Morgunblaðið - 20.08.2013, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 232. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Búið að slá 23 milljónir af húsinu
2. Nafn konunnar sem lést í bruna
3. Charlie Sheen á Austurvelli
4. Þyngdist um 20 kíló síðasta …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sigurlaugur Ingólfsson sagnfræð-
ingur leiðir fólk um Viðey kl. 19.30.
Hann mun fjalla um klaustrið í Viðey,
frá upphafi þess til endaloka en á
klausturtímanum var Viðey mikið
menningarsetur.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fræðsluganga um
klaustrið í Viðey
Uppselt er á
sérstaka heims-
forsýningu á One
Direction 3D: This
Is Us í London í
dag klukkan fjög-
ur að íslenskum
tíma. Smárabíó
sýnir beint frá
herlegheitunum
og þurfti að bæta við öðrum bíósal
vegna eftirspurnar. Það dugði ekki til
og aftur er uppselt.
Eftirspurn eftir
One Direction mikil
Latínsextett bassaleikarans Tóm-
asar R. Einarssonar spilar nýtt og
frumsamið efni eftir hljómsveitar-
stjórann á tónleikum í Fríkirkj-
unni í kvöld klukkan átta
og eru tónleikarnir
hluti af Jazzhátíð
Reykjavíkur. Tómas
hefur haldið úti
latínsveit í rúman
áratug og spilað
með henni
heima og víða
erlendis.
Léttir djasstónar
í Fríkirkjunni
Á miðvikudag Sunnan 8-13 m/s og rigning S- og V-lands, en hæg-
ari og þykknar upp á NA-verðu landinu og dálítil rigning þar seinni-
partinn. Hiti 7 til 14 stig.
VEÐUR
Þór og Fylkir gerðu 2:2-
jafntefli í kaflaskiptum leik
á Akureyri í Pepsideild karla
í knattspyrnu í gærkvöld.
Fylkismenn eru því áfram
tveimur stigum fyrir ofan
Þór en bæði lið eru áfram í
fallbaráttunni og eru Þórs-
arar þremur stigum frá fall-
sæti. Fylkir hafði unnið
fjóra leiki í röð fyrir leikinn í
gær en Þórsarar hafa ekki
unnið í síðustu sex deild-
arleikjum sínum. » 2
Sigurgöngu Fylkis
lauk á Akureyri
„Maður heyrir menn oft tala um að
eitthvað sé ólýsanlegt þegar þeir
vinna titla. Þetta er þannig.
Þetta var alveg ólýs-
anlegt. Maður hafði
ímyndað sér í gegnum
árin hvernig væri að
vinna eitthvað,“ segir
Framarinn Daði
Guðmundsson,
sem alist hef-
ur upp hjá
Safamýr-
arliðinu og
leikið í tæp 16 ár
með meistaraflokki
en aldrei unnið tit-
il fyrr en á laug-
ardaginn að
Fram varð bik-
armeistari eftir
24 ára bið. »4
Eyðimerkurgöngu Daða
með Fram er lokið
Mikil dramatík átti sér stað á Hólms-
velli í Leiru á sunnudaginn þegar GKG
og Keilir léku til úrslita í 1. deild
kvenna í sveitakeppni GSÍ. Ekki nóg
með að síðasta viðureignin færi í
bráðabana til að fá fram úrslit, heldur
vannst hún, og þar með úrslitaleik-
urinn, á kærumáli. GKG fagnaði sigri
en Keiliskonur voru farnar þegar GKG
tók á móti verðlaunum sínum. »1
Mikil dramatík hjá
konunum í Leirunni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Lára Halla Sigurðardóttir
larahalla@mbl.is
„Keppnirnar eru hvati fyrir eigend-
urna til að temja hundana og þá
fáum við betri hunda,“ segir Sverr-
ir Möller, formaður Smalahunda-
félags Íslands. Næstu helgi fer
fram landskeppni Smalahunda-
félags Íslands á Fjalli á Skeiðum.
