Morgunblaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 32
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013
✝ SigurlaugGísladóttir
(Lulla) fæddist í
Keflavíkurbæ á
Hellissandi 8. nóv-
ember 1936. Hún
lést 18. september
2013.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Gísli B.K. Guð-
björnsson frá
Fögrubrekku, fisk-
vinnslumaður og fjárbóndi, f.
1.8. 1902, d. 27.11. 1984, og
Kristjánsína Elímundardóttir
frá Dvergasteini, húsfreyja, f.
13.7. 1909, d. 23.9. 1985. Bræð-
ur Sigurlaugar eru Sölvi Guð-
björn, f. 1933, látinn, Guð-
mundur Sólbjörn, f. 1934,
Heimir Bergmann, f. 1939, og
Pétur, f. 1948.
Sigurlaug giftist 31.12. 1960
Inga Dóra Einari Einarssyni, f.
börn: Sindri Már, Unnur Kar-
en, Baldur Gísli og Arnar Ingi.
5) Ragnar Kristinn, f. 7.1.
1969, maki Gróa Hlín Jóns-
dóttir, börn: Ríkarður Jón,
Bjarki Steinn og Sæunn Elín.
Langömmudætur Sigurlaugar
eru Gunnhildur Una, Lára
Þöll, Kristín og Stella Björk.
Sigurlaug ólst upp á Hellis-
sandi og kláraði grunnskólann
þar, fór síðan tvo vetur í Hús-
mæðraskólann á Varmalandi
þar sem hún naut sín við
handavinnu og matargerð. Fór
svo skamma stund aftur vestur
en svo lá leið hennar fyrst á
Siglufjörð í síld og svo til
Reykjavíkur þar sem hún
kynntist eiginmanni sínum
skömmu síðar. Auk húsmóð-
urstarfa starfaði Sigurlaug
meðal annars á Kópavogshæli,
hjá SS, Landsbankanum og í
Plúsmarkaðnum. Sigurlaug
var mjög flink í höndunum og
liggur mikil handavinna eftir
hana.
Útför Sigurlaugar fer fram
frá Digraneskirkju í dag, 25.
september 2013, og hefst at-
höfnin kl. 13.
29.5. 1939, d. 9.5.
2009. Foreldrar
hans voru Einar
Guðbjartsson stýri-
maður, f. 1.1.
1901, d. 15.6. 1991,
og Sigrún Jóna
Einarsdóttir hús-
freyja, f. 26.4.
1907, d. 17.3. 1994.
Börn Sigurlaugar
og Inga Dóra eru:
1) Sigrún, f. 7.6.
1958, maki Jón A.K. Lyngmo,
börn: Inga Dóra og Ólína. 2)
Gísli, f. 28.7. 1960, maki
Hrafnhildur Hauksdóttir, börn:
Helga Björg, Sigurlaug og
Haukur. 3) Einar, f. 14.4. 1963,
maki Agnes Lilý Guðbergs-
dóttir, börn: Kjartan Ingi (lát-
inn), Birkir Fannar, Berglind
Ýr og Þórarinn Andri. 4) Guð-
björn Sölvi, f. 24.11. 1964,
maki Unnur Baldursdóttir,
Mín fyrstu kynni af Lullu
voru þegar ég kom í Furu-
grundina. Þar hélt hún utan um
hópinn sinn og aðstoðaði eftir
þörfum. Það er engin spurning
að hún var tryggur vinur og
vildi að öllum liði vel sem hún
var í tengslum við. Hún fylgdist
með hópnum sínum af áhuga
sem kom fram í öllu sem hún
gerði. Hún var orðin þannig að
hún átti orðið erfitt um gang en
lét sig samt hafa það að ferðast
með börnunum og barnabörn-
unum þangað sem þau buðu
henni að koma, hvort sem það
var á Hellissand, í Grunnavík, í
bústað eða í bíó. Þannig lífgaði
hún upp á tilveruna hjá sínum
nánustu og var með í því sem
þau gerðu. Það má segja að
henni hafi sjaldan fallið verk úr
hendi og var ótrúlega afkasta-
mikil við það sem hún hafði
áhuga á. Sést það á öllu því
magni af myndum, postulíni og
hannyrðum sem er til eftir hana
og við eigum eftir að njóta um
ókomin ár. Lulla var einstaklega
örlát og gjafmild, barngóð með
afbrigðum. Hún var góð eigin-
kona, móðir, amma, tengdamóð-
ir og vinur. Það er ekki spurn-
ing að fráfall hennar mun hafa
áhrif á líf okkar og mun ég
ávallt minnast hennar með hlý-
hug.
