Morgunblaðið - 20.08.2013, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2013
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég ólst upp við mikla úti-vist í Sviss og allir fjöl-skyldumeðlimir í minnifjölskyldu áttu gönguskó.
Þannig var það líka hjá öðrum fjöl-
skyldum, því þar þykir sjálfsagður
hluti af fjölskyldulífi að ganga á fjöll
og stunda hverskonar útiveru,“ segir
Arianne Gaehwiller sem hefur búið á
Íslandi undanfarin sextán ár og er
óþreytandi að fara með börnin sín út
að gera eitthvað skemmtilegt, allan
ársins hring. Hún á þrjú börn með ís-
lenskum manni sínum og hún leggur
mikla áherslu á að ala börnin upp við
útivist og hreyfingu. „Það er hægt að
gera svo margt skemmtilegra en að
hanga í sófanum yfir tölvu eða sjón-
varpi. Það er ótalmargt sem foreldrar
geta gert með börnum sínum utan-
dyra. Mér finnst skipta máli að kynna
fyrir þeim sem flest og ólíkust svið,
því þannig geta þau fundið út hvað
hentar þeim og þau geta valið sjálf
þegar þau verða fullorðin hvað þau
vilja stunda. Við förum mikið á
gönguskíði, svigskíði, í fjallgöngur, á
hestbak, í jöklaferðir og í hella-
skoðunarferðir. Það er ekkert mál að
aðlaga sig að börnum í svona ferðum,
til dæmis gengum við Fimmvörðu-
háls á þremur dögum, gáfum okkur
góðan tíma og nutum náttúrufegurð-
arinnar fyrir vikið,“ segir Arianne
sem býður pabba sínum árlega heim
til Íslands í hálendisgönguferðir með
sér og barnabörnunum. „Við höfum
meðal annars gengið Laugaveginn
með honum, gamla Kjalveg og
Strútsstíg.“
Á hlaupahjólum í borgum
Arianne býður börnum sínum
líka í heimatilbúnar ævintýraferðir til
útlanda. „Í sumar dvöldum við í pínu-
litlu fjallaþorpi í svissnesku Ölpunum
Útivist á að vera
hluti af æsku barna
Arianne segir foreldra hafa ótal möguleika til að gera eitthvað skemmtilegt utan-
dyra með börnum sínum. Það kostar t.d. ekkert að fara í hellaskoðunarferðir.
Reiðtúr Arianne og börnin. F.v. Júlía 9 ára, Andreas 12 ára, Senía 14 ára.
Klifur Arianne nýtur þess að vera í ísklifri, hér tekst hún á við Grafarfoss.
Hjólreiðamenningin hér á landi fer
ört vaxandi og ýmsir hópar að
spretta upp hér og þar. Hjólreiða-
félagið Hjólamenn er einn þeirra en
það er opinn félagsskapur þeirra
sem hafa áhuga á hjólreiðum og
tengdu efni. Félagið er starfrækt
undir UMSK og hefur aðsetur sitt í
Kópavogi. Félagið er til að mynda
með reglulegar æfingar, heldur
keppnir og stendur fyrir öðrum við-
burðum sem standa hjólreiðum
nærri.
Félagið heldur úti heimasíðunni
hjolamenn.is en þar má finna upp-
lýsingar um alla helstu hjólaviðburði
og úrslit þeirra, ljósmyndir, fréttir
og tengla, auk þess sem þar má
finna ýmsan hjólavarning til sölu.
Félagið heldur einnig út fésbók-
arsíðu en hátt í þrjú hundruð manns
eru hluti af henni.
Vefsíðan www.hjolamenn.is
Morgunblaðið/Eggert
Félag Hjólreiðafélagið Hjólamenn stendur meðal annars fyrir æfingum.
Félagsskapur hjólreiðamanna
Þrátt fyrir það hversu heilsusam-
legt það er að synda þá þykir mörg-
um það einstaklega hvimleitt. Aðrir
basla við að læra sundtökin sem
gjarnan eru erfiðari en þau líta út
fyrir að vera. Síðastliðin tuttugu ár
hefur Steven nokkur Shaw einbeitt
sér að því að þróa nýja sundtækni
með það að markmiði að umbreyta
upplifun fólks af sundi og hvernig
því líður í sundlauginni. Sundaðferð
hans hefur heillað fólk í Bandaríkj-
unum og Evrópu síðustu áratugi.
Mun hann kenna hana í Laugardals-
laug 25. ágúst n.k. Skráning og
nánar: info@artofswimming.com
Endilega...
... lærðu ný
sundtök
Morgunblaðið/Kristinn
Sund Kennt verður í Laugardalslaug.
-
til
x
Landskeppni í götuhjólreiðum
hefst næstkomandi föstudag en
um er að ræða landskeppni á milli
Íslands og Færeyja í götuhjólreið-
um. Keppnin samanstendur af
þremur dagleiðum en einnig verður
hægt að keppa í stökum dagleið-
um. Boðið verður upp á meist-
araflokk karla og kvenna og ung-
lingaflokk. Fyrsta dagleiðin er
þrjátíu kílómetra löng en sú braut
er staðsett í Vallarhverfi í Hafn-
arfirði. Á laugardaginn verður síð-
an hjólað frá Þingvöllum, um
Grímsnes og svo endað aftur á
Þingvöllum og er sú leið sextíu og
átta kílómetrar í heildina. Á sunnu-
daginn verður síðan hópstart í Blá-
fjöllum og eru vegalengdirnar mis-
langar eftir flokkum. Allar eiga þær
það þó sameiginlegt að innihalda
talsverða hækkun. Skráning fer
fram inn á hjolamot.is.
Landskeppni í götuhjólreiðum fer fram um næstu helgi
Ísland etur kappi við Færeyjar
Morgunblaðið/Ómar
Hjól Keppnin fer m.a fram í Hafnarfirði,
Bláfjöllum og á Þingvöllum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.