Morgunblaðið - 20.08.2013, Blaðsíða 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2013
Margir fagna því að
augu manna eru að
opnast fyrir því hversu
mikilvægt það er að
byggð haldist sem víð-
ast í landinu og þar á
meðal Þingvallasvæð-
inu sem ég kalla svæðið
umhverfis Þingvalla-
vatn, Sog og nágrenni.
Svæði sem þessi
verða snauð án mann-
lífs og athafna, þættir sem ferða-
menn og fleiri sækjast eftir að upplifa
þegar farið er um slík svæði, sam-
anber og við Mývatn.
Einnig hefur vaknað áhugi að end-
urbyggja sögufrægar byggingar og
vernda gamlar heimildir/minjar á
svæðinu og víðar á Suðurlandi.
Þar má t.d. nefna áhuga á að
byggja hina stæðilegu miðaldakirkju
í Skálholti.
Ég hefði vilja sjá uppbyggingu á
biskupssetrinu í heild til forna til
söguvörslu um hina fornu byggð sem
þar var.
Byggingarnar þurfa þá að vera á
hentugum stað nokkuð fjærri núver-
andi byggingum.
Í byggingunum síðan hafðar uppá-
búnar gínur í klæðum staðarfólks
fyrrum, þ.e. svipað og gert er í sögu-
safninu í Perlunni, sem og tæki og tól
frá fornu fari.
Síðan færu leikarar í hlutverk
biskupa og staðarfólks þar inn á milli
með hesta og annan búnað.
Einnig hefur vaknað áhugi að
byggð verði upp þingbúð á Þingvöll-
um með þeim búnaði sem þinghöfð-
ingjar höfðu til afnota
við þinghaldið.
Sami háttur hafður á
og í Skálholti varðandi
umgjörð og kynningu.
Slíka staði myndi
fjöldi ferðamanna
sækja vegna söguáhuga
hér á landi sem erlendis
og greiða að aðgangs-
eyri með glöðu geði og
skapa með því fjölda
starfa t.d. fyrir fólk á
viðkomandi svæðunum.
Ef brúin yfir Öxará
verður endurbyggð, þá hef ég lagt til
að gegnsætt gler verði haft í brúar-
gólfinu, að hluta t.d. 40-50 cm. breitt,
hert gler þvert yfir brúargólfið á fjór-
um til fimm stöðum
Með því myndi fólk sem fer yfir
brúna ná meiri tengingu við iðandi
tærvatnið í ánni á þessum sögufræga
og magnþrungna stað.
Brúarstólparnir síðan klæddir
hraunskífum og múrað á milli og
handrið haft úr stáli og tré.
Mér fannst það ansi áhugavert á
síðustu Þingvallahátíð þegar gengið
var eftir Almannagjá að heyra lág-
væra tóna frá fornu fari líða frá
hamrabeltinu dulúðuga, hreint sagt
seiðmagnað í kvöldkyrrðinni.
Hugsanlega má gera slíkt oftar?
Snyrtilegt burstalaga hótel á
heima á Þingvöllum, t.d. á gamla Val-
hallarreitnum eða á völlunum fyrir
neðan Öxarárfoss, þar sem fólk getur
fengið sér kaffi og léttar veitingar
sem og aðstaða til að taka á móti
þjóðhöfðingjum og halda vissa fundi
á vegum Alþingis.
Við sjáum t.d. hversu Þingvalla-
bærinn nýtur sín vel og Þingvalla-
kirkja, sér í lagi eftir að lagfæring fór
fram á görðunum umhverfis staðinn
og svæðið upplýst með afar snyrti-
legum hætti.
Bent hefur verið á að áhugavert
væri að koma upp sögusetri á hent-
ugum stað við Þingvallavatn.
Þar verði saga svæðisins kynnt í
máli og myndum þ.e. af lífsbaráttu og
hefðum fólks þar um aldir, saga ísald-
arurriðans sem svamlaði ægistór og
kröftugur um bládýpi Þingvallavatns
og Sogslaxins ægivaxna og ýmislegt
fleira.
Svæðið hefur svo margbrotna sögu
að geyma, sögu og heimildir sem ekki
mega falla í gleymsku fyrir komandi
kynslóðir.
Á svæðið sóttu t.d. Skálholtsbisk-
upar matarforða sinn að hluta með
veiði á murtu og urriða, þótt veið-
arfærin væru ekki stórtæk úr vefstól
biskups.
Fróðleg saga sem vert er að koma
til kynningar á ný, t.d. í nefndu setri.
Sem betur fer hafa verið teknar
saman nokkrar heimildir/bækur um
svæðið og er ein slík væntanleg á
árinu um Grafning og Sogsvirkjanir.
Nú er svo komið að fólk sem fer
um svæðið umhverfis Þingvallavatn,
Úlfljótsvatn og Sog veit ekki að víða á
svæðinu var nokkuð fjölmennt sam-
félag fólks og býla.
Verði ekkert úr nefndu sögusetri,
og hvort sem er, þá er nauðsynlegt að
þessir staðir verði merktir sem og
aðrir þekktir staðir/minjar á svæðinu
með myndum og kynningu í stuttu
máli.
