Morgunblaðið - 20.08.2013, Side 27

Morgunblaðið - 20.08.2013, Side 27
prófi 1983, lauk prófi í hjúkr- unarfræði frá HÍ 1987 og MA-prófi í lögfræði frá sama skóla 2008 auk þess sem hún hefur öðlast hdl.- lögmannsréttindi. Þá hefur hún lok- ið 3. stigi í píanónámi og klassískum söng og sótti námskeið í olíumálun við Myndlistarskóla Kópavogs. Á unglingsárum vann Kristín við fiskvinnslu heima á Fáskrúðsfirði. Hún var starfandi hjúkrunarfræð- ingur í u.þ.b. tvo áratugi, lengst af við heilsugæslu á landsbyggðinni, á Egilsstöðum og auk þess á Seyð- isfirði og á Fáskrúðsfirði. Kristín stofnaði og starfrækti kaffihúsið Café Sumarlínu á Fá- skrúðsfirði, ásamt systur sinni, Mar- gréti, á árunum 2002-2006, en þá seldu þær reksturinn. Kristín var fulltrúi hjá sýslu- manninum í Reykjavík 2008-2012 en sl. ár hefur hún starfað sem svið- stjóri fasteignasviðs Þjóðkirkj- unnar. Kristín var skipuð forstjóri Heil- brigðisstofnunar Austurlands frá 1. júlí sl. og mun hefja störf þar 1. sept- ember n.k. og flytur þá aftur á heimaslóðir. Kýs heiðarleika og jákvæðni Þegar kemur að áhugamálum hef- ur Kristín mörg járn í eldinum: „Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja. Fyrir utan vinnuna hverju sinni og lífið sjálft, hef ég áhuga á íþróttum, útivist, tónlist, myndlist og jógafræði. Ég var líkamsrækt- arleiðbeinandi meðfram hjúkr- unarstarfinu í um 10 ára skeið og hef töluvert stundað blak og hlaup und- anfarin ár. Hef gaman af því að glamra á harmónikku og mála í frístundum. Ég hef einnig verið að stúdera jóga undanfarin ár og þau fræði sem liggja til grundvallar jógaiðkun. Í því skyni hef ég tvívegis farið til Indlands. Þessi jógaáhugi varð til þess að ég sótti námskeið í jógakennslu og útskrifaðist sem jóga-kennari í byrjun sumars. Annars er mottóið mitt að leitast við að vera heiðarleg og hreinskiptin í samskiptum, lifa heilbrigðu lífi og hafa jákvæðina að leiðarljósi.“ Fjölskylda Maður Kristínar er Birkir Þór Guðmundsson, f. 22.5. 1964, fram- kvæmdastjóri. Hann er sonur Guð- mundar Hagalínssonar, fyrrv. bónda á Hrauni á Ingjaldssandi, og Guð- rúnar Bjarnadóttur húsfreyju. Þau eru nú búett á Flateyri. Fyrri makar Kristínar eru Helgi Jensson, f. 1962, sýslufulltrúi, og Jón Þórðarson, f. 1954, sveitastjóri. Börn Kristínar eru Högni Helga- son, f. 27.8. 1989, nemi en unnusta hans er Fanney Þórunn Krist- insdóttir, f. 13.3. 1991; Sigurlaug Helgadóttir, f. 3.3. 1992, nemi; Þórð- ur Jónsson, f. 5.11. 1996, nemi. Systkini Kristínar eru Stefán Al- bertsson, f. 5.10. 1954, rafverktaki, búsettur í Reykjavík; Þórhildur Al- bertsdóttir, f. 15.12. 1955, viðskipta- fræðingur, búsett í Reykjavík; Mar- grét Albertsdóttir, f. 8.11. 1959, fé- lagsráðgjafi, búsett í Reykjavík; stúlka f. 17.6. 1965, d. 18.6. 1965. Foreldrar Kristínar: Albert Stef- ánsson f. 26.3. 1928, d. 26.9. 