Morgunblaðið - 29.08.2013, Side 8

Morgunblaðið - 29.08.2013, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013 Björn Bjarnason, fyrrverandidómsmálaráðherra og borg- arfulltrúi, víkur í pistli að fjöl- mennum fundi í Hagaskóla vegna nýjustu tilburða borgaryf- irvalda gegn reykvískum öku- mönnum.    Birni þótti aðvonum „ein- kennilegt að ekki skuli neinn kjör- inn fulltrúi hafa staðið fyrir máli borgarstjórnar sem fram- sögumaður á fundinum í Haga- skóla.    Hvað býr þar að baki? Hversvegna er embættismönnum falið að verja umdeilda ákvörðun af þessu tagi? Ráða ekki pólitísk sjónarmið ákvörðuninni um að prófa þessa nýju aðferð gegn einkabílnum?    Tilraunir borgarfulltrúannasem berjast gegn Reykjavík- urflugvelli í Vatnsmýrinni til að sannfæra aðra um ágæti skoðana sinna eru dæmdar til að mistak- ast. Látið er eins og að baki búi einhver óskilgreind sérþekking á hvað fólki sé fyrir bestu. Í krafti hennar sé sjálfsagt að blása á skoðun meirihlutans. Að þessu leyti eru tengsl milli andúðar á flugvellinum og einkabílnum.    Spurning vaknar hvort tals-mönnum þessarar stefnu sé almennt á móti skapi að fólk eigi auðvelt með að komast úr einum stað í annan.“    Þetta eru eðlilegar at-hugasemdir. Meira að segja þeir borgarfulltrúar sem búa svo nálægt Hagaskóla að þeir gátu hæglega hjólað til fundarins og hjólað í fundarmennina létu vera að mæta þar. Björn Bjarnason Hjólað í ökumenn STAKSTEINAR 13.-27. september• á Hótel Örk 15.-29. nóvember• á Hótel Örk 3.-17. janúar• á Hótel Örk 14.-28. febrúar• á Hótel Örk 12.-26. apríl• páskaferð til Ddansk, Póllandi (unglingahópur) 24. maí til 7. júní• , Gdansk, Póllandi 23. ágúst til 6. september• , Gdansk, Póllandi 15.-29. nóvember• á Hótel Örk DETOX 2013 OG 2014 Skráning hjá joninaben@nordichealth.is eða í síma 822 4844 Veður víða um heim 28.8., kl. 18.00 Reykjavík 12 skýjað Bolungarvík 12 súld Akureyri 15 alskýjað Nuuk 2 skúrir Þórshöfn 12 skýjað Ósló 21 heiðskírt Kaupmannahöfn 22 léttskýjað Stokkhólmur 22 heiðskírt Helsinki 20 léttskýjað Lúxemborg 21 heiðskírt Brussel 21 heiðskírt Dublin 17 skýjað Glasgow 16 skýjað London 22 heiðskírt París 22 heiðskírt Amsterdam 22 léttskýjað Hamborg 22 heiðskírt Berlín 23 heiðskírt Vín 16 skýjað Moskva 17 heiðskírt Algarve 22 léttskýjað Madríd 27 þrumuveður Barcelona 25 þrumuveður Mallorca 27 léttskýjað Róm 26 léttskýjað Aþena 32 heiðskírt Winnipeg 26 léttskýjað Montreal 23 skýjað New York 28 alskýjað Chicago 25 alskýjað Orlando 30 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 29. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:03 20:55 ÍSAFJÖRÐUR 5:59 21:09 SIGLUFJÖRÐUR 5:42 20:52 DJÚPIVOGUR 5:30 20:27 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Síðasti dagur strandveiða er í dag. Reyndar er það aðeins á svæði D frá Hornafirði til Borgarbyggðar sem leyfilegt er að róa í dag og ljóst að þar næst leyfilegur hámarksafli sumarsins ekki. Á hinum svæðunum er hámarksaflanum náð og á tveim- ur svæðanna þurfti ekki marga veiðidaga til þess. Alls reru 675 bátar á strandveiðunum í sumar, þar af 250 á svæði A frá Arnarstapa til Súðavíkur, en 130-150 á hinum svæðunum þremur. Á svæði A máttu menn róa í sex daga í ágúst, á svæði B frá Norður- firði til Grenivíkur gaf ágústmán- uður fjóra veiðidaga og á svæði C frá Húsavík til Djúpavogs var róið þar til í gær að hámarksaflanum var náð. Meðalafli á svæðunum hefur verið talsvert misjafn á þessu sumri. Þannig hafa bátar á svæðum A og D komið að landi með alls 11-12 tonn að meðaltali, en á svæðum B og C hefur meðalbáturinn fengið 14-15 tonn. Áætla má að um 300 þúsund krónur hafi fengist fyrir hvert tonn af þorski á fiskmörkuðunum í sum- ar. Vilja auknar heimildir til veiða á makríl Samkvæmt upplýsingum á vef Fiskistofu hafa færabátar veitt rúm- lega 2.800 tonn af makrílkvóta sínum í sumar, en 85 bátar hafa nýtt leyfi sín til veiðanna. Eru því innan við 400 tonn eftir af þeim kvóta sem þessi floti smábáta fékk úthlutaðan og ekki margir veiðidagar eftir. Landssamband smábátaeigenda hefur ítrekað óskir sínar um að heimildir verði auknar og hefur rætt málið við Sigurð Inga Jóhannsson sjávarútvegsráðherra. Morgunblaðið/Ómar Löndun Alls reru 675 bátar á strandveiðunum í sumar. Síðasti dagur strandveiðanna  Misjafn meðalafli eftir svæðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.