Það sama þarf að gera í auknum
mæli í þjóðgarðinum á Þingvöllum
t.d. varðandi gömlu býlin í hrauninu
og víðar. Þjóðgarðsnefnd tók vel í þá
ábendingu 2011.
Í dag hef ég verulegar áhyggjur af
silfurbjarta og sérstæða urriðastofn-
inum í Þingvallavatni vegna að-
stæðna á hrygningarsvæði hans.
Um þann þátt mun ég skrifa nánar
síðar. Í ofanílag er stunduð rányrkja
nær allt árið á hrygningarurriða víða
í vatninu. Veiðimennska sem ekki á
að þekkjast þarna.
Hreint út sagt döpur saga eftir
langa baráttu okkar áhugamanna/
bænda og góðra styrktaraðila allt frá
1973, að byggja upp urriðastofninn í
vatninu á ný.
Ég heyrði fyrir nokkru áherslu að
rétt væri að friða mink og ref á Þing-
vallasvæðinu. Þeir sem til þekkja vita
hversu minkurinn getur verið mikill
skaðvaldur gagnvart öllu fuglalífi og
er refurinn enginn eftirbátur í þeim
efnum. Sennilega hefur minkurinn
verið meiri skaðvaldur en menn
héldu í að laska Öxarárstofn urriðans
sem og í öðrum ám við vatnið.
Fjölskrúðugt fuglalíf viljum við
halda í á Þingvallasvæðinu sem víðar
og að uppbygging á urriðastofninum
verði ekki raskað á ný sem og byggð
ekki meira en orðið er á svæðinu,
frekar efld með snyrtilegum býlum.
Slíkt mun gefa svæðinu aukið gildi
og betri ásýnd þótt hefðbundinn bú-
skapur eflist þar vart á ný nema með
vissum hliðargreinum sem henta
svæðinu.
Hugleiðingar um Þingvelli, Skálholt og nálæg svæði
Eftir Ómar G.
Jónsson » Svæðið hefur svo
margbrotna sögu að
geyma, sögu og heim-
ildir sem ekki mega falla
í gleymsku fyrir
komandi kynslóðir.
Ómar G. Jónsson
Höfundur er fulltrúi og áhugamaður
um Þingvallasvæðið og nærsveitir.
Bridsfélag eldri
borgara í Hafnarfirði
Vetrarspilamennskan byrjaði
þriðjudaginn 13. ágúst og var spilaður
Mitchell tvímenningur með þátttöku
30 para. Meðalskor var 312 og efstu
pör voru:
NS
Bjarnar Ingimars - Bragi Björnsson 384,2
Erla Sigurjónsd. - Jóhann Benediktss. 366,8
Ragnar Björnsson - Óskar Karlsson 366,1
Pétur Antonsson - Örn Einarsson 350,7
AV
Friðrik Jónss. - Jóhannes Guðmannss. 432,7
Óskar Ólafsson - Hrólfur Gunnarss. 379,3
Stefán Ólafss. - Skarphéðinn Lýðss. 334,9
Anton Jónsson - Ólafur Ólafsson
Skorið hjá Friðrik og Jóhannesi var
einkar glæsilegt og samsvarar það
69,3%.
Föstudaginn 16. ágúst mættu 28 pör
og spilaður var Mitchell tvímenningur.
Meðalskor var 312 og bestum ár-
angri náðu:
NS
Bjarnar Ingimars - Bragi Björnsson 395,6
Jón Sigvaldason - Katarínus Jónss. 350,1
Sæmundur Björnss. - Sverrir Jónss. 348,1
Erla Sigurjónsd. - Jóhann Benediktss. 343,7
AV
Guðl. Ellertss. - Friðrik Hermannss. 392,1
Óskar Ólafsson - Hrólfur Gunnarss. 351,7
Jóhannes Guðmannss. - Friðrik Jónss. 347
Ólafur Ingvarsson - Örn Jónsson 337,8
Bridsfélag eldri borgara í Hafnar-
firði spilar á þriðjudögum og föstu-
dögum. Spilastaður er Flatahraun 3
(Hraunsel) og byrjar spilamennska
stundvíslega kl. 13. Keppnisstjóri er
Sveinn Rúnar Eiríksson.
Félag eldri borgara Stangarhyl
Fimmtudaginn 15. ágúst var keppt
í brids hjá Bridsdeild Félags eldri
borgara, Stangarhyl 4, Reykjavík.
Spilaður var tvímenningur á 11 borð-
um. Meðalskor 216 stig.
Efstir í N-S:
Jón Þ. Karlsson - Björgvin Kjartanss. 252
Ægir Ferdinandss. - Helgi Hallgrs. 250
Helgi Samúelsson - Sigurjón Helgas. 247
Jón Lárusson - Ragnar Björnsson 227
A-V
Ólafur Ingvarsson - Jón Hákon Jónss. 259
Björn E. Pétursson - Höskuldur Jónss. 255
Óli Gíslason - Magnús Jónsson 231
Guðjón Eyjólfss. - Sigurður Tómass. 230
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Komdu og gerðu frábær kaup!
LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK / SKEIFAN 11
VERSLANIR UM LAND ALLT
samsungsetrid.is
www.ormsson.is