Morgunblaðið - 20.08.2013, Síða 24

Morgunblaðið - 20.08.2013, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2013 Frá því að ég man eftir mér hefur setn- ingin „við ætlum að skreppa inn í Melgerði“ vakið upp ánægju í huga mínum. Heimili ömmu og afa var fastur punktur í tilveru minni fram á fullorðinsár. Stundirnar með þeim uppi á lofti að horfa á svart hvíta sjónvarpið með popp og Egils djús eru ógleymanlegar. Bíltúrar í Skorradal og á Þingvelli í gamla Fíatinum, og útilegur með tjaldvagninn í eftirdragi. Ég man ekki eftir því að hún amma mín hafi nokkurn tíma byrst sig við ✝ María Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 1. apríl 1922. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 22. júlí 2013. Útför Maríu fór fram frá Bústaða- kirkju 31. júlí 2013. mig, enda leið mér í minningunni alltaf vel í Melgerðinu. Þegar eitthvað bját- aði á í lífinu þá hafði ég ávallt samastað hjá ömmu. Þegar amma flutti svo í Furugerði þá skildi ég enn betur að það var amma Mæja sem var minn fasti punkt- ur. Amma Mæja, amma Bogga, afi Palli og afi Tolli. Allt þetta fólk markaði djúp spor í mína sál og gaf mér ógleymanleg- ar og fallegar minningar. Amma mín, þú ert síðust af ykkur fjórum sem kveður. Kveðjustundin sem við áttum síð- ast er ég hitti þig var mér erfið, en þó er ég svo þakklátur fyrir að hafa fengið að kveðja þig á þann hátt sem ég gerði. Ég elska þig meir en orð fá lýst. Þorvaldur Tolli. María Guðmundsdóttir Komið er að kveðjustund. Vinur minn til margra ára er fallinn frá. Þegar ég kynntist Einari var hann nýfluttur frá Eyjum með fjölskyldu sína. Með okkur tók- ust góð kynni, sem með ár- unum þróuðust í ævilanga vin- áttu. Saman áttum við góðar stundir, eftirminnilegar veiði- ferðir að Selvallavatni og í Baulu. Ekki var alltaf veiðin mikil, en minningarnar eru góðar. Einar og Rósa ræktuðu garðinn sinn af mikilli natni. Þar var beðið eftir vorinu af mikilli eftirvæntingu og öllu fagnað sem kíkti upp úr mold- inni. Þau gerðu garðinn sinn frægan, margir komu til að sjá og skoða, blómin, trén og stein- húsin sem þau gerðu. Allt bar þetta vott mikillar alúðar og snyrtimennsku húsráðenda. Eitt sinn kom ég við hjá þeim og þá sagði Einar „Það voru nú bara 20 kellingar að skoða garðinn hjá okkur í gær“. Eftir að ég flutti frá Stykk- Einar Ragnarsson ✝ Einar Ragn-arsson fæddist í Stykkishólmi 4. febrúar 1932. Hann lést á líknardeild Kópavogs 29. júlí 2013. Einar var jarð- sunginn frá Stykk- ishólmskirkju 9. ágúst 2013. ishólmi töluðum við oft saman í síma. Ég spurði frétta og oftast barst talið að gönguferðum, hans uppáhalds göngu- leið var með sjón- um útundir Hamra. Þá lýsti hann því sem fyrir augu bar. Lýsing- arnar voru svo skýrar og myndrænar, á vorin voru það vorfuglarnir, svo kom krían, þegar haustaði komu stóru síldveiðiskipin sem gnæfðu yfir eyjarnar og voru að fylla sig af síld, og mávarnir og súlan fengu líka nægju sína, ég sá fyrir mér æðarfuglinn í hópum á sundum við eyjarnar. Ég átti þess kost að ganga þessa leið með Einari, við tveir saman, gamlir karlar, hann grannur og léttur á sér, en ég þungur og vegamóður. Þegar við komum út að Hömrum sett- umst við niður og ég fékk að njóta stundarinnar með vini mínum. Hér skilja leiðir að sinni, en ef til vill sitjum við saman og dorgum í Selvallavatni eða horfum saman út á sjóinn frá Hömrum einhvertímann síðar, hver veit. Rósa, Nanna, Ragnar, Haf- þór og Sólveig, tengdabörn og barnabörn, við Inga sendum ykkur innilegar samúðarkveðj- ur við fráfall þessa mæta manns. Höskuldur (Gulli). ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LILJA ÞORGEIRSDÓTTIR frá Mýrum í Villingaholtshrepp, áður til heimilis að Furugerði 1, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju miðvikudaginn 21. ágúst kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Ingibjörg Hrund Björnsdóttir, Þorgeir Björnsson, Vilhelmína Sigurðardóttir, Þórdís Björnsdóttir, Eðvald Möller, Lilja Guðrún Björnsdóttir, Páll Helgi Möller, Gylfi Björnsson, Anna Þóra Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, KOLBEINS ÓLAFSSONAR kaupmanns í Vestmannaeyjum, Kolla á Kletti, sem lést sunnudaginn 11. ágúst og var jarðsunginn laugardaginn 17. ágúst í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til Hjalta Kristjánssonar læknis og alls starfs- fólks á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum. María J. Njálsdóttir, Valgeir Ólafur Kolbeinsson, Sigfríður Konráðsdóttir, Njáll Kolbeinsson, Aðalheiður Einarsdóttir, Dóra Kolbeinsdóttir, Sævar Þórsson, Kolbrún Kolbeinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sonur okkar, unnusti, bróðir, tengda- sonur, mágur og frændi, ÞÓRHALLUR ÞÓR ALFREÐSSON, Funafold 91, Reykjavík, lést af slysförum laugardaginn 10. ágúst. Útför Þórhalls Þórs fer fram frá Grafarvogs- kirkju kl. 13.00 föstudaginn 23. ágúst. Alfreð Eyfjörð Þórsson, Aðalheiður Þórhallsdóttir, Anna Sigríður Sigurjónsdóttir, Þór Árnason, Guðm. Heiðar Ásgeirsson, Siggerður Ólöf Sigurðardóttir, Berglind Alfreðsdóttir, Sigurður E. Levy, Bryndís Alfreðsdóttir, Styrmir Guðmundsson, Árni Viðar Sveinsson, Margrét Sigmundsdóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, REIMAR STEFÁNSSON rafvirkjameistari, Bugðutanga 4, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánudaginn 26. ágúst kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á Krabba- meinsfélag Íslands. Sérstakar þakkir sendum við til starfsfólks deildar 13-E á Landspítalanum fyrir hlýja og góða umönnun. Kristín Árnadóttir, Helgi Reimarsson, Þorbjörg Guðnadóttir, Guðný Reimarsdóttir, Sverrir Tryggvason, Elsa Reimarsdóttir, Leifur Ragnar Jónsson, Árni Reimarsson, Bjarndís Fjóla Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR, Dúna, lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 17. ágúst. Útförin auglýst síðar. Þóra Kristinsdóttir, Árni Ingólfsson, Guðrún Kristinsdóttir, Jóhann Guðmundsson, Erna Kristinsdóttir, Elías Bragi Sólmundarson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, NÖNNU TÓMASDÓTTUR, Blönduósi. Ingibjörg Skúladóttir, Páll Skúlason og fjölskyldur. Ásta var gift móðurbróður okkar, Hauki Péturssyni sem féll frá árið 1999. Við systur eig- um þeim hjónum margt að þakka og viljum við minnast þeirra í fáeinum orðum. Þegar við munum eftir okkur fyrst áttu þau Ásta og Haukur heima á Austurbrún í fallegri, bjartri íbúð þangað sem alltaf var gaman að koma. Seinna byggðu þau sér glæsilegt hús í Byggðarenda. Haukur var bygg- ingameistari og reisti hús af ýmsum stærðum og gerðum á þeim tíma þegar miklar breyt- ingar áttu sér stað í íslensku samfélagi, bjartsýni ríkti og borgin þandist út. Haukur hafði gaman af því að ræða bygginga- mál og pólitík við föður okkar og á kosningadögum mætti hann oft í morgunkaffi, búinn að kjósa, og þá var rætt um svik, horfur og vonir tengdar stjórnun landsins. Haukur var stríðinn og þeir pabbi voru ekki alltaf sam- mála en það gerði umræðurnar bara skemmtilegri og áhuga- verðari. Haukur var stórtækur í sér, greiðvikinn og bóngóður. Þess nutum við systur en fyrir utan rausnarlegar gjafir aðstoðaði hann eina okkar við kaup á fyrstu íbúð og hinar tvær leigðu hjá þeim hjónum í Byggðarenda- num á kjörum sem ekki buðust ✝ Ásta Guð-mundsdóttir fæddist í Eyði- Sandvík í Sandvík- urhreppi, Árnes- sýslu 6. febrúar 1934. Hún lést á Landspítalanum 6. ágúst 2013. Útför Ástu fór fram frá Bústaða- kirkju 15. ágúst 2013. annars staðar. Það var gott að búa í nágrenni við Ástu og Hauk. Breki, sonur Ást- rósar, sem þá var ungur drengur, lagði gjarnan leið sína upp til þeirra, spjallaði, hitti kött- inn Punkt, fékk bjúgu eða hangikjöt hjá Hauki eða ann- að góðgæti. Ásta hafði dálæti á köttum og Punktur, sem þau áttu síðast, var mikill persónu- leiki. Það var alltaf hressandi að hitta Ástu. Hún var hlý í viðmóti og hláturmild og sýndi sannan áhuga á því sem maður var að gera og pæla. Ásta var heima- vinnandi framan af en vann síðar um árabil við símsvörun hjá Rík- isútvarpinu, allt þar til hún hætti sökum aldurs. Haukur féll snögglega frá og eftir það ákvað Ásta að minnka við sig og keypti sér íbúð í Sólheimum sem hún lét gera upp á afar fallegan og skemmtilegan hátt. Ásta hafði fágaðan smekk, var mikil handavinnukona og á heimili þeirra voru margir fal- legir munir og listaverk. Það var notalegt að kíkja í kaffi til henn- ar, spjalla um heima og geima og hlæja saman en því miður gerðum við of lítið af því, þannig gæðastundir vilja verða útundan í amstri hvunndagsins. Ásta og Haukur eignuðust eina dóttur, Hörpu. Maður hennar er Þröstur Guðmundsson og eiga þau tvo drengi, þá Bjarna og Davíð. Fyrir átti Haukur aðra dóttur, Kolbrúnu Helgu og á hún einn son, Hauk Gylfason. Fjölskyldunni sendum við okkar innilegustu kveðjur. Guðbjörg, Kristín og Ástrós. Ásta Guðmundsdóttir ✝ Magnús V.