Jón A.K. Lyngmo.
Elsku yndislega Lulla mín.
Nú ert þú farin, mín góða vin-
kona og tengdamóðir. Óskap-
lega er erfitt að hugsa til þess
að nú komi ég ekki framar til
þín í heimsókn og með pant-
anir. En það var nú þannig að
ég vissi yfirleitt hvað og hve-
nær þig vantaði eitthvað og þá
bara kom ég með það eða
hringdi í þig, eða þú í mig, einn-
ig hlakkaðir þú alltaf til þegar
Elsa kom á mánudögum og
stundum kom ég líka að hitta
ykkur, þá var nú glatt á hjalla.
Einnig voru ófáar ferðirnar
okkar saman hér um allt, í hár-
greiðslu, snyrtingu, til læknis, í
búðina okkar og heim í mat.
Dvergasteinn á Hellissandi var
þér hugleikinn, allar okkar
ferðir þangað í gegnum árin,
fyrst með Inga Dóra og síðan
þér einni þegar hann féll frá
fyrir fjórum árum. Fyrir hvern
á ég nú að baka kökurnar? Yf-
irleitt var það fyrsta sem þú
sagðir þegar við komum: „Jæja,
ætlar þú nú að fara að baka.“
Síðast þegar við vorum fyrir
vestan, núna um verslunar-
mannahelgina, spurðir þú mig
hvort ég bakaði ekki púðursyk-
urstertu með perum og súkku-
laðirjóma, sem þú varst vön að
baka fyrir krakkana, og nú auð-
vitað skellti ég þá í hana. Aldrei
hefði mig grunað að þú kæmir
ekki oftar með okkur vestur,
allar okkar góðu stundir, mikið
spjallað og hlegið með góðum
gestum.
Heimir, Svala, Gísli og Nonni
voru fastur punktur í Dverga-
steini, við hlökkuðum alltaf til
að hitta þau.
Það var líka gaman að sjá
hvað þið Einar voruð náin og
göntuðust mikið, þið strídduð
hvort öðru endalaust. Og síðan
verð ég að nefna okkar sérstöku
stundir snemma á morgnana
þegar hinir sváfu, þá töluðum
við oft mikið saman og fróðleik-
urinn rann frá þér um gamla
tíma og forfeður þína. Þú sagðir
alltaf: „Mér líður svo vel hérna,
það er gott að vera kominn í
Dvergastein.“
Já minningarnar eru enda-
lausar. Þér þótti vænt um þína
stórfjölskyldu og varst alltaf að
prjóna eitthvað handa barna-
barnabörnunum. Síðan var allt
postulínið sem þú málaðir og
hannyrðirnar. Þú varst sérstak-
lega myndarleg í höndunum,
vandvirk, mjög snyrtileg, góð og
skemmtileg kona. Ég þakka þér
fyrir allar okkar ánægjulegu
samverustundir, ég á eftir að
sakna þín. Megir þú hvíla í friði
með honum Inga þínum. Guð
blessi þig.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
(Ásmundur Eiríksson)
Þín
Agnes Lilý.
Elsku besta amma/langamma,
minning þín lifir í hjörtum okk-
ar allra.
Hryggðar hrærist strengur
hröð er liðin vaka
ekki lifir lengur
ljós á þínum stjaka.
Skarð er fyrir skildi
skyggir veröldina
eftir harða hildi
horfin ertu vina.
Klukkur tímans tifa
telja ævistundir
ætíð lengi lifa
ljúfir vinafundir.
Drottinn veg þér vísi
vel þig ætíð geymi
ljósið bjart þér lýsi
leið í nýjum heimi.
(Hákon Aðalsteinsson)
Passaðu afa/langafa fyrir
okkur þangað til við hittumst
aftur.
Kveðja,
Helga Björg, Sigurlaug,
Haukur, makar og börn.
Elsku amma mín. Mikið hefði
ég viljað sjá ánægjusvipinn á
afa þegar hann tók á móti þér,
þótt við hin sitjum eftir og sökn-
um þín svo sárt. Þetta gerðist
allt svo hratt að ég trúi því ekki
enn að þú sért farin frá okkur.
Þú varst dásamleg amma og
ég er svo þakklát fyrir hvað þið
afi voruð stór hluti af mínu lífi.
Ég var oft í pössun hjá ykkur á
yngri árum og á óteljandi minn-
ingar sem hlýja mér um hjarta-
rætur. Það var gaman að koma
til þín og spjalla og grípa í
prjónana. Við gátum alltaf
spjallað um hitt og þetta og þér
þótti gaman að vera inni í mál-
um.
