Morgunblaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013 STUTTAR FRÉTTIR ● Rekstrartap tölvuleikjaframleiðend- ans CCP á fyrstu sex mánuðum þessa árs nam um 500.000 Bandaríkjadöl- um, jafnvirði um 60 milljóna króna. Á sama tíma í fyrra var rekstrarhagnaður CCP tæplega þrjár milljónir dala. Tekjur félagsins jukust þó um 14% fyrstu sex mánuði ársins og námu 36,65 milljónir dala. Söluhagnaður var tæplega 34 milljónir dala og jókst um fjórar milljónir dala. Rekstrarkostnaður hækkaði hins vegar um átta milljónir dala og var 34,4 milljónir dala. Rekstrartap CCP má einkum rekja til kostnaðar vegna þróunar og útgáfu á nýja leiknum Dust 514, sem kom út fyrr á árinu, auk fjárfestinga í innviðum fyr- irtækisins. Rekstrartap hjá CCP Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Hlutafjáraukning útgáfufélags DV nemur 60 milljónum króna frá ára- mótum og kemur hún frá sjö aðilum, þar af er einn nýr hluthafi. Er það fé- lag í eigu Berglindar Bjarkar Jóns- dóttur með 7,3% hlut. Jón Trausti Reynisson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að DV hafi verið lagt til nýtt hlutafé í nokkrum áföngum og voru fjármun- irnir notaðir til að greiða skuld við tollstjóra sem nam yfir 80 milljónum í fyrra þegar þegar hún var hvað hæst. Greiddu 11 milljóna skuld Fyrir skömmu var hlutafé aukið til þess að greiða það sem eftir stóð af skuld við tollstjóra en í ágúst var hún tæplega ellefu milljónir króna og var til komin vegna ógreiddra opinberra gjalda. Fyrirtækið hefur vilyrði um að auka hlutafé um sjö milljónir til viðbótar. Reynir Traustason ritstjóri er nú stærsti hluthafi DV með 26,6% hlut. Eignarhluturinn er annars vegar í hans eigin nafni og í gegnum félagið Ólafstún. Hann er sá hluthafi sem hefur aukið hlut sinn í DV hvað mest frá áramótum eða um 20 milljónir króna, samkvæmt gögnum frá DV. Félagið Tryggvi Geir, sem lýtur stjórn Þorsteins Guðnasonar, stjórn- arformanns DV, hefur aukið hlut sinn í DV næstmest á tímabilinu eða um 17 milljónir króna og er þriðji stærsti hluthafinn. Hluturinn fór í 16,5% úr 8,3% við lok árs 2012. Umgjörð, sem er í eigu Ástu Jó- hannesdóttur, er næststærsti hlut- hafinn með 21,9% hlut en hann var 23,8%. Umgjörð hefur lagt DV til ell- efu milljónir frá áramótum. Fram hefur komið í Morgunblaðinu að Ásta Jóhannesdóttir hafi lengi starf- að við verslun. Maður hennar, Bjarni, er sonur hjónanna Jóhann- esar Bjarnasonar og Guðríðar Páls- dóttur sem stofnuðu Rammagerðina 1946. Miranda, í eigu Berglindar Bjark- ar Jónsdóttur tónlistarkennara, er nýr hluthafi í útgáfufélagi DV með 7,3% hlut. Lagði Berglind DV til ell- efu milljónir króna. Fram hefur komið í fjölmiðlum að hún sé dóttir Jóns Guðmundssonar heitins, út- gerðarmanns í Hafnarfirði. Hann rak umsvifamikla fiskvinnslu í Hafn- arfirði, Sjólastöðina. DV jók hlutafé um 60 milljónir til að greiða skuld  Berglind Björk Jónsdóttir er nýr hluthafi í DV  Ritstjóri er stærsti hluthafinn Opinber gjöld Skuld DV við toll- stjóra fór hæst yfir 80 milljónir. Hún er nú greidd. Morgunblaðið/Sverrir Ritstjórinn lagði fram 20 milljónir » Reynir Traustason ritstjóri er stærsti hluthafi DV með 26,6% hlut. Hann hefur lagt fyrirtæk- inu til 20 milljónir frá áramót- um. » Félag í eigu Ástu Jóhann- esdóttur er næststærsti hlut- hafinn með 21,9% hlut. Frá ára- mótum hefur hún lagt DV til ellefu milljónir króna. » Félag í eigu Berglindar Bjark- ar Jónsdóttur tónlistarkennara er nýr hluthafi í útgáfufélagi DV með 7,3% hlut. Berglind lagði DV til ellefu milljónir. Jón Trausti Reynisson Reynir Traustason                                          !"# $% " &'( )* '$* +,-./+ +0,.01 ++/.+1 ,+.1-2 ,-.,/0 +1.1,/ +3,.,2 +.,,-2 +14.50 +2,.24 +,+ +03.45 ++/.5, ,+.1/ ,-.330 +1.11, +3,.23 +.,,4, +15.+4 +23.+ ,+1.213 +,+.,0 +03.0, ++/.12 ,+.034 ,-.300 +1.03/ +33 +.,,/1 +15.20 +23.52 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á á nýlegum bílum bílarnir eru komnir Dekkjaávísun frá N1 fylgiröllum bílum Bílaármögnun Landsbankans Útborgun frá 0 kr. Auðveld kaup Opið Virka daga 10-18Laugardag 12-16Sunnudag 12-15 Einstakt tækifæri! Takmarkað magn á Bílasölu Reykjavíkur Bílaleiga Fjölbreytt úrvalgæðabíla BILASALA REYKJAVIKURBíldshöfða 10 S: 5878888 br.is l l Á R N A S Y N IR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.