Morgunblaðið - 29.08.2013, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Stefnt er að því að hefja fram-
kvæmdir við uppbyggingu nýs hverf-
is við Vesturbugt við gamla Slipp-
svæðið í Reykjavík á næsta ári og er
ráðgert að það verði fullbyggt tveim
til þrem árum síðar. Dagur B. Egg-
ertsson, formaður borgarráðs, stað-
festir þetta en frestur til að gera at-
hugasemdir við deiliskipulagið
rennur út 25. september nk.
Vesturbugt afmarkast af Ána-
naustum í vestri og af Slippnum í
austri. Gert er ráð fyrir 257 íbúðum
þar, auk atvinnuhúsnæðis, í breyttu
skipulagi í blöndu af fjölbýlishúsum
og raðhúsum í 1-5 hæða byggingum.
Eru þá 48 íbúðir í 2. áfanga með-
taldar en þær myndu rísa þar sem
Slippurinn er nú. Þá standa eftir 209
íbúðir og verða þar af 68 í stórhýsinu
Mýrargötu 26 sem nú er í byggingu.
Haft var eftir Birgi Þ. Jóhanns-
syni, formanni Íbúasamtaka Vestur-
bæjar, í Morgunblaðinu í gær að
byggðin í Vesturbugt þyrfti að vera
blandaðri en að væri stefnt, skipulag-
ið væri „stíft og einhæft“. „Við viljum
t.d. sjá hafnarsvæðið í stöðugri þró-
un, þar hentar vel að hafa mikinn
fjölbreytileika,“ sagði Birgir.
Skjaldborg um sjávarútveg
Spurður út í þessa afstöðu for-
manns íbúasamtakanna kveðst Dag-
ur taka undir þessi meginsjónarmið.
„Við Birgir erum hjartanlega sam-
mála um að hafnarsvæðið eigi að
þróast mjög lífrænt eins og það hefur
fengið að gera eftir að við [í meiri-
hluta borgarstjórnar] kváðum skýrt
á um það hvar hafnarstarfsemin ætti
að vera og slógum skjaldborg um
sjávarútveg í gömlu höfninni. Við er-
um líka sammála um að sá hluti hafn-
arinnar sem er nýttur undir ferða-
þjónustu og mannlíf eigi að fá að gera
það áfram og við teljum að þetta
skipulag stuðli að hvoru tveggja.
Það einkennist af miklum sveigj-
anleika og fjölbreytileika sem lýsir
sér í því að þarna eru íbúðir á efri
hæðum en á jarðhæðunum verður
alls kyns þjónusta. Þetta verður lág-
reist byggð sem tekur mið af byggð-
inni í grennd,“ segir Dagur.
Á myndinni hér fyrir ofan má sjá
hvernig fyrirhuguð byggð mun líta út
samkvæmt nýju deiliskipulagi. Eru
nýbyggingar merktar með grænum
lit. Á myndinni er gert ráð fyrir að
Slippurinn verði áfram en á vef borg-
arinnar má einnig finna teikningar
með byggð þar. Dagur segir það und-
ir rekstraraðilum Slippsins komið
hvort starfsemin verði þar áfram.
„Slippurinn fær að vera áfram eins
lengi og hann vill. Hótel Marina fær
möguleika til þróunar. Þetta er því
sitt lítið af hverju. Mér finnst býsna
vel hafa tekist til og ég er spenntur
að sjá hvaða athugasemdir við fáum
meðan þetta er í auglýsingu.“
Bjarni Brynjólfsson, upplýs-
ingastjóri Reykjavíkurborgar, lýsir
skipulagsferlinu svo:
Fyrst og fremst kynning
„Rammaskipulag er fyrst og
fremst kynningarskipulag, það er
kynning á hugmynd. Síðan eru reit-
irnir deiliskipulagðir og fara í auglýs-
ingu. Um það er nú að ræða varðandi
Vesturbugtina. Það er verið að aug-
lýsa deiliskipulagið fyrir hana og þá
er tekinn ákveðinn reitur og hann
deiliskipulagður. Ef ekki eru gerðar
athugasemdir við deiliskipulagið er
það samþykkt og þá má hefja fram-
kvæmdir samkvæmt því.“
Í upphaflegri tillögu skosku arki-
tektastofunnar Graeme Massie
Architects fyrir hafnarsvæðið var
gert ráð fyrir að fyrirhugað fram-
kvæmdasvæði í Vesturbugt væri
tengt sambærilegri byggð til austurs,
á Miðbakka Reykjavíkurhafnar, og
til vesturs við stóra landfyllingu út í
sjó.
