Morgunblaðið - 20.08.2013, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.08.2013, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2013 Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is Einleikjahátíðin Act Alone fór fram á Suðureyri við Súganda- fjörð, dagana 8.-11. ágúst síðast- liðinn. Hátíðin fagnaði tíu ára af- mæli í ár og af því tilefni var blásið til handritasamkeppni þar sem þemað var íslenski sjómaðurinn. Alls bárust 15 handrit í keppn- ina en verðlaunin féllu í hlut leik- verksins Doría, eftir þau Eyrúnu Ósk Jónsdóttur og Helga Sverris- son. „Leikritið fjallar um íslenskan sjómann sem týnist einn á hafi úti, á árabát frá skipinu sínu,“ segir Helgi í samtali við Morgunblaðið. „Þetta fjallar svona svolítið um það hver maður er, þegar maður er kominn út í auðnina, einn með sjálfum sér, þar sem eru engin önnur viðmið eða speglar önnur en maður sjálfur,“ bætir hann við. Ýmislegt fleira kemur síðan líka við sögu að sögn höfundar, svo sem hugrenningar sjómannsins um ástina, lífið, rétt og rangt og fleira. Nafnið sótt í söguna Kveikjan að verkinu, sem og nafnið, doría, sækja höfundar í söguna. Vísar það til portúgalskra smábáta sem einhverjir muna ef- laust eftir hér við land. Fluttu Portúgalar slíka báta tugum sam- an víða um heim á stærri segl- skútum framan af 20. öldinni, og gerðu út til veiða. Doríurnar sjálf- ar tóku hins vegar aðeins einn mann. Líf doríu-sjómannsins var því um margt erfitt og lentu ófáir þeirra í því að týnast eða fórust. Minna aðstæðurnar sem verk Ey- rúnar og Sverris hverfist um um margt á aðstæður doríu-sjómann- anna, þótt íslensk hetja hafsins eigi engu að síður í hlut. Doría hefur ekki enn verið sett upp en verkið verður frumflutt á Act Alone einleikjahátíðinni að ári. Þar munu aðstandendur hátíð- arinnar sjá um uppsetninguna. Leikverk og sjónvarps- þættir í farvatninu Doría er langt í frá fyrsta sam- starfsverkefni þeirra Eyrúnar og Helga. Á meðal fyrri verka þeirra má nefna bókina L7 Hrafnar, sól- eyjar og myrra auk samnefndrar kvikmyndar sem kom út árið 2011. Fleira er einnig á döfinni úr smiðju höfundanna. „Í vor tókum við þátt í lítilli handritasamkeppni leikskáldahöf- unda. Þar tókum við þátt með unglingaverkið Ferðin til himna, um óvenjulega hinstu ósk deyjandi móður, sem er nú til skoðunar hjá öðru af stóru leikhúsunum,“ segir Helgi, spurður út í hvort fleiri verk séu í sjónmáli úr smiðju tvíeykisins. Þá vinna þau einnig að gerð heimildamyndaraðar fyrir sjón- varp sem ber niður víða. Segir þar af sex börnum, víða um heim, sem á einn eða annan hátt standa upp úr umhverfi sínu. „Við fjöllum m.a. um indverskan dreng sem er yngsti skólastjóri í heimi en hann stofnaði sinn eigin skóla 9 ára, við fjöllum líka um ísraelskan strák sem missti fæt- urna í jarðsprengjuslysi og stofn- aði í kjölfarið góðgerðasamtök,“ segir Helgi af efnistökum verkefn- isins. Börn í Bólivíu, Þýskalandi og á Íslandi koma einnig við sögu. Hér á landi er sagt frá stúlku sem er lögblind og heyrnarlaus en er skáld og skrifar bækur. Verðlaunastyrkurinn sem fylgdi sigri Doría á Suðureyri kemur því í góðar þarfir við að halda þessu síðasttalda verkefni áfram. Stefna aðstandendur á að ljúka því á næsta ári. Aðstæður Doríu- sjómanna innblástur Morgunblaðið/Ernir Höfundar Einleikur Eyrúnar Óskar Jónsdóttur og Helga Sverrissonar, Doría, varð hlutskarpast í einleikjasamkeppni Act Alone-hátíðarinnar. Verslunareigendur á Skólavörðu- stíg ætla ekki að láta sitt eftir liggja og fagna menningarnótt í höfuð- borginni með pomp og prakt næst- komandi laugardag. Blásið verður til tískusýningar klukkan 16 á neðri hluta götunnar sem breytt verður í göngugötu í til- efni dagsins. Fyrirsætur frá Elite sýna þar vandaða íslenska hönnun í bland við erlenda, svo sem fatnað, skart og fylgihluti. Eftirtaldir aðilar taka þátt í at- burðinum; Anna María design, Birna, Boutique Bella, Búðin, Gammur, Huld, húnoghún, IQ og María Lovísa. Tískusýning í bænum á menningarnótt Fögnuður Tíska á Skólavörðustíg á menningarnótt í Reykjavík. Breski organistinn James McVinnie flytur 7 antiphones eftir Nico Muhly ásamt verkum eftir Bach o.fl. á tónleikum annað kvöld í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir eru liður í Kirkjulistahátíð en hún hófst 16. ágúst og stendur til 25. ágúst eða fram á sunnudag. James var í nokkur ár aðstoðarorganisti við Westminster Abbey, þar sem hann lék við helgiathafnir og gegndi stöðu kórstjóra. Hann lék meðal annars við fjölmargar opinberar athafnir, sem oft á tíðum voru sendar út í beinni út- sendingu, m.a. í hinu konunglega brúðkaupi. Á efnisskrá eru m.a. Allein Gott in der Höh sei Ehr BWV 663 – J.S. Bach, O Radix Jesse – Nico Muhly, Reverend Mustard his installation prelude – Nico Muhly, O Clavis David – Nico Muhly og Toccata – Patrick Gowers. James hefur komið víða við sem organisti, hljómborðsleikari, í ýmsum kammerhópum og sem kennari. Hann hefur komið fram á tónleikum vítt og breitt um Evrópu, Bandaríkin, Asíu og Ástralíu. Hann hefur oft stýrt Clare College-kórnum og ferðaðist meðal annars í sex vikur með kórnum um Evr- ópu ásamt Barokksveitinni í Freiburg og stjórnandanum René Jacobs. Tónleikarnir hefjast klukkan níu í kvöld. Úr konunglegu brúðkaupi í Hallgrímskirkju Kirkjulistahátíð Organistinn James McVinnie spilar í Hallgrímskirkju í kvöld en hann mun spila verk eftir Nico Muhly, Bach og fleiri. GJÖRIÐ SVO VEL! Hafðu það hollt í hádeginu HAFÐU SAMBAN D OG FÁÐU TILBO Ð! HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is HEITT OG KALT býður starfsfólki fyrirtækja hollan og næringaríkan mat í hádegi. Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta matreiðslukeppni heims. Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR Englar alheimsins (Stóra sviðið) Fös 30/8 kl. 19:30 Sun 1/9 kl. 19:30 Lau 7/9 kl. 19:30 Lau 31/8 kl. 19:30 Fös 6/9 kl. 19:30 Sun 8/9 kl. 19:30 "Fullkomin útfærsla á skáldsögunni" SÁS Fréttablaðið Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Sun 25/8 kl. 14:00 Aukas. Sun 1/9 kl. 14:00 Aukas. Sun 8/9 kl. 14:00 Aukas. Örfáar aukasýningar í haust - komnar í sölu Hættuför í Huliðsdal (Kúlan) Sun 8/9 kl. 16:00 Frums. Lau 21/9 kl. 13:00 6.sýn Lau 28/9 kl. 16:00 11.sýn Lau 14/9 kl. 13:00 2.sýn Lau 21/9 kl. 16:00 7.sýn Sun 29/9 kl. 13:00 12.sýn Lau 14/9 kl. 16:00 3.sýn Sun 22/9 kl. 13:00 8.sýn Sun 29/9 kl. 16:00 13.sýn Sun 15/9 kl. 13:00 4.sýn Sun 22/9 kl. 16:00 9.sýn Sun 15/9 kl. 16:00 5.sýn Lau 28/9 kl. 13:00 10.sýn Hugrakkir krakkar athugið - aðeins þessar sýningar!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.