Morgunblaðið - 25.09.2013, Side 7

Morgunblaðið - 25.09.2013, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013 Mikil leit stóð yfir í Öskjuhlíðinni og nágrenni Reykjavíkurflugvallar í gær að ketti sem slapp út úr einkaflugvél. Í gærkvöldi hafði leitin ekki borið árangur. Kött- urinn er sagður styggur við ókunnuga en settar voru upp fimm gildrur með kattamat í. Flugvélin kom frá Danmörku og millilenti á Reykjavíkurflugvelli á leið sinni til Bandaríkjanna. Flugbjörg- unarsveitin tók m.a. þátt í leitinni og fær greitt fyrir. Matvælastofn- un leggur áherslu á að kötturinn finnist þar sem hann hefur ekki farið í gegnum einangrunarstöð og því geti smithætta stafað af hon- um. „Við erum ekki kattabjörg- unarsveit, en við erum hins vegar sérfræðingar í því að leita og þekkjum svæðið mjög vel,“ sagði Jóhannes Kolbeinsson, formaður Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík, í samtali í gær. „Þetta er óvenjulegt verkefni,“ sagði Jó- hannes en ekki er ákveðið hversu lengi á að leita að kettinum. Umfangs- mikil leit að einum ketti  Fimm gildrur með kattamat settar upp Morgunblaðið/Rósa Braga Leit Björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni að kettinum í gær. Íslendingar eru þjóða duglegastir að vafra um netið með þráðlausum hætti en samkvæmt nýrri könnun samtakanna Broadband Commision á slíkri netnotkun er Ísland í fyrsta sæti með 96 prósenta notkun eða einu prósenti meira en frændur okkar Norðmenn. Næstir koma Sví- ar með 94 prósent og Danir með 93 prósent og raða því Norðurlönd sér í efstu sæti listans. Þráðlaus netsamskipti hafa tekið mikið stökk eftir að bæði snjallsím- ar og spjaldtölvur komu til sögunn- ar og telja sérfræðingar á þessu sviði að notkun slíkra tækja muni aukast um 30 prósent á næsta ári. Bandaríkin eru í 24 sæti listans með 81 prósents notkun og er það athyglisvert í ljósi þess að bæði snjallsíma- og spjaldtölvubyltingin á uppruna sinn í Bandaríkjunum. Dr. Harmadoun I. Touré hjá ITU bendir á að bæði í Evrópu og Bandaríkjunum sé netnotkun mjög mikil en á sama tíma sé hún lítil sem engin í mörgum vanþróaðri ríkjum. „Mikill meirihluti fólks í 49 vanþró- uðustu ríkjum heims hefur lítinn eða engan aðgang að netinu. Það er mjög slæmt í ljósi þess að netið er orðið stór þáttur í hagvexti og þró- un flestra ríkja,“ sagði Harmadoun við fjölmiðla þegar niðurstöður könnunar um þráðlausa netnotkun voru kynntar. Netvæðing mest á Íslandi Morgunblaðið/Ernir Netið Snjallsímar og spjaldtölvur hafa aukið notkun þráðlauss nets.  Norðurlandaþjóðirnar raða sér í efstu sæti lista um þráðlausa netnotkun  Eykur hagvöxt og ýtir undir þróun Einungis 13 prósent læknanema, hjúkrunarfræðinema og annarra nema í heilbrigðisvísindum sem svöruðu í könnun sviðsráðs heil- brigðisvísindasviðs Stúdentaráðs Háskóla Íslands sögðust geta hugs- að sér að starfa í framtíðinni á Land- spítalanum. Þá sögðust einungis 8 prósent hafa jákvætt viðhorf til heil- brigðismála á Íslandi og um 50 pró- sent nema höfðu íhugað að flytja til útlanda strax að loknu námi við Há- skóla Íslands. Mikil umræða hefur verið um stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi og var könnunin m.a. gerð í ljósi þeirrar óánægju sem er meðal starfsfólks heilbrigðiskerfisins með langvarandi álag og slæma vinnuað- stöðu og léleg kjör. Könnunin var lögð fyrir nemendur á síðasta og næstsíðasta ári í læknisfræði, hjúkr- unarfræði, lífeindafræði og geisla- fræði og sjúkraþjálfun. Flestir segjast ætla út strax að námi loknu Ársreikningaskrá RSK skorar á stjórnarmenn fyrirtækja sem ekki hafa skilað ársreikningum fyrir árið 2012 að gera það nú þegar. Samkvæmt lögum er skilafrestur liðinn. Skil á ársreikningi Skorað er á stjórn félaga að senda nú þegar til ársreikningaskrár RSK ársreikning félagsins og samstæðureikning, ef það á við, vegna reikningsársins 2012. Áskorun þessi tekur einnig til skila á eldri ársreikningum hafi þeim ekki verið skilað. Stjórn ber ábyrgð Stjórnarmenn bera ábyrgð á því að ársreikningi sé skilað til ársreikningaskrár. Viðurlög Vanskil á ársreikningum geta varðað sektum frá 250 til 500 þúsund króna. Ert þú í skilum? Unnt er að sjá hvaða fyrirtæki eru í vanskilum á heimasíðu ríkisskattstjóra http://www.rsk.is/fyrirtaekjaskra/ arsreikningaskra/felog-i-vanskilum/ Athugaðu hvort þitt fyrirtæki er í vanskilum og skilaðu strax ef svo skyldi vera. Nánari upplýsingar á www.rsk.is 442 1000 Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is Frestur til að skila er liðinn ársreikningi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.