Morgunblaðið - 29.08.2013, Side 11

Morgunblaðið - 29.08.2013, Side 11
Liríkt Heklað hálsmen, rauð- ir og róman- tískir hnéháir heklaðir sokk- ar og svuntan Tóta, en upp- skriftin að henni er sú eina í bókinni sem ekki er eftir Tinnu. Tóta amma hennar heklaði slíka svuntu fyrir dóttur sína. Tóta var sú sem kenndi Tinnu að hekla. GRAL Listafólkið í Grindvíska atvinnuleikhúsinu á æfingu, Bergur Þór, Eva Vala, Erling, Benedikt Karl og Sólveig. ábreiðu hugsun. Ég hef stundum líkt þessu við að leikhús sem eru að setja upp gömul eða ný erlend verk við hljómsveit sem gefur bara út lög eftir aðra. Það er búið að skrifa þetta og þetta er bara tilbúið og þá þarf bara læra text- ann og klæða sig í búning. Allt hitt er nefnilega svo skemmtilegt og ég vil ekki missa af því.“ Guðbergur ólíkindatól sem kemur inn á ská Erling vill ekki gefa það upp hvort höfundurinn sem hann leik- ur eigi að endurspegla Guðberg sjálfan en brosir í kampinn þegar spurningin er borin upp. „Þetta er náttúrlega textinn hans og það er ekki hægt að líta framhjá því. Þetta er nánast menningarsögu- legur viðburður því Guðbergur hefur aldrei skrifað leikrit áður en hann hefur verið ansi fyrirferð- armikill prófíll í íslenskri menn- ingu í hálfa öld. Í verkinu slær ákveðinn tón sem hvergi er að finna annars staðar. Guðbergur er ólíkindatól sem kemur alltaf inn á ská og potar í skáldskap, menn- ingu og sögu. Það er gríðarlega gaman að fá að glíma við þetta. Hann nálgast þetta alveg á sínum forsendum sem skáldskap og okk- ar vinna hefur verið að finna þess- um skáldskap frásagnarmáta sem er við hæfi. Allar setningar og samskipti eru mjög gildishlaðin og er gífurlega mikið undir í hverri línu.“ Frumkvæði sem kemur innan frá heillandi Listafólk í leikhópnum GRAL, Grindvíska atvinnuleikhúsinu, á eins og nafnið gefur til kynna tengingu við Grindavík. Þrátt fyrir að hafa verið í skyndi tekinn inn í hópinn á Erling enga tengingu við bæjarfélagið. Það liggur því beint við að spyrja hvort honum finnist hann vera útundan í hópnum? „Síður en svo. Þau fara mjög vel með mig. Þegar ég var í Hafn- arfjarðarleikhúsinu var æfingaferl- ið þannig að maður flutti bara inn í leikhúsið. Nú er ég gamli mað- urinn sem fær bara að mæta hálf- tíma fyrir boðaða æfingu og ég fæ mér sæti og spyr, hvar er búning- urinn, er ekki búið að þvo hann?“ En er Erling kominn til að vera í GRAL? „Nei, nei. Ég er gestur en ég held að það sé alltaf heitt á könnunni fyrir mig og mér finnst í rauninni svona frumkvæði sem kemur innan frá mjög heillandi.“ Fær angistarkast yfir níu til fimm vinnu 16 ára fór Erling í gullsmíða- nám, upp úr tvítugu í leiklist og hefur hann verið í skapandi störf- um alla sína starfstíð. Þegar hann er inntur eftir því hvort hug- myndir séu aldrei af skornum skammti og það sé ekki stundum þreytandi að fá aldrei hvíld frá skapandi störfum hristir hann höf- uðið brosandi. „Ég kann ekkert annað. Ef ég hugsa mér níu til fimm vinnu fæ ég hroll og angist- arkast. Hvað gerir fólk þegar það vinnur níu til fimm? Þá þarf það að finna sér alls konar áhugamál.“ Eiðurinn og eitthvað var frumsýnd í Tjarnarbíói í gær. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfs- son. Með önnur hlutverk fara þau Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir og Benedikt Karl Gröndal og Eva Vala Guðjóns- dóttir hannar leikmynd og bún- inga. Næsta sýning er í kvöld klukkan 19 sem hluti af Lókal- festival. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013 Reykjavík Skútuvogur 1 Sími 562 4011 Akureyri Draupnisgata 2 Sími 460 0800 Gorenje frystiskápur Áður 179.900 kr. Hausttilboð 129.900 kr. Gorenje frystiskápur F6151AW • Nýtanlegt rými frystihólfs 206 lítrar • Frystigeta 18kg/dag Hljóðstyrkur 40 dB • Orkunýtni A+ • Breidd 60 cm, hæð 145 cm, dýpt 64 cm • 6 skúffur • 5 ára ábyrgð PI PA R\ TB W A · SÍ A · 13 23 6 6 Þú sparar 50.000 kr. Helgartilboðin Fjarðarkaup Gildir 29. - 31. ágúst verð nú áður mælie. verð Svínalundir, kjötborð .................. 1.498 2.398 1.498 kr. kg Svínabógur, kjötborð.................. 698 898 698 kr. kg Hamborgarar m/brauði, 2x115g . 420 504 420 kr. pk. Ali bayonneskinka...................... 1.198 1.495 1.198 kr. kg Ali hunangskótilettur léttkrydd..... 1.698 1.998 1.698 kr. kg Ali bacon, 3 þykktir .................... 1.798 2.577 1.798 kr. kg Ali hunangsskinka silkisk., 180 g 429 614 429 kr. pk. Hagkaup Gildir 29. ágúst - 1. sept. verð nú áður mælie. verð Ísl.naut mínútusteik ................... 3.374 4.499 3.374 kr. kg Holta kjúklingaleggir í mangó/chi 699 999 699 kr. kg Holta bbq-vængir, 800 g ............ 418 697 418 kr. pk. Holta buffalóvængir, 800 g ......... 418 697 418 kr. pk. Holta úrb. skinnl. bringur ............ 2.099 2.799 2099 kr. kg Sveitabrauð .............................. 339 499 339 kr. stk. Baguettebrauð, 400 g................ 249 319 249 kr. stk. Krónan Gildir 29. ágúst - 1. sept. verð nú áður mælie. verð Grísagúllas................................ 998 1.498 998 kr. kg Grísasnitsel ............................... 998 1.498 998 kr. kg Grísakótilettur............................ 899 1.469 899 kr. kg Grísahnakki úrb. sneiðar............. 899 1.698 899 kr. kg Grísahakk ................................. 599 849 599 kr. kg Grísahryggur m/pöru .................. 899 1.298 899 kr. kg Grísaskankar............................. 399 469 399 kr. kg Grísabógur hringskorinn ............. 599 798 599 kr. kg Nóatún Gildir 30. ágúst - 1. sept. verð nú áður mælie. verð Lambahryggur af nýslátruðu ........ 1.998 2.298 1.998 kr. kg Lambakótilettur, kjötborð............ 1.998 2.198 1.998 kr. kg ÍM kjúklingalundir ...................... 2.252 2.649 2.252 kr. kg Melóna kantalópa ..................... 299 469 299 kr. kg Gæðab. heilkorna kubbur, 500 g 329 379 329 kr. stk. Happy Day eplasafi .................... 195 229 195 kr. ltr Happy Day appelsínusafi ............ 195 229 195 kr. ltr Happy Day fjölvítamínsafi ........... 195 229 195 kr. ltr

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.