Morgunblaðið - 20.08.2013, Side 8

Morgunblaðið - 20.08.2013, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2013 Meirapróf Næsta námskeið hefst 21. ágúst 2013 Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737 Borgaryfirvöld keppast við aðhrekja flugvöllinn úr Vatns- mýrinni og vilja á næstunni sam- þykkja skipulag sem gerir ráð fyrir að hann fari smám saman á brott næsta ára- tuginn.    Þó er augljóst aðflugvelli flytja menn ekki í bútum.    Jafnaugljóst er að Reykjavíkur-flugvöllur er mikilvægur Reykjavík og landinu öllu.    Um þetta snýst félag semstofnað var nýlega og vef- síða sem það hefur sett upp, www.lending.is.    Þar eru nefnd ýmis rök fyrirmikilvægi Reykjavík- urflugvallar, svo sem þessi:    Um 6-700 sjúkraflug koma ár-lega til Reykjavíkur með sjúklinga. Margir fara beint inn á skurðarborðið og eiga fluginu líf- ið að launa.“    Vegna breytilegra vinda oglandslags er flugvöllur í Vatnsmýri raunhæfasti og örugg- asti kosturinn í flugvallarmálum höfuðborgarinnar. Um það eru allir sérfræðingar sammála.“    Vatnsmýrin er mikilvægt at-vinnusvæði á annað þúsund einstaklinga sem byggt hafa upp myndarlegan flugiðnað á Ís- landi.“    Þegar þetta er haft í hugakemur ekki á óvart að undir- skriftalistinn skuli hafa tekið flugið strax fyrsta sólarhringinn. Mikill stuðningur við flugvöll STAKSTEINAR Veður víða um heim 19.8., kl. 18.00 Reykjavík 11 skýjað Bolungarvík 4 rigning Akureyri 11 skýjað Nuuk 8 léttskýjað Þórshöfn 11 skýjað Ósló 20 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 skýjað Stokkhólmur 21 heiðskírt Helsinki 18 léttskýjað Lúxemborg 20 léttskýjað Brussel 20 heiðskírt Dublin 17 skýjað Glasgow 17 léttskýjað London 22 heiðskírt París 22 heiðskírt Amsterdam 20 léttskýjað Hamborg 16 skúrir Berlín 21 skýjað Vín 30 skýjað Moskva 22 heiðskírt Algarve 28 heiðskírt Madríd 37 léttskýjað Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 30 léttskýjað Róm 30 léttskýjað Aþena 30 heiðskírt Winnipeg 23 skýjað Montreal 22 léttskýjað New York 25 heiðskírt Chicago 26 léttskýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 20. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:36 21:27 ÍSAFJÖRÐUR 5:29 21:44 SIGLUFJÖRÐUR 5:12 21:27 DJÚPIVOGUR 5:02 20:59 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Vegna strandveiða fyrstu þrjá mán- uði sumarsins hefur Fiskistofa af- greitt tæplega 700 mál vegna um- framafla. Innheimtar voru rúmlega 15,3 milljónir króna í ríkissjóð, sem samsvarar því að andvirði 55 tonna þorskafla renni í VS-sjóðinn. Eflaust vildi margur strandveiðikallinn að þessi upphæð væri komin inn á bankareikninginn! Miðað er við að meðalverð á þorski úr strandveiðum í sumar hafi verið 270-290 krónur á kíló á fiskmörkuunum. 674 bátar hafa landað strandveiðiafla í sumar. Málunum hefur fjölgað eftir því sem liðið hefur á sumarið. Þau voru 154 í maí og sektirnar tæplega 2,9 milljónir. Málin fóru í 219 í júní og sektir námu tæplega 4,2 milljónum. Í júlímánuði voru málin 320 og sekt- irnar námu tæplega 8,3 milljónum. Samkvæmt reglum um strand- veiðar er eingöngu heimilt að draga 650 kg, í þorskígildum talið, af kvóta- bundnum tegundum í hverri veiðiferð og skal öllum afla landað í lok veiði- ferðar. Þorskígildi miðast við slægð- an fisk. Á tímabilinu frá byrjun maí og til ágústloka er heimilt að veiða á handfæri allt að 8.600 lestir af ós- lægðum botnfiski á strandveiðunum. Þessar veiðar eru nú langt komn- ar og var síðasti dagur á svæði B, frá Norðurfirði til Grenivíkur, fimmtudagurinn 8. ágúst og á svæði A, frá Arnarstapa til Súðavíkur, þriðjudagurinn 13. ágúst. Talsvert er enn óveitt á Austur- og Suður- svæðum. Ríkið drjúgt á strandveiðum  Um 15,3 milljónir króna innheimtar vegna umframafla  Flest mál í júlímánuði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Smábátar á Akureyri Strandveiðum er lokið á Norður- og Vestursvæðum. Bæjarráð Ísafjarðarbæjar mótmælir þeim ásetningi sjávarútvegsráð- herra að við setningu nýrra aflahlut- deilda í úthafsrækju verði eldri afla- hlutdeildir látnar ráða að 7/10 hlutum en veiðireynsla síðustu þriggja ára að 3/10 hlutum. Álykt- unin hefur verið send ráðherrum og þingmönnum Norðvesturkjördæmis. Í ályktuninni segir ennfremur að „nær væri að hlutföllin væru þver- öfug ef nauðsynlegt er talið að fella slíkan óskiljanlegan Salómonsdóm. Með þessari ákvörðun er fótunum kippt undan rækjuvinnslu í Ísafjarð- arbæ, en hún hefur verið vaxt- arbroddur undanfarin ár og ljós punktur í þeim efnahagsörðug- leikum sem byggðir Ísafjarðarbæjar hafa glímt við um langa hríð. Að óbreyttu getur þetta leitt til þess að 100 manns, eða meira en 1% íbúa á Vestfjörðum muni missa vinnuna.“ Óttast að 100 manns geti misst atvinnu vestra Færaveiðar smábáta á makríl hafa gengið nokkru verr í ár en væntingar voru um. Mikill áhugi er fyrir veiðunum sem sýnir sig best á því að í fyrra stunduðu 17 bátar veiðarnar en nú hafa 84 bátar landað. 1.914 tonn hafa veiðst það sem af er, en heildar- aflinn í fyrra varð 1.100 tonn. Í ár er heimilt að veiða 3.200 tonn af makríl á króka. Gott skot gerði í Steingríms- firði í byrjun mánaðar, en þrátt fyrir að þar séu enn miklar torf- ur er veiðin afar dræm þessa dagana. Segja má að flotinn sé á vaktinni og bátar fljótir á þá staði þar sem einhver veiði er, segir á vef smábátaeigenda. Floti á vaktinni DRÆM MAKRÍLVEIÐI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.