Morgunblaðið - 25.09.2013, Side 31

Morgunblaðið - 25.09.2013, Side 31
✝ Anna GuðrúnJónsdóttir fæddist á Brekku í Gilsfirði í Austur- Barðastrandarsýslu 30. september 1921. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Grund 10. sept- ember 2013. Foreldrar hennar voru Elín Guðrún Magnúsdóttir, f. á Hrófá í Strandasýslu 22. febrúar 1881, d. 20. ágúst 1960 og Jón Theódórsson, f. á Kleifum í Gils- firði 20. maí 1880, d. 4. febrúar 1960. Systkini Önnu eru: a) Guð- rún, f. 29. sept. 1902, d. 21. júlí ágúst 1918, d. 20. desember 2003. Börn Önnu og Björgvins eru: 1) Guðborg Elín, f. 19. september 1946, sonur hennar er Gunnar Júl- ísson, f. 8. febrúar 1973. Börn Gunnars eru Eyjólfur Karl, f. 16. júní 1993, Guðrún Perla, f. 29. júní 2001, Snædís Blær, f. 26. nóv- ember 2004 og Róbert, f. 29. júlí 2008. 2) Örnólfur Friðrik, f. 17. janúar 1951, kvæntur Sigurrós Kristínu Indriðadóttur, f. 5. maí 1955. Börn þeirra eru: a) Björgvin, f. 20. júlí 1977, d. 3. ágúst 1994, b) Valur Indriði, f. 16. apríl 1981, eig- inkona hans er Thelma Baldurs- dóttir, f. 8. nóvember 1983. Dætur þeirra eru Lena Líf, f. 7. maí 2002, og Diljá Dögg, f. 29. júní 2003, c) Anna María, f. 25. febrúar 1983. Sambýlismaður hennar er Ægir Ægisson, f. 17. desember 1980. Saman eiga þau Kristínu Örnu, f. 11. desember 2010, og óskírða, f. 18. júlí 2013, d) Sigurður Halldór, f. 23. maí 1988, e) fóstursonur þeirra er Stefán Páll Skarphéð- insson, f. 21. nóvember 1988. 3) Guðrún Hafdís, f. 4. júní 1959, gift- ist Adam Abdelazíz Haní, þau skildu. Börn þeirra eru a) Anna Sakína, f. 29. nóvember 1980. Dóttir hennar er Sara Margrét Mía Pétursdóttir, f. 20. október 2007, b) Sara Kristín, f. 6. janúar 1983, d. 11. ágúst 2001, c) Björg Maríum, f. 24. desember 1985. Sambýlismaður hennar er Garðar Gunnarsson, f. 18. maí 1983, þau eiga soninn Kristófer Aron, f. 12. desember 2011. Fyrir átti hún son- inn Sigmund Ívan Jónsson, f. 26. nóvember 2006, d) Abraham, f. 2. desember 1987, unnusta hans er Súsanna María Kristinsdóttir, f. 28. ágúst 1989. Síðar eignaðist Guðrún dótturina Kristínu Soffíu Þorleifsdóttur, f. 17. janúar 2003. Anna verður jarðsungin frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu að Hátúni 2 í dag, 25. september 2013, og hefst athöfnin kl. 13. 1984, b) Margrét Theódóra, f. 13. maí 1907, d. 13. ágúst 1967, c) Kristín Soffía, f. 14. nóv- ember 1909, d. 3. desember 2000, d) Eggert Theódór, f. 15. nóvember 1912, d. 28. september 1992, e) Jón Korn- elíus, f. 8. apríl 1915, d. 6. janúar 2010, f) Ragnheiður, f. 12. október 1917, d. 3. mars 2011, g) Kristrún Soffía, f. 23. desember 1918. Hinn 1. september 1945 giftist Anna Björgvini Eiríksyni. Hann fæddist á Dyrhólum í Mýrdal 26. Ég þakka Guði fyrir að hafa gefið mér svona góða móður. Þegar ég minnist hennar finn ég kærleikann og hlýjuna sem streymdi frá henni. Í 1. Korintubréfi 13. kafla versi 1-8 talar Páll um kærleik- ann: Þótt ég talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika, væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla. Og þótt ég hefði spádómsgáfu og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking, og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú, að færa mætti fjöll úr stað, en hefði ekki kærleika, væri ég ekki neitt. Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum, og þótt ég framseldi líkama minn, til þess að vera brenndur, en hefði ekki kær- leika, væri ég engu bættari. Kærleik- urinn er langlyndur, hann er góðvilj- aður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp. Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki lang- rækinn. Hann gleðst ekki yfir órétt- vísinni, en samgleðst sannleikanum. Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, von- ar allt, umber allt. Kærleikurinn fell- ur aldrei úr gildi. Þessi orð lýsa mömmu best. Ef ég ætti brot af kærleikanum hennar mömmu væri ég góð. Þökk fyrir allt, elsku mamma mín. Þín elskandi dóttir, Guðrún Hafdís Björgvinsdóttir. Anna Guðrún Jónsdóttir skín í dag eins og stjarna í eilífðinni. Hún er okkar meðmælabréf sem hún ritaði á hjörtu okkar er við sáum kraft Guðs varðveita hana í trúnni og frelsa hana frá valdi myrkursins. Guði séu þakkir er hann fór með Önnu Guðrúnu í óslitna sigurför Krists og leyfði henni að útbreiða ilm þekking- arinnar á honum á hverjum stað. Hún var ástkær vinur okkar til fjölda ára. Allir sem þekktu hana og elskuðu vissu að þarna fór einstök manneskja, gleðigjafi og sáttasemjari sem margfald- lega sýndi og sannaði hversu vegir Guðs og sonar hans, Jesú Krists, eru dásamlegir. Fyrir henni voru allir jafnir, stórir sem smáir, og eins og klettur stóð hún við hlið þeirra sem nutu Anna Guðrún Jónsdóttir kærleika hennar og elsku. Við kveðjum hana með virð- ingu og söknuði. Hún var góð- ilmur Krists fyrir Guði, ilmur af lífi til lífs. Hjartans kveðjur til fjölskyldu Önnu Guðrúnar frá Wathne-fjölskyldunni í New York. Þórunn, Anna Bergljót, Soffía Guðrún og Gunnar Stefán. fyrir að vera eins og aðrir, t.d. bílar sem keyptir voru oftast ekk- ert algengir hér á landi eða jafnvel alveg ný tegund hér. Það kom mér ekkert á óvart þegar mér var sagt að kistan þín yrði svört, aðeins öðruvísi en hjá flestum. Mér eru í fersku minni jólaferð- irnar ykkar Helgu í Hvalfjörðinn, alltaf síðustu helgi fyrir jól, var alltaf mikil tilhlökkun á mínu heimili. Þetta voru sannkallaðar gæðastundir, sem gleymast aldr- ei. Það má segja að Björn og Helga hafi komið færandi hendi með jólin með sér. Eftir að Helga dó skrapp ég einstaka sinnum í kaffi til þín og við sátum að spjalli. Þú sagðir mér að þú kveiktir alltaf á kerti við myndina af Helgu þinni á hverju kvöldi og spjallaðir að- eins við hana fyrir svefninn, fannst mér þetta mjög fallegt og sýna vel hversu trygglyndur og góður maður þú varst. Ég er heppin að hafa fengið að kynnast ykkur sómahjónum, þér og Helgu, og eignast þrjú börn sem voru stolt af afa og ömmu í Kefló. Þínum stóra og flotta afkomendahópi sendi ég samúðarkveðjur, veit þú átt eftir að fylgjast vel með þeim öllum. Hvíl í friði, elsku Björn. Kær kveðja, Kristín Sigfúsdóttir, Hlíðarbæ. Á björtum degi fyrir nokkrum vikum fórum við mæðgur í heim- sókn til Björns Stefánssonar að Stekkjargötu 27. Það var brosandi maður sem bauð okkur í bæinn og óðara var farið að bera fram veit- ingar þrátt fyrir að nokkuð erfitt væri orðið að bera sig um. Margar góðar minningar hlað- ast upp um samskipti og samveru við þessa frábæru fyrrverandi ná- granna og vini, Helgu og Björn. Þau hjón voru einstök, vel gerð, snillingar til hugar og handa og allt svo fallegt og listrænt sem frá þeim kom. Nutum við æði oft góðs af því. Seint verður fullþökkuð tryggð- in og vináttan sem þau sýndu okk- ur gegnum öll árin og hélt Björn því áfram eftir að hann var orðinn einn, kom í heimsókn í Kópavoginn til okkar Harðar og jafnan með pekanhnetuböku frá Valgeirsbak- aríi meðferðis. Þess á milli var vin- áttan ræktuð símleiðis. Síðdegissólin var falleg þennan fallega síðsumardag og ljúfar síð- ustu kveðjurnar úti á stéttinni að lokinni góðri og ánægjulegri heimsókn. Gott að eiga þá góðu minningu um ókomna tíð. Mikilhæfur maður er genginn til nýrra heimkynna, vinur sem aldrei gleymist. Þar tekur Helga vel á móti Birni sínum. Kæru Erna, Stefán, Kristinn, Guðný, Höskuldur og