Ágústsson fæddist í Reykjavík 5. júlí 1924. Hann lést í Reykjavík 26. júlí 2013. Foreldrar hans voru Ágúst Jós- efsson vélstjóri, f. 1888, d. 1967, og Vigdís Jósefsdóttir húsfreyja, f. 1902, d. 1987. Magnús gekk í Verzlunarskólann að loknum barnaskóla og fór síðan til Kanada og Bandaríkjanna í Eftirlifandi eiginkona Magnúsar er Halldóra Edda Jóhanns- dóttir, f. 1934 í Reykjavík. Dæt- ur Magnúsar og Halldóru Eddu eru 1) Ásdís, f. 1954, hennar börn eru Ágúst Róbert Glad, f. 1981 og Vigdís Marianne Glad, f. 1987, 2) Arndís, f. 1958, henn- ar börn eru Edda Vigdís Brynj- ólfsdóttir, f. 1987 og Brynjólfur Magnús Brynjólfsdóttir, f. 1990, og 3) Guðrún Dís, f. 1967, henn- ar dóttir er Bryndís Helga Traustadóttir, f. 1995. Útför Magnúsar fór fram frá Garðakirkju 1. ágúst 2013. flugnám. Eftir heimkomu vann hann hjá Svifflug- félagi Íslands, Flugfélaginu Vængjum og Flug- félaginu Þyti. Hann réðst síðan til starfa hjá Loftleið- um 1960 og starfaði þar sem flugmaður og síðan hjá Flug- leiðum sem hleðslu- stjóri og afgreiðslustjóri á Keflavíkurflugvelli þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Tengdapabbi minn fv. var höfð- ingi. Hann var ekki maður mála- miðlana. Annaðhvort var hann með eða á móti. Hans orði gat ég alltaf treyst, hvort sem um var að ræða að við værum sammála eða ekki. Mér þótti og þykir enn óskaplega vænt um þig, kæri tengdapabbi og vinur. Við áttum oft í miklum ágreiningi sem hins vegar endaði alltaf í mjög góðu þar sem okkur tókst alltaf að lenda þeim málum sem okkur greindi á um, annaðhvort með því að við sáum hvor annars sjónar- mið eða við ákváðum einfaldlega að vera ósammála. Hið síðar- nefnda var oftar lendingin en við fórum ávallt sáttir frá þessum rökræðum okkar. Magnús V. Ágústsson var magnaður maður. Hann vissi að mér fannst hann ótrúlega þrjósk- ur en að sama skapi vissi ég að honum fannst það sama um mig. Það er langt síðan við höfum átt góðar rökræður og við þessi tíma- mót sakna ég þeirra en góðar minningar geymi ég um mætan mann sem var ótrúlega ólíkur mér en samt svo ótrúlega líkur. Magnús V. Ágústsson, kæri tengdapabbi. Þú hefur og átt alltaf stórt pláss í mínu hjarta. Ég kann að meta svo margt sem þú gerðir þó sérstaklega hvernig þú tókst á móti dótturdóttur þinni þegar hún kom heim frá Svíþjóð. Ég hlakka til að hitta þig á ný og takast á við þig um þau mál sem okkur greinir á um þarna hinum megin, hvar sem það nú er. Kær kveðja. Þinn vinur og fv. tengdasonur, Trausti. Ungir kynntumst við Magnús því við áttum systur að eiginkon- um. Þau kynni stóðu meðan báðir lifðu, nú er eins og heimurinn hafi minnkað því hann tekur alltaf svip af umhverfi sínu hverju sinni. Vegna starfa sinna var Maggi víðförull, hann heillaðist af bláma hafs og himins og af grænum gróðri jarðar. Hann var mikill sagnamaður sem við fjölskyldan nutum góðs af á góðum stundum. Að ógleymdum ferðalögum okkar Hafdísar með þeim hjónum innan- lands sem erlendis. Vinátta okkar var traust, þó skoðanir okkar hafi ekki alltaf farið saman, en óhætt er að segja að við áttum hvor okk- ar sinn draum. Nú hefur gáski okkar og hlátur horfið, þá gaf hinn mikli smiður mér minninguna um svila minn og samferðamann, það ber að þakka og sendi ég eftirlifandi eiginkonu hans, dætrum og barnabörnum hlýjar kveðjur mínar. Víst er gott að vera hjá vinasveit og grönnum. Og kunna flestar átti á allri byggð og mönnum. (G.A.B.) Einar Magnús Guðmundsson. Magnús V. Ágústsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.