Smalahundarnir og eigendur þeirra
fara í gegnum braut þar sem þeir
takast á við verkefni og þannig er
besti smalahundurinn fundinn.
Þarf að hafa stjórn á fénu
„Hundurinn þarf að geta sýnt að
hann geti sótt fé í 300 til 400 metra
fjarlægð,“ segir Sverrir. Því næst
rekur hundurinn kindurnar að
smalanum eins beina leið og mögu-
legt er. Á leiðinni fer hann í gegn-
um hlið með féð og þurfa kind-
urnar að fara réttum megin að
smalanum. Hundurinn þarf að geta
stoppað féð af, skipt hópnum í
tvennt, rekið það stutta vegalengd
og sameinað aftur.
Aðspurður segir Sverrir að flest-
ir hundarnir sem mæta til keppni
ráði vel við brautina en vitanlega
leysi þeir verkefnin misvel. „Í
keppninni er í grunninn unnið með
það sem við gerum heima og bænd-
ur ættu að þekkja,“ segir Sverrir.
Á mótinu er keppt í þremur
flokkum; unghundaflokki, meist-
araflokki og síðan flokki fyrir
óvana keppendur. Í þeim síðast-
nefnda eru hundar sem koma nýir
inn í keppnina til að spreyta sig og
takast þeir á við sömu þrautir og
unghundarnir en hundarnir í
þeim flokki eru þriggja ára
og yngri.
Á flestum bæjum
Hunda má finna á
flestum sveitabæjum hér
á landi en ekki eru þeir
allir jafnnytsamlegir þeg-
ar fé er rekið af fjalli. Að sögn
Sverris var lítið um það áður fyrr
að bændur ættu góða smalahunda
en á síðustu tuttugu árum, eða eftir
að Smalahundafélag Íslands var
stofnað, hafa fleiri náð tökum á
þjálfun smalahunda.
„Það er gagnslaust að fara með
hunda í smalamennsku nema þeir
hafi fengið kennslu, bæði hund-
urinn og bóndinn,“ segir Sverrir og
bætir við að ákveðin tæknileg atriði
þurfi að hafa í huga við smölunina.
„Ef þú kannt ekki á rafmagnstækin
á traktornum kemur hann ekki að
neinu gagni.“
Haldin eru nokkur námskeið á
ári hér á landi sem eigendur smala-
hunda geta sótt og lært að þjálfa
hunda sína.
Hvati til að temja hundana
Þurfa að
stjórna fénu í
gegnum braut
Ljósmynd/Guðrún S. Kristjánsdóttir
Í keppni Á myndinni má sjá Sverri Möller ásamt hundinum Prins frá Daðastöðum og nokkrum kindum. Myndin er
tekin á landskeppni smalahunda og sýnir hún einnig nokkrar kindur sem smalahundurinn þarf að stjórna.
Hundarnir sem notaðir eru til
smalamennsku hér á landi eru
flestir af tegundinni border collie.
Hún á ætt sína að rekja til Eng-
lands og Skotlands. Teg-
undin nýtist vel til smala-
mennsku vegna hraða
og snerpu í hreyfingum.
Hundurinn sækist eftir
að halda fé í hópi og rek-
ur það gjarnan í átt að
húsbónda sínum.
Border collie-hundar hafa einnig
verið notaðir sem fíkniefnahundar,
snjóflóðahundar og aðstoðar-
hundar fyrir fatlaða eða hreyfi-
hamlaða. Hundarnir eru sagðir
greindir og mjög duglegir.
Þeir eru meðalstórir og létt-
byggðir og búkurinn langur og
spengilegur. Höfuðið er langt og
eyrun standa að hluta. Algengasti
litur border collie er svartur og
hvítur.
Snöggur og snarpur
SÆKIST EFTIR AÐ HALDA FÉ Í HÓPI
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan og norðvestan 5-10 m/s, skýjað með
köflum og þurrt að kalla, en 8-15 og rigning NA-lands fram eftir
degi. Léttir til SA-lands. Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt.