Morgunblaðið - 25.09.2013, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Ógreidd sjúklingagjöld á Landspítalanum
nema nú um 270 milljónum. Skuldir á erlendum
kennitölum, oft skuldir ósjúkratryggðra ein-
staklinga við spítalann, eru að auki um 190
milljónir og er talsverð vinna að innheimta þær
að sögn Maríu Heimisdóttur, framkvæmda-
stjóra fjármálasviðs Landspítalans. Þá nema
aðrar skuldir við spítalann, t.d. fyrirtækja og
annarra heilbrigðisstofnana, um 680 milljónum,
sumar gjaldfallnar en aðrar ekki. „Þetta eru
skuldir vegna ýmiss konar þjónustu, til dæmis
blóðrannsókna á sjúklingum á þeirra vegum,
vinnu sérfræðinga og ýmissa vara og þjónustu
sem fyrirtækin og stofnanirnar kaupa af spít-
alanum,“ segir María.
Landspítalinn á því inni ríflega 1.100 millj-
ónir í útistandandi kröfum og getur munað um
minna á erfiðum tímum í rekstri spítalans.
Við innheimtu útistandandi krafna fer ákveð-
ið ferli í gang að sögn Maríu. „Ef við tökum
dæmi um sjúkling sem kemur á göngudeild og
er boðið upp á staðgreiðslu, annars er hægt að
fá greiðsluseðil bæði í pósti og í heimabankann.
Við erum búin að útvista fyrstu tveimur stigum
innheimtunnar til Íslandsbanka þannig að þeir
senda greiðsluseðilinn og ef það er ekki greitt
innan sex vikna er sent áminningarbréf. Um
sex vikum eftir það, það er tólf vikum frá fyrsta
greiðsluseðli, sendir Landspítalinn sjálfur
áminningarbréf þar sem fólk er hvatt til að
greiða, að öðrum kosti fari skuldin í lögfræði-
innheimtu. Við sendum bara í lögfræðinn-
heimtu þrisvar til fjórum sinnum á ári vegna
þess að þetta er stundum sama fólkið sem á
ógreiddar skuldir og við viljum ekki að það
lendi oft í lögfræðiinnheimtu,“ segir María.
Spítalinn er með samning við tvær lögfræði-
stofur um innheimtu, önnur sér um Ísland en
hin er alþjóðleg innheimtustofa fyrir erlendar
kröfur.
Mega ekki fella niður skuldir
María segir skuldir einstaklinga við spítalann
töluvert þungar í innheimtu. „Það hefur stund-
um þurft að ganga eftir því að fólk borgi en síð-
ustu ár hefur okkur fundist það ganga heldur
tregar en áður. Fólk á erfiðara með að greiða
auk þess sem nokkuð er um að fólk sé í greiðslu-
aðlögun og þá stoppar innheimtuferlið.“
Landspítalinn fer eftir reglugerð velferðar-
ráðuneytisins við gjaldtöku og innheimtu.
„Samkvæmt henni megum við ekki fella niður
skuldir en stundum eru fjárhæðirnar svo lágar
að við myndum vilja sleppa við að rukka þær því
það kostar að innheimta, en það má ekki.