2000, skipstjóri á Fáskrúðsfirði, og k.h., Guðrún Einarsdóttir, f. 24.2. 1931, fyrrv. handavinnukennari og mynd- listarkona á Fáskrúðsfirði, nú búsett í Reykjavík. Úr frændgarði Kristínar Bjargar Albertsdóttur Kristín Björg Albertsdóttir Guðlög Guttormsdóttir frá Svalbarða í Þistilfirði Þorsteinn Kristjánsson útvegsb. í Löndum Þórhildur Þorsteinsdóttir húsfr. á Fáskrúðsfirði Einar Sigurðsson skipa- og húsamíðameistari í Odda á Fáskrúðsfirði Guðrún Einarsdóttir handavinnukennari og myndlistarm. á Fáskrúðsfirði, nú í Rvík Guðrún Ögmundsdóttir húsfr. á Teigarhorni, frá Svínhólum í Lóni Sigurður Einarsson b. á Teigarhorni Kristín Jónsdóttir húsfr. á Hóli Jóhann Erlendsson b. á Hóli á Fáskrúðsfirði Guðfinna Jóhannsdóttir húsfr. á Fáskrúðsfirði Stefán Árnason skipstj. og stýrim. á Fáskrúðsfirði Albert Stefánsson skipstjóri á Fáskrúðsfirði Þórunn Sigurðardóttir húsfr. á Fáskrúðsfirði Árni Árnason sjóm. á Fáskrúðsfirði Afmælisbarnið Dansað á Þingvöllum. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2013 falleg minning á fingur www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind PI PA R\ TB W A • SÍ A • 12 16 6 6 GiftingarhringarMargrét Jónsdóttir skáld-kona fæddist að Árbæ íHoltum í Rangárvallasýslu 20.8. 1893. Foreldrar hennar voru Jón Gunnlaugur Sigurðsson, sýslu- skrifari í Rangárvallasýslu og odd- viti að Hólmgörðum, og Sólveig Jónsdóttir, bústýra í Árbæ í Holtum. Í föðurætt var Margrét náskyld Stephani G. Stephanssyni skáldi, en móðurforeldrar hennar voru Jón Jónsson, b. í Krossavík og k.h., Mar- grét Björnsdóttir húsfreyja. Margrét ólst upp með móður sinni á ýmsum bæjum í Rangárvalla- og Árnessýslu, en tólf ára var hún barnapía á heimili Einars Bene- diktssonar skálds. Margrét stundaði nám við Kvennaskólann í Reykjavík í tvö ár, lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1926 og stundaði framhalds- nám í Danmörku og Svíþjóð. Hún var heimiliskennari í Gullbringu- sýslu og Borgarfirði 1912-18, versl- unarstúlka í Reykjavík 1918-23 og kennari á árunum 1926-44. Eftir það var hún gæslukona í Þjóðminjasafni Íslands í sjö ár. Þegar Margrét var orðin 66 ára festi hún ráð sitt og giftist Magnúsi Péturssyni kennara sem hafði verið vinur hennar til margra ára. Fyrsta kvæði Margrétar sem birt- ist á prenti kom í tímaritinu 19. júní árið 1920. Hún sendi frá sér sex ljóðabækur, fimm smásagnasöfn, sex barnabækur um Toddu og Geira glókoll og þrjú leikrit. Þá þýddi hún nokkrar bækur. Hún var auk þess ritstjóri barnablaðsins Æskunnar í 14 ár. Í dag er Margrét ekki síst kunn fyrir ættjarðarljóðið Ísland er land þitt. Það birtist fyrst á annarri síðu Morgunblaðsins á tíu ára afmæli lýð- veldisins, 17. júní 1954, og virðist hafa verið ort af því tilefni. Ljóðið varð hins vegar á allra vörum eftir að Magnús Þór Sig- mundsson samdi gullfallegt lag við það sem er að finna á plötunni Draumur aldamótabarnsins, útg. 1982 og flutt af Magnúsi og Pálma Gunnarssyni. Margrét lést 9.12. 