fjölskyldur, hugheilar samúðarkveðjur til ykk- ar allra. Rósa Helgadóttir, dætur og fjölskyldur. Kveðja frá Björgunarsveit- inni Stakki Björgunarsveitarfélagi okkar Björn Stefánsson er látinn, hann var einn ötulasti og skemmtileg- asti félaginn í okkar hópi. Björn vann dyggilega að undirbúningi og stofnun Björgunarsveitarinnar Stakks hinn 28. apríl 1968. Hann kom úr hópi félaga úr skátafélag- inu Heiðarbúum sem ákvað að taka höndum saman við fyrrver- andi félaga slysavarnadeildarinn- ar í Keflavík, ásamt fjölmörgu öðru áhugafólki víða af Suðurnesj- um til að stofna allsherjar björg- unarsveit í fjölmennustu byggðar- lögum svæðisins. Hann átti stóran þátt í að móta skipulag og semja lög sveitarinnar og fór fremstur í flokki þegar kom að hugmyndum um nafn hennar. Björn lagði fram hugmynd að og teiknaði merki sveitarinnar sem notað var allan þann tíma sem hún starfaði sem sjálfstæð sveit. Björn var duglegur að ferðast um starfs- svæði okkar, Reykjanesskagann, sem hann þekkti mjög vel vegna þátttöku sinnar í starfi skátanna og átti stóran þátt í að móta skipu- lag þjálfunar og æfinga sveitar- innar, hann var einnig góður og traustur félagi í æfingaferðum sveitarinnar um hálendi Íslands. Björn var ótrúlega skemmti- legur maður, mikill gleðipinni og ótæmandi hugmyndabrunnur hvar sem niður var borið. Hann samdi um okkur sögur, orti gam- ankvæði og gerði óspart grín að öllu og öllum. Öll munum við eftir frásögnum hans og myndasýningum sem voru ómissandi hluti skemmtiatriða á árshátíðum sveitarinnar til margra ára. Björn átti einnig fjölmargar hugmyndir að fjáröflun fyrir sveit- ina og hafði frumkvæði um að hrinda þeim í framkvæmd. Má þar minnast á sölu skyndihjálparpoka til heimila, málverkasýningar, flutning á húsum og fleira. Árið 1975 stóð Björn fyrir því ásamt félögum sínum í Stakki að endurvekja Keflavíkurdeild Rauða krossins. Eitt fyrsta verk deildarinnar var kaup á sjúkrabif- reið, en þá um nokkurt skeið hafði björgunarsveitin lánað björgunar- bifreið sína til sjúkraflutninga. Með góðri hjálp fyrirtækja og ein- staklinga tókst hinum nýju Rauðakrossfélögum að láta drauminn rætast því árið 1977 kom hér á götuna fyrsti sjúkrabíll- inn í eigu Rauðakrossdeilda á Suð- urnesjum. Þetta var eitt af mörg- um framfaramálum sem Björn átti stóran þátt í að komust í fram- kvæmd, á sinn hljóðláta máta. Nú þegar Björn er „farinn heim“ og lagður í könnun á nýjum slóðum getur hann horft til baka yfir feril sinn í þessu jarðlífi og verið hreykinn af. Við þykjumst vita að á þeirri ferð verði ýmislegt athyglisvert og skemmtilegt á vegi hans, sennilega ekki óskemmtilegra en það sem hann fylgdist með í ferðum sínum gegn- um lífið og gladdi sitt samferða- fólk með. Við félagar hans í fjallaferðum og björgunarstarfi þökkum hon- um samfylgdina af heilum hug og munum sakna hans með djúpu þakklæti fyrir samstarfið, ánægj- una og lífsgleðina sem fylgdi hon- um í öllu okkar starfi. Samúð okkar er hjá börnum hans og fjölskyldu. Bjössi, kæra þökk fyrir sam- fylgdina. F.h. félaga í Björgunarsveitinni Stakki, Garðar Sigurðsson. Skátagildið í Keflavík hefur misst enn einn félaga, sem er „far- inn heim“. Björn Stefánsson var einn af stofnfélögum Gildisins og var öll 50 árin mjög virkur í leik og starfi, en Keflavíkurgildið átti 50 ára afmæli í maí sl. Hann, ásamt eiginkonu sinni Helgu Kristinsdóttur, tók mikinn þátt í starfi skátafélagsins Heiðabúar og ófá eru fermingar- skeytin sem Björn skrautskrifaði á meðan skeytin voru handskrifuð. Björn var kosinn í Landsgildis- stjórn 1969. Hann var kosinn í stjórn IFOFSAG 1979, en það er al- þjóðastórn Gildisskáta og var hann fyrsti Íslendingurinn sem þann sóma hlýtur. Hann sat þar í stjórn til 1985. Hann sótti mörg þing og fundi Gildisskáta bæði í Evrópu og vestanhafs og stærst er alþjóða- þingið sem haldið var á Nýja Sjá- landi árið 1985. Hann var alla tíð mjög vel liðinn í skátstarfinu. Eftirminnilegt er þeim sem sóttu Norðurlandaþingið í Reykjavík árið 1980, en þá bauð Björn finnsku fulltrúana velkoma á finnsku en hefur aldrei síðan sagt aukatekið orð á finnsku. 