Reglugerðin er alveg skýr með það og þarna er
eflaust verið að reyna að tryggja jafnræði. Svo
er líka nauðsynlegt að reglugerðin sem segir til
um innheimtuna fylgi þeirri þróun sem verður á
þjónustunni. Við sendum ábendingar um æski-
legar breytingar reglulega til sérstakrar nefnd-
ar í velferðarráðuneytinu sem tekur þá afstöðu
til málsins. Við getum ekki ákveðið það sjálf að
breyta einhverju í sambandi við upphæðir eða
tegundir sjúklingagjalda.“
María segir að það hefði vissulega mikið að
segja fyrir spítalann að fá þessar skuldir
greiddar. „Í fjárlögum er gert ráð fyrir því að
spítalinn afli sér ákveðinna tekna með því að
innheimta sjúklingagjöld og þá lækkar fjár-
heimildin frá ríkinu á móti. Þannig að ef við
náum því ekki þá hefur það auðvitað áhrif á
reksturinn.“
Spítalinn á inni 1.100 milljónir
Útistandandi kröfur Landspítalans nema ríflega milljarði Skuldir einstaklinga við spítalann orðnar
þyngri í innheimtu Fara eftir reglugerð velferðarráðuneytisins við gjaldtöku og innheimtu
Morgunblaðið/ÞÖK
Skuldir Landspítalinn á nú ríflega 1.100 millj-
ónir króna inni í útistandandi kröfum.
Andri Karl
andri@mbl.is
„Fucking rapist bastard“. Það var
áletrun sem Ingi Kristján Sigur-
marsson setti við mynd af fjölmiðla-
manninum Agli Einarssyni. Myndin
var forsíða Monitor en Egill var í við-
tali við blaðið. Egill telur að um æru-
meiðingu sé að ræða og krefst þess
ummælin verði ómerkt og Ingi
Kristján dæmdur til að greiða hálfa
milljón í bætur. Lögmaður Inga
Kristjáns segir að um gildisdóm sé
að ræða og að hann eigi við um til-
búnu persónuna Gillz en ekki Egil
Einarsson.
Æra hans sögð söm og áður
Aðalmeðferð í málinu fór fram í
gær fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
„Ummæli um skáldaðar persónur
varða ekki við lög. Það er ekki hægt
að meiða æru Bogomil Font,“ sagði
Haukur Guðmundsson, lögmaður
Inga Kristjáns. Þessi orð fóru öfugt
ofan í Vilhjálm H. Vilhjálmsson, lög-
mann Egils, sem benti á að til væri
fordæmi hvað Bubba varðar og voru
orðin „Bubbi fallinn“ talin ærumeið-
ing.
Haukur sagði ennfremur að um
væri að ræða fúkyrði, þetta væru
ekki fyrirvaralausar fullyrðingar um
hegningarlagabrot. „Hvernig er
komið fyrir málfrelsi ef listaskóla-
nemar geta ekki skipst á athuga-
semdum,“ sagði hann en Ingi Krist-
ján sem er listaháskólanemi birti
myndina á samfélagsvefnum Insta-
gram. Hún fór svo í almenna dreif-
ingu upp frá því. Þá sagði hann Egil
ekki hafa orðið fyrir neinum miska,
æra hans og virðing væri söm og áð-
ur.
Sagður eiga rétt á bótum
Vilhjálmur sagði ljóst að Ingi
Kristján vissi af því að sakamál á
hendur Agli hefðu verið felld niður
þegar hann birti myndina. Átti hann
þá við nauðgunarkærur á hendur
honum.
„Hann fullyrti að hann [Egill] sé
nauðgari sem er grafalvarleg ásökun
og margra ára fangelsi liggur við því
broti að íslenskum lögum. Hann ger-
ir engan fyrirvara við aðdróttanir
sínar. Sannleikurinn var aukaatriði.“
Hann sagði að æra Egils hefði verið
meidd að ósekju, virðing hans beðið
hnekki og því eigi hann rétt á því að
ummælin verði dæmd dauð og
ómerk og að Ingi Kristján greiði
bætur.
Haukur sagði hins vegar að þetta
dómsmál væri óþarft og eingöngu til
að vekja athygli á Agli.
Gildisdómur eða
ærumeiðing?
Aðalmeðferð hafin í meiðyrðamáli
Egils Einarssonar gegn Inga Kristjáni
Morgunblaðið/Rósa Braga
Héraðsdómur Reykjavíkur Mál Egils Einarssonar var tekið fyrir í gær.
Lögfræðingur Egils segir að æra hans hafi verið meidd að ósekju.