1971. Merkir Íslendingar Margrét Jónsdóttir 95 ára Ásgeir Auðunsson 90 ára Guðný Gísladóttir Guðríður Matthíasdóttir Regína Kjerulf 85 ára Jónína Júlíusdóttir Þorgeir Sigurgeirsson 80 ára Geir Helgason Jósep Þóroddsson Sigríður Jónsdóttir Sigurður Sigurðsson Þorsteinn J. Þórhallsson 75 ára Hólmfríður Guðmundsdóttir Rafn Sigurðsson Sigríður Lúðvíksdóttir Valmundur O. S. Einarsson Þorsteinn Stefánsson 70 ára Andreas Bergmann Ásmundur Pálsson Bernard Sochon Edda G. Garðarsdóttir Hjálmar Ólafur Haraldsson Jónas Sigurðsson Selma Katrín Albertsdóttir 60 ára Alina Kordek Guðmundur K. Arnmundsson Guðný Alda Einarsdóttir Haukur Reynisson Hjörtur Magnús Jónsson Lára Bergsveinsdóttir Marta Lunddal Friðriksdóttir Róshildur V. Stígsdóttir Rós Ingadóttir Þorkell Kristján Pétursson 50 ára Aðalheiður J. Halldórsdóttir Andrés Andrésson Elísabet Hildiþórsdóttir Guðrún Bjarnadóttir Gunnar Gunnarsson Jóhann Pálsson Rist Jón Loftur Björnsson Jón Rúnar Gíslason Ragnar Aðalsteinsson Ragna Ragnars Stefanía Haraldsdóttir Stefán Birgisson 40 ára Andzela Zumente Anna Jóhannesdóttir Ari Knörr Jóhannesson Baldvin Hrafnsson Dagný Arnarsdóttir Grétar Hrafnsson Marteinn Breki Helgason Sigrún Baldursdóttir Snekkja Jóhannesdóttir 30 ára Anna Bára Sævarsdóttir Böðvar Friðriksson Elín Steinarsdóttir Hafþór Halldórsson Ingi Magnús Gíslason Karl Tryggvason Katrín Alda Rafnsdóttir Leifur Linduson Michalina Kaminska Regína Diljá Jónsdóttir Valtýr Smári Gunnarsson Þorsteinn Sævar Hjartarson Þórir Trausti Sveinsson Til hamingju með daginn 30 ára Daníel er Hafnfirð- ingur, lék með meistara- flokki Hauka í knatt- spyrnu og er járniðnaðar- maður hjá Kerfóðrun. Maki: Heiða Millý Torfa- dóttir, f. 1984, táknmáls- túlkur. Börn: Darri, f. 2010, og Dagný Lea, f. 2012. Foreldrar: Einar Páll Guð- mundsson, f. 1958, járn- iðnaðarmaður, og Lára S. Halldórsdóttir, f. 1960, skrifstofumaður. Daníel Einarsson 40 ára Eiður ólst upp í Reykjavík, er stúdent frá MR og bakarameistari frá MK og starfar við Bak- arameistarann í Suður- veri. Bróðir: Snorri Geir Júlíusson, f. 1980, verslunarmaður. Foreldrar: Gróa Eiðs- dóttir, f. 1951, gjaldkeri hjá Sjóvá, og Júlíus Snorrason, f. 1949, sjúkraliði sem nú starfar við Landakot. Eiður Mar Júlíusson 40 ára Ólafur ólst upp í Haukholtum, starfaði lengi við Límtré – Vírnet, var vöruflutningabílstjóri og starfar nú sjálfstætt. Maki: Marlín Aldís Stef- ánsdóttir, f. 1982, stuðn- ingsfulltrúi. Börn: Árdís Lilja Gísla- dóttir, f. 2001, Baldur Þór Ólafsson, f. 2005 og Eva Ósk Ólafsdóttir, f. 2009. Foreldrar: Hanna Lára Bjarnad., f. 1951 og Loftur Þorsteinsson, f. 1942. Ólafur Bjarni Sigursveinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.