Morgunblaðið - 29.08.2013, Side 25
Indverskur sjómaður sýnir ljósmyndara perlubyssu á lestarstöð í Ahmedabad í Gujarat á Indlandi, sem hann perl-
aði á meðan honum var haldið í fangelsi í Pakistan. Þarlend stjórnvöld hafa látið 362 indverska sjómenn lausa, sem
friðarvott við nágrannaþjóðina, eftir að vopnahlé við landamærin í Kasmír var rofið. Alls 337 komu frá Gujarat.
AFP
Yfirvöld í Pakistan láta hundruð indverskra sjómanna laus
Perlaði hríðskotabyssu í fangelsinu
AFP
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013
Skipholt 17 - 105 Reykjavík Sími 588 4699 Fax 588 4696 www.oba.is oba@oba.is
Þjónusta til
frambúðar.....
olivetti
Lita-laserprentarinn
D-COLOR P2026
Kr. 139.820
P2026 litalaser-
prentarinn er orku-
sparandi tvíhliða
prentari (duplex)
fyrir A4, prenthraði
26 bls./mín., með
net- og USB tengi
fyrir Windows og
Mac tölvur.
ÁGÚST
TILBOÐ
kr. 111.
855
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Eldhúsvaskar og tæki
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Vestmannaeyjum
Bol-871 48cm þvermál
þykkt 0,8mm
6.990,-
Bol-834 80x48x18cm þykkt 0,8mm
11.990,-
AGI- Eldhústæki
3.990,-
Bol-897 66x43x18cm þykkt stáls 0,8mm
11.490,-
Bol-604 48x43x18cm Þykkt stáls 0,8mm
7.490,-
(fleiri stærðir til)
Írak. AFP. | Nærri sjötíu létu lífið í sprengjuárásum í Írak í
gær, flestir í höfuðborginni Bagdad og nágrenni. Þá
særðust 150 í samræmdum árásum í morgunörtröðinni, í
sjálfsmorðsárásum og bílsprengingum. Ofbeldi í landinu
hefur aukist mikið frá áramótum og hafa stjórnvöld verið
harðlega gagnrýnd fyrir að ráðast ekki að rót vandans en
aðgerðir gegn skæruliðum í Bagdad og norður- og vest-
urhluta landsins virðast hafa borið lítinn árangur. Það
sem af er ári hafa alls 3.700 látið lífið í árásum í landinu.
„Við erum fátækt fólk og allar eigur okkar hafa verið
brenndar og heimili okkar jafnað við jörðu,“ segir Marwa,
18 ára íbúi í Shaab-hverfi í norðurhluta höfuðborgarinn-
ar. Þar létu fjórir lífið í árásum í gær og bílar og nálægar
byggingar skemmdust. „Stjórnmálamennirnir berjast
um stöður og hugsa ekkert um okkur. Fólk er heim-
ilislaust vegna þessara sprenginga. Hver ætlar að bæta
okkur tjónið? Hver ætlar að bæta unga fólkinu?“ spyr
hún.
Engin hafði lýst árásunum á hendur sér í gær en
súnnítaskæruliðar með tengsl við Al-Kaída hafa oftsinn-
is beint skipulögðum árásum að sjítamúslímum, sem
þeir álíta trúníðinga. 31 lét lífið í slíkum árásum 6. ágúst,
47 hinn 10. ágúst og 24 hinn 15. ágúst. Samkvæmt taln-
ingu fréttastofu AFP hafa fleiri en 600 látið lífið af völd-
um sprengjuárása í ágústmánuði.
Stjórnarerindrekar og sérfræðingar hafa hvatt til að
gripið verði til aðgerða til að koma til móts við minni-
hluta súnnímúslima, sem segjast hljóta illa meðferð af
hálfu stjórnvalda. Þau hafa hins vegar lagt megináherslu
á að elta uppi og koma höndum yfir skæruliðana.
