Morgunblaðið - 29.08.2013, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 29.08.2013, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013 Árlegar hátíðir verða haldnar um helgina á Akureyri, í Kópavogi og Mosfellsbæ. Í Kópavogi verður Hamraborgarhátíðin, Í Mosfellsbæ hátíðin Í túninu heima, á Seltjarn- arnesi verður bæjarhátíð og á Ak- ureyri verður Akureyrarvaka, sem sett verður í Lystigarðinum á föstu- dagskvöld undir yfirskriftinni Rökkurró. Veðurspáin fyrir Norðurland er ekki mjög hagstæð og samkvæmt upplýsingum frá Akureyrarbæ gæti þurft að færa einhverja viðburði Akureyrarvökunnar um set eða inn í hús ef veðrið verður vont. Hápunktur Akureyrarvöku verð- ur á laugardag þegar efnt verður til listaveislu með alþjóðlegum blæ á Ráðhústorgi, í Listagilinu og víð- ar um bæinn. Dagskrá laugardags- ins lýkur með útitónleikum hljóm- sveitarinnar Retro Stefson og gesta á sviði neðst í Listagilinu klukkan 21. Hljómsveitin mun þar bæði flytja eigin lög og gamla smelli og fær í því skyni til liðs við sig m.a. söngvarana Pálma Gunn- arsson og Helenu Eyjólfsdóttur. Meðal annarra dagskrárliða verð- ur Vísindasetur í Rósenborg. Þá verður boðið upp á eldhúsrétti frá fjölda þjóðlanda í Hofi og þar verða einnig kynntir barnaleikir frá öllum heimshornum. Listagilið verður ið- andi af lífi allan laugardaginn með tónlist, listsýningum, matarmark- aði, listmálurum að störfum og fleiru. Dagskrá hátíðarinnar í heild má finna á vefnum visitakureyri.is. Hlaupið á sjö tinda í Mosfellsbæ Hátíðin Í túninu heima verður haldin í tíunda sinn í Mosfellsbæ um helgina. Samkvæmt upplýsingum frá Mosfellsbæ munu íbúar í auknum mæli bjóða í garðinn sinn þar sem verður tónlist af ýmsum toga. Davíð Ólafsson óperusöngvari fær til sín gesti, hljómsveitin Kynslóðabilið með bræðurna Sigurð og Jens Hanssyni í broddi fylkingar býður heim, heil gata heldur sameiginlega bílskúrssölu, bæjarstjórinn í Mos- fellsbæ verður með söngdagskrá í garðinum hjá sér og listamenn verða með opnar vinnustofur. Á föstudagskvöld verður skrúð- ganga og brekkusöngur í Álafoss- kvos undir stjórn Friðriks Dórs. Á laugardagskvöld verða útitónleikar þar sem fram koma hljómsveitirnar Kaleo og Stormsveitin. Einnig stíga á svið Hera Björk, Ragnar Bjarna- son, Páll Óskar og fleiri listamenn. Svonefnt Sjö tinda hlaup fer ár- lega fram í Mosfellsbæ en það er nú í fyrsta skipti haldið á sama tíma og bæjarhátíðin. Um er að ræða ut- anvegahlaup sem spannar 37 kíló- metra leið um fjöll og dali Mosfells- bæjar. Einnig er boðið er upp á styttri vegalengdir. Á flugvellinum við Tungubakka verða til sýnis gamlar flugvélar, flugvélamódel og gamlar búvélar. „Þristurinn“ Páll Sveinsson flýgur yfir bæinn af tilefni 70 ára afmælis vélarinnar. Útimarkaðir verða í Mosfellsdal og í Álafosskvos. Leið 15 hjá Strætó verður gjald- frjáls á laugardag í tilefni hátíð- arinnar. Hægt er að kynna sér dag- skrána nánar á www.mos.is/- ituninuheima2013. Hamraborg breytt í göngugötu Hamraborgarhátíðin verður hald- in í fjórða sinn í Kópavogi á laug- ardag. Þá er Hamraborginni breytt í göngugötu þar sem Kópavogsbúar og aðrir gestir geta gert sér glaðan dag. Þar verður m.a. hægt að gera góð kaup á markaðnum Beint úr skottinu og verslanir og önnur fyr- irtæki verða með tilboð á vörum sínum og þjónustu. Hátíðin hefst kl. 11 og stendur til kl. 16. Hátíðin er haldin í samstarfi Kópavogsbæjar og verslana og fyr- irtækja í Hamraborginni. Frítt í sund á Seltjarnarnesi Bæjarhátíð verður á Seltjarn- arnesi dagana 29.-31. ágúst. Hátíðin hefst með opnun á sýningu Har- aldar Sigmundssonar í Eiðisskeri, sýningarsalnum inn af Bókasafninu, í dag kl. 17. Á föstudagskvöldið verður frítt í sundlaug bæjarins og mun fjöldi tónlistarmanna koma þar fram. Op- ið verður í laugina til kl. 22. Á laugardeginum safnast iðk- endur Gróttu saman á útivellinum klukkan 10-14 og leika listir sínar og fagna sumarlokum. Boðið verður upp á grillaðar pylsur og fleira und- ir lok dagskrárinnar. Um kvöldið verður dansleikur í Íþróttahúsinu þar sem hljómsveitin Í svörtum fötum leikur. Húsið verð- ur opnað kl. 23. Bæjarhátíðir norðan- lands og sunnan Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Í Listagili Tónleikar í Listagilinu eru hápunktur Akureyrarvökunnar. Beint úr skottinu Kópavogsbúar breyta Hamraborg í útimarkað. Morgunblaðið/Eggert Í túninu heima Mosfellsbæingar gera sér ýmislegt til skemmtunar á bæj- arhátíðinni og settu m.a. Íslandsmet í planki fyrir tveimur árum. Á R N A S Y N IR Langtímaleiga – langsniðugust! Reiknaðu dæmið til enda. Frá 49.900 kr.á mánuði! 591-4000 | www.avis.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.