða hefðbundið mínútugjald sökum ódýrari áskriftarvalkosta Morgunblaðið/Brynjar Gauti Verðhækkun Farsímaþjónusta er dýrari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.