Morgunblaðið - 20.08.2013, Side 15

Morgunblaðið - 20.08.2013, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2013 VIÐ EIGUM 17 ÁRA AFMÆLI Fjöldi góðra tilboða í gangi HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 9:30-18, LAUGARDAGA: 11-14 Er ekki kominn tími á sjónmælingu? TRAUST OG GÓÐ ÞJÓNUSTA Í 17 ÁR „Þetta gerist hraðar en við þorðum að vona,“ segir Friðrik Pálsson hót- elhaldari og annar formanna félags- ins Hjartað í Vatnsmýrinni. Félagið hóf undirskriftasöfnun þann 16. ágúst þar sem skorað er á Reykjavík- urborg og Alþingi að tryggja öllum landsmönnum óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar og eru und- irskriftir nú um 25 þúsund talsins. „Við höfum fengið afskaplega já- kvæðar undirtektir og sérstaklega er ánægjulegt hvað fólk er þakklátt fyr- ir að fá tækifæri til þess að tjá skoðun sína með þessum hætti,“ segir Frið- rik og útskýrir ástæðuna fyrir því að farið var af stað með undirskrifta- söfnunina. „Okkur fannst vera ákveðin slag- síða á þessari umræðu, að henni væri stýrt af svolítið þröngum hópi innan borgarkerfisins en með þessum hætti vonumst við til að landsmenn allir fái tækifæri til að sýna skoðun sína.“ Friðrik segir að margir sem skrifi undir hafi áhyggjur af áframhaldandi sjúkraflugi. „En þar að auki eru einn- ig margir sem skrifa undir vegna þess að þeir telja flugvöllinn vera okkar aðalsamgönguæð. Við höfum auðvitað ekki járnbrautir heldur verðum við að reiða okkur á bíla og flugvélar. Síðan eru auðvitað margir Reykvíkingar sem skynja það mjög sterkt að völlurinn sé mikilvægur í atvinnulegu tilliti fyrir borgarbúa. Þessi þrenn rök standa upp úr hjá þeim sem hafa talað við mig.“ Friðrik segir viðbrögðin hafa kom- ið hvaðanæva af landinu. „Við höfum ekki yfirsýn yfir hvaðan þeir eru sem hafa skrifað undir, en þeir sem hafa talað við okkur eru bæði Reykvík- ingar og fólk sem býr annars staðar á landinu.“ bmo@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Undirskriftir Friðrik Pálsson hótelhaldari og Njáll Trausti Friðbertsson flugumferðarstjóri eru formenn félagsins Hjartað í Vatnsmýri. „Gerist hraðar en við þorðum að vona“  Umræðunni stýrt af þröngum hópi Norðmaðurinn Egill Tetli heimsótti í gær Haukadals- skóg við Geysi og Tumastaði í Fljótshlíð en nærri 60 ár eru liðin frá því að hann kom hingað til lands með hópi Norðmanna á vegum Skógræktarfélags Íslands til að gróðursetja í íslenska skógarreiti. Egill, sem er 78 ára, var þá aðeins 19 ára gamall en í frétt Morgunblaðsins frá 21. júní 1955, á 25. afmælisári Skógræktarfélagsins, segir að hópurinn hafi gróðursett um 30 þúsund plöntur í Árnessýslu á tíu dögum. Með Agli í för var meðal annarra Hreinn Óskarsson skógarvörður Skógræktar ríkisins á Suðurlandi en hann segir Norðmanninn hafa verið upp numinn yfir þeim mikla skógi sem blasti við honum. „Hann þvældist dálítið um og sýndi okkur myndir frá því í gamla daga. Þá var svolítið annað útlit á svæðinu en núna,“ segir Hreinn en árið 1955 hafi skógrækt á svæðinu verið nýhafin og lítill gróður annar en lágt kjarr sett svip sinn á umverfið. Hreinn segir að líklega hafi hópurinn komið hingað eftir að Hákon Bjarnason skógræktarstjóri setti sig í samband við sendiherra Norðmanna á Íslandi, Torgeir Anderssen-Rysst, sem var mikill áhugamaður um skóg- rækt. „Hann hafði líklega forgöngu um það í Noregi að tengja saman skógræktarfélög þar og á Íslandi.“ Gróðursetti í kjarri og heimsótti skóg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.