Morgunblaðið - 25.09.2013, Page 2

Morgunblaðið - 25.09.2013, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Stjórn Samtaka afurðastöðva í mjólk- uriðnaði ákvað í gær að leggja til við landbúnaðarráðherra að greiðslu- mark mjólkur á næsta ári verði 123 milljónir lítra. Gangi það eftir yrði um aukningu að ræða upp á um sjö millj- ónir lítra frá yfirstandandi ári og 5 millj. lítra umfram sölu ársins, sem er meira en nokkur dæmi eru um áður. Skv. upplýsingum Mjólkursamsöl- unnar er gert ráð fyrir 7,7 milljóna lítra söluaukningu mjólkurafurða á treimur árum. Þetta samsvarar fram- leiðslu 40 meðalkúabúa. „Það er fyrst og fremst aukin sala fitumeiri afurða á borð við smjör, ost, nýmjólk og ýmsar aðrar vörutegundir sem knýr þessa söluaukningu. Salan var liðlega 115 milljónir lítra árið 2012, en gert er ráð fyrir að hún verði 123 milljónir lítra árið 2014. Það er 7,7 milljóna lítra aukning á tveimur árum. Bænd- ur hafa verið hvattir til að auka fram- leiðsluna þegar á síðustu vikum þessa árs og búa sig undir enn aukna sölu á því næsta,“ segir í frétt frá Mjólkur- samsölunni. Stóraukin sala mjólk- urafurða  Lagt til að kvóti aukist um 7 millj. lítra Baldur Arnarson baldura@mbl.is Kristín María Björnsdóttir, fráfar- andi formaður vinnumarkaðsráðs á Austurlandi, gagnrýnir uppsagnir Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, á sjö for- mönnum vinnumarkaðsráða harð- lega og segir þær án skýringa. Eygló sagði sjö formönnum og jafn mörgum varaformönnum ráð- anna upp í lok ágúst. Fengu þeir frest til andmæla til 9. september. Að sögn Kristínar Maríu ber vinnumarkaðsráðum að vera til ráð- gjafar og sem bakland fyrir Vinnu- málastofnun víða um land. „Ég gerði mér ekki grein fyrir að þetta væri pólitískt embætti. Vinnu- markaðsráðin hafa aldrei starfað samkvæmt pólitískum fyrirmælum, heldur horfa menn á sína heima- byggð og reyna að vinna sem best í þágu hennar … Þar fyrir utan hefur aldrei áður verið skipt um formenn þótt orðið hafi stjórnarskipti. Það hefur aðeins verið skipt um formenn þegar skipunartíminn rennur út.“ Skipuð frá og með maí 2011 Kristín María og hinir formenn- irnir sex sem sagt var upp voru skip- uð til fjögurra ára frá og með maí 2011. Hafa þau Magnús Þór Jónsson, formaður ráðsins á Vesturlandi, og Helena Þ. Karlsdóttir, form. ráðsins á Norðurlandi eystra, einnig mót- mælt uppsögnunum í tilkynningu. Kristín segist undrast þá skýringu ráðherra í uppsagnarbréfi að hann vilji í þeirra stað skipa aðra sem séu „líklegri til að framfylgja stefnu ráð- herra“. Eygló hafi enda ekki lagt fram neina stefnu í þessum málum, ekki fremur en forveri hennar. Eygló var í flugi þegar fréttin var í vinnslu. Aðstoðarmaður hennar, Matthías Páll Imsland, var til svara: „Það kemur tæpast pólitískt skip- uðum einstaklingum á óvart að þeg- ar ný ríkisstjórn tekur við haldi þeir ekki áfram að stýra mikilvægum verkefnum sem oftar en ekki fela í sér að framfylgja pólitískri stefnu og áherslum þess ráðherra sem fer með viðkomandi málaflokk. Áður en viðkomandi nefndarmenn voru valdir fóru ekki fram hefðbund- in ráðningarviðtöl á vegum ráðu- neytisins né var lagt sérstakt mat á hæfni þeirra eða þekkingu á því sviði sem nefndunum er ætlað að fjalla um, líkt og gert er þegar skipað er í stöður eða ráðið er í störf á vegum ráðuneytisins. Skipun þessara ein- staklinga byggðist á mati fv. ráð- herra á því að þeir gætu fylgt póli- tískri stefnu hans og nytu trausts hans. Með því að endurskipa í þessar nefndir er alls ekki verið að varpa rýrð á störf þessa fólks heldur er ráðherra að velja til þessara verka fólk á sömu forsendum og áður var getið um, þ.e.a.s. fólk sem hann telur vel til þess fallið að stýra þessum verkefnum í samræmi við stefnu sína og áherslur,“ sagði Matthías. Uppsögn ráðherra sé án fordæmis  Fráfarandi formaður vinnumarkaðsráðs Austurlands segist undrast að embætti sitt sé pólitískt  Aðstoðarmaður félagsmálaráðherra segir uppsagnir ekki eiga að koma hlutaðeigendum á óvart Kristín María Björnsdóttir Matthías Páll Imsland SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Fimm einstaklingar hafa greinst með HIV-veiruna hér á landi það sem af er þessu ári. Flestir þeirra eru með erlent ríkisfang. Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlækn- is greindust tuttugu með HIV-smit hér á landi í fyrra og einn með al- næmi. Er það svipaður fjöldi og árin 2011 og 2010 en heldur fleiri en árin þar á undan þegar fimm til fimmtán einstaklingar greindust að meðaltali á ári. Í árslok 2012 höfðu verið tilkynnt til sóttvarnalæknis samtals 300 til- felli af HIV-sýkingu á Íslandi frá árinu 1983. Þar af höfðu 66 sjúkling- ar greinst með alnæmi og 39 látist af völdum sjúkdómsins. Í nýrri skýrslu UNAIDS, áætlun- ar Sameinuðu þjóðanna gegn al- næmi, kemur fram að mikill árangur hafi náðst í baráttunni gegn HIV og alnæmi í heiminum. HIV-nýsmit hafa dregist saman um þriðjung síð- an 2001 og um meira en helming hjá börnum. 2,3 milljónir smituðust af HIV árið 2012 en árið 2001 voru þeir 3,4 milljónir. Nýsmit hjá börnum hefur dregist saman um 52% síðan 2001 en 260.000 börn greindust með HIV í fyrra. Bataferlið má þakka nýjum lyfjum sem koma í veg fyrir smit í móður- kviði, frá móður til ófædds barns hennar. Talið er mögulegt að draga úr nýsmitum hjá börnum um 90% á næstu tveimur árum með sama áframhaldi. Eykst í Austur-Evrópu Betri aðgangur að lyfjum þýðir að fleiri lifa nú með HIV. Um 35,3 millj- ónir manna lifðu með veirunni í fyrra, um 70% þeirra í Afríku sunnan Sahara. Frá 2001 hefur árlegur fjöldi nýsmita meðal fullorðinna á því svæði minnkað um 34%. Mesta minnkun í nýsmiti frá 2001, um 49%, hefur átt sér stað í Karíbahafi. HIV- smituðum hefur fjölgað í Austur- Evrópu og Mið-Asíu á undanförnum árum. Áfram fjölgar HIV-smituðum í Mið-Austurlöndum og Norður-Afr- íku. Í fyrra létust 1,6 milljónir manna úr alnæmi en árið 2011 voru þeir 1,8 milljónir og 2,3 milljónir árið 2005. HIV-smit hjá samkynhneigðum karlmönnum hefur aukist aðeins á heimsvísu og þá gengur illa að draga úr HIV-smiti meðal sprautufíkla en það helst enn hátt, er allt að 28% í Asíu. Færri smitast af HIV-veirunni  Fimm hafa greinst með HIV á Íslandi í ár  Mikill árangur náðst HIV smit í heiminum 2001 til 2012 Fó lk se m lifi r m eð H IV (m ill jó ni r) 40 35 30 25 20 15 10 5 0 N ýg re in di r m eð H IV (m ill jó ni r) 4,0 3,5 3,0 2,5 2,0 1,5 1,0 0,5 0 Fólk sem lifir með HIV 2001-2012 Nýgreindir með HIV 2001-2012 2001 2012 HIV-staðreyndir » 35,3 milljónir manna voru með HIV-veiruna árið 2012. » Dregið hefur úr nýsmiti HIV um 33% frá árinu 2001. Í fyrra smituðust 2,3 milljónir manna af HIV í heiminum en árið 2001 voru þeir 3,4 millj- ónir. » HIV-smit hjá fullorðnum og unglingum dróst saman um 50% eða meira í 26 löndum á árabilinu 2001 til 2012. » Nýsmit hjá börnum hefur dregist saman um 52% síðan 2001. Um 260.000 börn smit- uðust af HIV-veirunni í fyrra, þau voru 550.000 árið 2001. » Andlát sem má rekja til al- næmis hafa dregist saman um 30% síðan 2005 þegar sjúkdómurinn var í hámarki. Í fyrra létust 1,6 milljónir ein- staklinga úr alnæmi. Margir hafa notið útivistar síðustu daga. Nú sér senn fyrir endann á þeirri blíðu sem einkennt hefur veðrið en í dag verður rigning um allt land og veður tekur að kólna. Ljósmyndari Morgun- blaðsins fangaði heillandi haustliti náttúrunnar við Vífilsstaði síðdegis í gær. Morgunblaðið/Golli Haustið skartar sínu fegursta og heillar landsmenn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.