1985 var hann kosinn Landsgildis- meistari og var það til 1989. Björn safnaði Gildisblaðinu Bálinu frá upphafi, lét binda það inn og hefur gefið Landsgildis- stjórn 5 innbundnar bækur. Það verður ómetanleg eign í framtíð- inni. Hann sá um ristjórn Bálsins 1997 og 1998. Skátagildið í Keflavík þakkar frábært samstarf og vottar fjöl- skyldu hans dýpstu samúð. F.h. Skátagildisins í Keflavík, Hreinn Óskarsson. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013 ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir og afi, PÉTUR SIGURBJÖRNSSON, Garðaflöt 1, Garðabæ, lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 14. september, Hann verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 27. september kl. 13.00. Innilegu þakklæti viljum við skila til heimahjúkrunar Karitasar fyrir ómælda aðstoð og hlýja umönnun í gegnum árin. Elín Halldóra Hafdal, Kristján Grétar Pétursson, Steinunn Erna Otterstedt, Pétur Sigurbjörn Pétursson, Berglind Ósk Kjartansdóttir, Rakel Björk Pétursdóttir, Marinó Jónsson, Heimir Þór Pétursson, Vilborg Drífa Gísladóttir, Brynhildur Pétursdóttir, Jóhann Pálsson og afabörn. ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUNNARS Ó. SKAFTASONAR, Boðagranda 2, Reykjavík. Kristín Edda Kornerup-Hansen, Skafti Gunnarsson, Súsanna Davíðsdóttir, Kristján Gunnarsson, Guðrún Edda Gunnarsdóttir, Amid Derayat og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SVAVARS SIGURÐSSONAR bónda, Síðu við Blönduós. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks deilda 11B og 11G Landspítala Hringbraut fyrir góða umönnun í veikindum hans. Magdalena Erla Jakobsdóttir, Jakob Óskar Svavarsson, Hrefna Kristófersdóttir, Sigurður Svavarsson, Ásta Kristín Andrésdóttir, Einar Svavarsson, Sigríður Hermannsdóttir, Baldur Svavarsson, Elínborg Svavarsdóttir, Ingimar Rúnar Ástvaldsson, Björn Magni Svavarsson, Þórunn Jónasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og stjúpmóðir, GUÐRÚN ÞORGEIRSDÓTTIR, Asparfelli 4, Reykjavík, sem lést á heimili sínu fimmtudaginn 12. september, verður jarðsungin frá Lang- holtskirkju fimmtudaginn 26. september kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar láti Ljósið á Langholtsvegi njóta þess. Þorgeir Ingvason, Þorgeir Pétursson, Stella Skúladóttir, Sturla Pétursson, Anna K. Björnsdóttir, Áki Pétursson, Kristín Bjarney Sigurðardóttir, Sigrún Linda Þorgeirsdóttir, Þórir Viðar Þorgeirsson og barnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRN STEFÁNSSON, Stekkjargötu 27, Njarðvík, sem andaðist á heimili sínu föstudaginn 13. september, verður jarðsunginn frá Ytri- Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 25. septem- ber kl. 14.00. Stefán Björnsson, Anna Steina Þorsteinsdóttir, Kristinn Björnsson, Páley Geirdal, Erna Björnsdóttir, Hjörtur Sigurðsson, Guðný Björnsdóttir, Grétar Grétarsson, Höskuldur Björnsson, Linda Björk Kvaran og afabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, ERLINGUR STURLA EINARSSON, andaðist á heimili sínu sunnudaginn 22. september. Útförin verður auglýst síðar. Guðbjörg Erlingsdóttir, Þóra Erlingsdóttir, Einar Leó Erlingsson, Sigríður Ásdís Erlingsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.