68 létu lífið í sprengjuárásum
Írösk stjórnvöld eltast við skæruliða í stað þess að ráðast að rót vandans
Írak
» Auk þess að hafa mistekist
að tryggja öryggi borgara
landsins hafa stjórnvöld ekki
getað séð þeim fyrir nauðsynj-
um á borð við hreint vatn eða
rafmagn.
» Spilling er útbreidd og fá
stór mál hafa verið afgreidd
vegna pólitískra erja.
Melbourne í Ástr-
alíu er sú borg þar
sem best er að
búa, samkvæmt
lista The Econom-
ist Intelligence
Unit, og trónir á
toppnum þriðja
árið í röð. Borgir í
Ástralíu og á Nýja-Sjálandi verma
fimm af tíu efstu sætum listans yfir
bestu borgirnar 2013 og borgir í
Kanada þrjú. Vín, höfuðborg Aust-
urríkis, situr í öðru sæti og Helsinki,
höfuðborg Finnlands, því áttunda.
Litlar breytingar urðu á efstu
sætum frá fyrra ári en 28 borgir
féllu á listanum m.a. vegna þjóð-
félagslegs óstöðugleika og niður-
skurðaraðgerða stjórnvalda. Höf-
uðborg Sýrlands, Damaskus, féll um
tíu sæti vegna borgarastyrjald-
arinnar sem geisar í landinu og
vermir neðsta sæti listans.
Alls voru 140 borgir undir í könn-
un EIU en fimm atriði voru til skoð-
unnar; stöðugleiki, heilbrigðisþjón-
usta, menning, umhverfi, menntun
og innviðir.
Melbourne besta
borgin að búa í
BESTU BORGIRNAR
Sérfræðingar
bandarísku haf- og
loftslagsstofnunar-
innar NOAA telja
líklegt að dauða
hundraða stökkla,
sem skolað hefur á
austurströnd
Bandaríkjanna, megi rekja til
veiru sem svipar til mislinga í
mönnum.
Veiran, morbillivirus, herjar á
lungu og heila og er oft banvæn.
Alls hafa 333 stökklar fundist
dauðir en vísindamenn óttast að
faraldurinn nú sé verri en sá síð-
asti, sem braust út á árunum 1987-
1988. Þá drápust meira en 740 dýr.
Stökklar eru tannhvalir af höfr-
ungaætt og er það kenning vís-
indamanna að dýrin við austur-
strönd Bandaríkjanna búi ekki yfir
mótefni til að vinna bug á veir-
unni.
Drápust af völdum
mislingaveiru
BANDARÍKIN
Ummæli yfirlögreglustjóra
Mumbai hafa vakið mikla reiði en
í símaviðtali við NDTV-fréttastöð-
ina, þar sem öryggismál voru til
umræðu, sagði hann fólk verða að
velja á milli „lauslætiskúltúrs“,
sem leyfði að fólk kysstist á göt-
um úti, og öruggrar borgar, sem
væri möguleg með „siðgæð-
islöggæslu“.
Satyapal Singh sagði að koma
þyrfti á „jafnvægi“ en að fólk væri
„ringlað“ varðandi það hvernig
þjóðfélag það vildi. „Annars vegar
viltu lauslætiskúltúr en hins vegar
öruggt umhverfi fyrir fólkið,“
sagði hann. „Ég skil ekki fjölmiðla
og svokallaða aðgerðasinna. Þeir
gagnrýna lögregluna fyrir siðgæð-
islöggæslu. Eigum við að stunda
siðgæðislöggæslu eða ósiðlega lög-
gæslu? Ég held að valið sé ykkar.“
Lögregla hefur handtekið fimm
menn sem grunaðir eru um að
hafa nauðgað 23 ára gamalli konu
í Mumbai í síðustu viku en málið
hefur vakið spurningar um öryggi
kvenna í borginni.
Yfirlög-
reglustjóri
vekur reiði
Sagði fólk velja
„lauslætiskúltúr“