Hundruð íbúða rísi
við Vesturbugt
Stefnt að því að framkvæmdum verði lokið 2016-2017
Tölvumynd/Alark arkitektar
Vesturbugt Fyrirhugaðar nýbyggingar eru merktar með grænum lit.
Slippurinn er austan megin svæðisins og Mýrargata 26 vestan megin.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
í gær er uppbygging 139 nýrra
íbúða í Stakkholti hafin, ásamt því
sem um 100 stúdentaíbúðir í
Brautarholti og um 200 íbúðir Bú-
seta í Einholti eru á teikniborðinu,
alls um 340 íbúðir á grónu svæði.
Þá er verið að leggja lokahönd á
nýjar íbúðir í Skuggahverfinu í
Reykjavík og fyrirhugað er að reisa
um tíu nýjar íbúðir á svonefndum
Nýlendureit við Nýlendugötu,
sunnan við Vesturbugt. Má sjá
teikningu af fyrirhugaðri kirkju
rétttrúnaðarkirkjunnar á þeim reit
hér til hliðar. Verða þar m.a. að-
flutt íbúðarhús og nýbyggingar.
Vestur af Vesturbugt er svo gert
ráð fyrir allt að 144 íbúðum á lóð-
inni Grandavegi 42-44, svo-
nefndum Lýsisreit, samkvæmt til-
lögu að breyttu deiliskipulagi.
Hefur þeim áformum verið mót-
mælt af nágrönnum.
Það verður því nokkurt framboð
af nýjum íbúðum miðsvæðis í
Reykjavík á næstu árum og því
vaknar sú spurning hvernig eftir-
spurnin sé eftir þeim á markaði.
Að sögn Óskars Rúnars Harð-
arsonar, hdl. og löggilts fast-
eignasala hjá Mikluborg, er búið
að selja um 20 af 68 íbúðum á
Mýrargötu 26. Hann segir góða
eftirspurn eftir nýjum og vönd-
uðum íbúðum miðsvæðis í Reykja-
vík. Framboð sé lítið og salan góð.
Það komi einnig fram í því að búið
sé að selja stærstan hluta íbúða í
11 hæða fjölbýlishúsi við Lindar-
götu 37, í Skuggahverfinu.
Óskar Rúnar telur að eftirspurn
eftir nýjum íbúðum í Vesturbugt
verði að óbreyttu með ágætum.
Nýbyggingin Mýrargata 26 er
hluti af því hverfi, eins og sjá má á
tölvumyndum hér fyrir ofan.
Verðið á íbúðum á Mýrargötu 26
er frá 30 milljónum og upp í 93
milljónir fyrir um 180 fermetra
íbúð. Stefnt er að því að byggingin
verði fokheld í næsta mánuði og
að hún verði fullbúin næsta sumar.
Telur Óskar Rúnar það til marks
um batamerki á markaði eftir
efnahagshrunið að fólk vilji festa
sér nýja íbúð á byggingarstigi.
Mikil uppbygging fyrirhuguð
ÁFORM UM ÞÉTTINGU BYGGÐAR
Nýlendureitur Fyrirhuguð kirkja.
NÝ SENDING FRÁ
LANGYARNS
Þönglabakka 4, sími: 571-2288, www.gauja.is
Þrjú ný og glæsileg prjónablöð
Einnig nýjar garntegundir
Næsta prjónakaffi verður haldið
mánudagskvöldið 2. september
frá klukkan 19-21:30
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Opnunartími í sumar: Mánud - föstud 12-18. Lokað á laugardögum í sumar
SJÓN ER SÖGU RÍKARI!
Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 462 1415
www.tonabudin.is
Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340
www.hljodfaerahusid.is
Yamaha píanó og flyglar
með og án “silent” búnaðar.
Áratuga góð reynsla gerir
Yamaha að augljósum kosti
þegar vanda skal valið.
Veldu gæði,
veldu