Morgunblaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013 Okkur þykir ákaflega gaman að starfa í einni stærstu verslunarmiðstöð landsins, þar sem yfir 130 verslanir og veitingastaði er að finna. Okkur þykir jafnvel enn vænna um að í hverri viku leita fleiri en 100 þúsund Íslendingar eftir þjónustu okkar og sérþekkingu. Af því erum við bæði stolt og þakklát og höfum þetta að segja: TAKK FYRIR AÐ STYÐJA ÍSLENSKA VERSLUN Herdís Harðardóttir Hygea Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Formaður íbúa- samtaka Úlfars- árdals, Kristinn Steinn Trausta- son, undrast það að ekki eigi að kanna kosti betri umferðarteng- inga við Graf- arholt og Úlfars- árdal. Eðlilegt sé að þessir hlutir verði skoðaðir og „fáránlegt“ að ýta þeim út af borð- inu. Kristinn seg- ir mikinn umferð- arþunga út úr hverfunum á morgnana, sér í lagi úr Graf- arholti, en íbúar í Úlfarsárdal geti stytt sér leið út á Vesturlandsveg við verslun Bauhaus. „Okkur finnst með ólíkindum að ekki megi skoða hlutina, á sama tíma og 20 milljónum er varið í að mála götur með einhverjum skrípamynd- um,“ segir Kristinn. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að meirihluti borgarráðs felldi til- lögur Kjartans Magnússonar, borg- arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um að kanna kosti betri vegtenginga við þessi hverfi. Átti sú könnun að fara fram í samráði við Vegagerðina og Strætó bs. Tenging við Krókháls ógerleg Berghildur Erla Bernharðsdóttir, formaður Íbúasamtaka Grafarholts, segir tillögurnar ekki hafa borist samtökunum til umsagnar en þau styðji allar góðar tillögur að bættu umferðaröryggi og tengingum við hverfið. Einar Örn Benediktsson, borg- arfulltrúi Besta flokksins, sat fund borgarráðs þegar tillaga sjálfstæð- ismanna var felld. Hann segir af- stöðu meirihlutans hafa ráðist af um- sögn umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar. Tenging af Suðurlands- vegi inn á Krókháls sé einfaldlega ekki gerleg og það komi vel fram í umsögninni. Af umsögninni má hins vegar ráða að afrein af Vesturlandsvegi inn í hverfið að vestanverðu sé möguleg. Í deiliskipulagi sé gert ráð fyrir breikkun brúar yfir Vesturlandsveg- inn og hægri beygju afrein út af Vesturlandsvegi beint inn á Reynis- vatnsveg. Í umsögn umhverfis- og skipulagssviðs segir að svona afrein stytti eilítið leið inn í hverfið og kæmi til góða fyrir leið 18 hjá Strætó. Samráð haft við íbúana Einar segir hverfisskipulag borg- arinnar í vinnslu og íbúafundur fari einmitt fram í Grafarholti og Úlfars- árdal í dag. Þar verði samgöngu- málin m.a. rædd og samráð verði haft við íbúa um hvernig samgöngum verði best háttað innan hverfisins, inn í það og út úr því. „Þó að þessi tillaga hafi verið felld í borgarráði þá erum við að sjálf- sögðu opin fyrir umræðu og hug- myndum frá íbúum um bættar sam- göngur,“ segir Einar Örn og minnir á ákvörðunarrétt hverfisráðanna. Slík ráð taki fyrir samgöngumál sem og önnur brýn hagsmunamál íbú- anna. Vegtengingar við Grafarholt Suðurlandsvegur Kró khá ls Vín lan ds lei ð Ve stu rla nd sve gu r Reynisvatnsvegur Þú sö ld G R A FA R H O LT Grafarholtsvöllur Kristnibraut (Mosfellsbær) (Hveragerði) Grunnkort/Loftmyndir ehf. Tillögur semmeirihluti borgarráðs felldi að yrðu skoðaðar Úlfarsárdalur „Með ólíkindum að ekki megi skoða hlutina“  Samgöngumál tekin fyrir á íbúa- fundi í Grafarholti og Úlfarsárdal í dag Aukinn akstur Strætó » Reynir Jónsson, forstjóri Strætó, segir enga sérstaka umræðu uppi innan fyrirtæk- isins um bættar tengingar inn í Grafarholt og Úlfarsárdal. » Hann segir ýmsar hug- myndir þó uppi um aukna þjón- ustu við íbúa þessara hverfa. » Bendir hann á að um næstu áramót verði akstur aukinn í Grafarholti og það sé gert vegna óska íbúanna. » Reynir segir allar ákvarðanir um þjónustu Strætó teknar á vettvangi sveitarfélaganna, ekki fyrirtækisins sjálfs. Morgunblaðið/RAX Grafarholt Samgöngumál verða m.a. rædd á íbúafundi í dag. Kristinn Steinn Traustason Einar Örn Benediktsson Eygló Harðardóttir, félags- og hús- næðismálaráðherra, hefur falið verkefnisstjórn að meta mögulegan ávinning af sameiningu þriggja stofnana sem sinna sérhæfðri þjón- ustu við fatlað fólk. Þetta eru Heyrn- ar- og talmeinastöð Íslands, Þjón- ustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda ein- staklinga og Greiningar- og ráðgjaf- arstöð ríkisins. „Tæplega 100 stöðugildi eru sam- tals hjá stofnununum þremur sem veita þjónustu um allt land. Markmið sameiningar væri að bæta aðgang notenda að mikilvægri þjónustu sem þar með yrði á einum stað,“ segir í tilkynningunni. Skili niðurstöðum í febrúar „Samþætta mætti betur þjónustu þeirra [stofnananna] og auðvelda að- gengi fatlaðra að henni ef þær flytt- ust í sameiginlegt húsnæði en þær eru nú dreifðar um Stór-Reykjavík- ursvæðið. Það væri einnig í sam- ræmi við stefnu stjórnvalda um að samþætta þjónustu þvert á stofnanir og gera ríkisreksturinn einfaldari og skilvirkari. Í því fælist samfélagsleg- ur ábati til lengri tíma með hag- kvæmari rekstri, betri þjónustu og betri nýtingu mannafla,“ segir í ný- legri skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þar er fjallað um mögulegan ávinn- ing af aukinni samvinnu stofnana sem þjóna einstaklingum með skerta færni og eru þá einnig teknar með Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, Hljóðbókasafn Ís- lands og TMF (tölvumiðstöð fatl- aðra). Verkefnisstjórnin sem falið hefur verið að undirbúa mögulega sameiningu á að skila niðurstöðum í febrúar. Sameining til skoðunar  Meta ávinning af mögulegum samruna þriggja stofnana

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.