Morgunblaðið - 25.09.2013, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 25.09.2013, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013 Kristnir Pakistanar efndu til mótmæla í fjölda borga á mánudag og fóru fram á aukna vernd eftir að 82 létu lífið í tvöfaldri sjálfsmorðssprengjuárás í kirkju í Pesh- awar á sunnudag. Lögregluyfirvöld sögðu að öryggi við kirkjur í borginni yrði aukið í kjölfar árásarinnar en kristnir óttast að ofbeldi gegn þeim muni aukast. „Við höfum átt í góðum samskiptum við múslíma, það ríkti engin spenna fyrir sprenginguna, en við óttumst að þetta sé upphaf öldu ofbeldis gegn kristnum,“ sagði Danish Yunas, sem særðist í árásinni, í samtali við AFP. Kristnir Pakistanar krefjast aukinnar verndar AFP Árás marki upphaf ofbeldisöldu Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Að minnsta kosti 123 eru látnir og 63 er enn saknað eftir að hitabeltis- stormarnir Manuel og Ingrid gengu yfir Mexíkó fyrir rúmri viku. Rign- ingar, flóð og aurskriður eru talin hafa sett mark sitt á 1,5 milljónir heimila, í mismiklum mæli, og 72 veg- ir voru skemmdir í óveðrinu en gagn- rýnendur segja ábyrgðina á tjóninu ekki síður liggja hjá mannfólkinu en veðurguðunum. „Þetta kemur ekki á óvart. Við framkvæmum á óbyggjanlegum svæðum, við byggjum með rusli og við hönnum án þess að skipuleggja,“ skrifar Jesus Silva-Marquez, lagaprófessor, í dagblaðinu Reforma. „Sumir stunda viðskipti, aðrir deyja.“ Afleiðingar fárviðrisins voru hvað verstar í ríkinu Guerrero í suðvest- urhluta Mexíkó en í fjöllunum norð- vestur af Acapulco lagði gríðarstór aurskriða þorp í rúst auk þess sem vegir skemmdust og brú hrundi. Abel Barrera, framkvæmdastjóri Tlachinollan-mannréttinda- miðstöðvarinnar, segir tvö til þrjú verktakafyrirtæki sitja að öllum framkvæmdum á svæðinu. „Gæði framkvæmdanna eru lítil. Það er ekk- ert eftirlitsbatterí sem kannar hvort þau uppfylla staðla fyrir fjalllendi,“ segir hann. Hann segir fyrirtækin greiða stjórnmálamönnum fyrir verktaka- samninga og að enginn sé látinn sæta ábyrgð en ríkisstjóri Guerrero, Angel Aguirre, sagði í síðustu viku að fjár- festingar og eftirlitslausar bygging- arframkvæmdir væru oft afsprengi pólitískra hrossakaupa og spillingar. Þá hefur innanríkisráðherrann Miguel Angel Osorio Chong við- urkennt að eyðilegginguna megi að hluta til rekja til þess að byggt hafi verið á óbyggilegum svæðum. Pólitísk spilling og ekkert eftirlit með framkvæmdum Dauði Björgunarmenn flytja eitt fórnarlamba óveðursins af vettvangi. AFP Fyrrverandi for- seti Maldíveyja, Mohamed Nas- heed, hvatti í gær til friðsam- legra mótmæla vegna ákvörð- unar hæsta- réttar landsins um að fresta seinni umferð forsetakosninga sem halda átti á laugardag. Nas- heed bar sigur úr býtum í fyrri umferð kosninganna en dómstóll- inn ákvað að seinni umferðin skyldi ekki fram fara fyrr en ásakanir um kosningasvik hefðu verið rannsakaðar. Nasheed lét af forsetaembætti í febrúar á síðasta ári eftir að lög- gæsluyfirvöld gengu til liðs við mótmælendur sem vildu hann frá völdum. Hann hefur haldið því fram að um valdarán hafi verið að ræða og að það hafi verið skipu- lagt af Maumoon Abdul Gayoom, sem var sjálfkjörinn forseti Maldí- veyja frá 1978-2008, þegar hann laut í lægra haldi fyrir Nasheed í lýðræðislegum kosningum. Í tölvupósti til AFP sakar Nas- heed hæstarétt um að vera hand- bendi valdaklíku Gayoom en hvorki staðaryfirvöld né alþjóð- legir kosningaeftirlitsmenn fundu neitt athugavert við framkvæmd fyrri umferðar kosninganna. MALDÍVEYJAR Seinni umferð forsetakosninganna frestað Mohamed Nasheed ÖRUGGT START MEÐ EXIDE RAFGEYMUM Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir bifreiða. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 18 58 Exide rafgeymarnir fást hjá: Þ á 101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303 egar njóta kvöldsins... Humarhúsið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.