Þú varst svo myndarleg í
höndunum amma mín. Öll
postulínslistaverkin sem við í
fjölskyldunni eigum eftir þig eru
ómetanleg. Eins máluðu jóla-
dúkarnir og hekluðu teppin sem
munu hlýja okkur um ókomin
ár. Prjónarnir voru teknir aftur
upp fyrir nokkrum árum og ég
dáðist að því hversu verkefnin
voru fjölbreytt. Eftir að lang-
ömmustelpurnar þínar fæddust
nutu þær góðs af handavinnu-
áhuga þínum og eiga þær ýmsa
handavinnu eftir þig, postulín,
hekluð teppi, smekki og prjón-
aða sokka og jólasveina. Þú
varst sko ekkert að draga hlut-
ina, fannst þér verkefni til þess
að dunda þér við og hættir ekki
fyrr en þeim var lokið. Ég er
þakklát fyrir að Stella Björk
skuli hafa fengið að kynnast þér
og þú henni. Þú ljómaðir alltaf
þegar þú hittir langömmustelp-
urnar þínar og þeim þótti nú
ekki leiðinlegt að fá mjólk og
kringlu hjá ömmu Lullu, frekar
en okkur hinum. Stellu Björk
þótti líka alltaf sport að fara á
svalirnar þínar, gat hoppað þar
um, ráfað inn og út og prílað
upp í stólana og horft út um
gluggann. Hún spyr um þig og
bendir oft á myndina af ykkur
afa og segir mér hver þú ert;
amma Lulla.
Þótt engan hafi grunað að þú
værir að leggja í ferðina löngu
og örugglega ekki þig sjálfa er
eins og eitthvað hafi verið í und-
irmeðvitundinni og þú fram-
kvæmdir hitt og þetta áður en
þú fórst. Teppið fyrir fyrsta
langömmudrenginn sem vænt-
anlegur er í desember er tilbúið
og eins jólagjafirnar fyrir lang-
ömmustelpurnar. Þú hringdir í
hina og þessa sem þú hafðir
ekki heyrt í lengi, skelltir þér í
heimsóknir og bústaðaferðir og
fórst meira að segja til Grunna-
víkur núna í lok sumars, þar
sem þú ferðaðist í bíl, bát og
gúmmíbát og lást aftan í kerru á
traktornum til þess að komast á
milli staða. Þú lést ekkert
stoppa þig og það var svo gam-
an hjá þér. Allar þessar stundir
sem þú naust og hafðir sjálf
gaman af eru ekki síður mik-
ilvægar fyrir þá sem standa þér
næst og fengu að taka þátt.
Elsku amma, takk fyrir allt.
Ég veit að afi hefur tekið vel á
móti þér og að ykkur líður vel
saman. Laus við öll veikindi og
stirðleika og dansið saman við
harmonikkuleik.
Kysstu afa rembingskoss frá
mér og biddu hann um annan
fyrir þig.
Æ, amma, hvar ertu? Æ, ansaðu mér.
Því ég er að gráta og kalla eftir þér.
Fórstu út úr bænum eða fórstu út á
haf?
Eða fórstu til Jesú í sælunnar stað?
(Höf. ók.)
Þín ömmustelpa,
Inga Dóra.
Sigurlaug
Gísladóttir
Í lífinu verða stundum höpp.
Eitt af mínum höppum var að
kynnast Villa eins og við Skag-
Vilhjálmur Þór
Þórarinsson
✝ Vilhjálmur ÞórÞórarinsson
fæddist á Bakka í
Svarfaðardal 18.
nóvember 1949.
Hann varð bráð-
kvaddur við smala-
mennsku í Sveins-
staðaafrétt í
Skíðadal 7. sept-
ember 2013.
Vilhjálmur Þór
var jarðsunginn frá
Dalvíkurkirkju 19. september
2013.
firðingar kölluðum
hann. Villi kom
fyrst til mín að
hausti fyrir tæpum
fjórum árum þegar
ég varð óvinnufær
vegna bakslæmsku.
Það var ánægju-
legt að fá Villa,
hann sá um allt
sem þurfti að gera.
Þegar haustaði tók
hann inn féð og sá
um það. Hann var einstakt
snyrtimenni, umgengni um hús
og skepnur eins og ætti að
mynda fyrir Hús og híbýli
næsta dag.
Agnar H. Gunnarsson.
Smáauglýsingar
Snyrting
Spænskar gæðasnyrtivörur, fram-
leiddar úr náttúrulegum hráefnum,
og eru fyrir alla daglega umhirðu
húðar. Fjölbreyttar vörur sem henta
allri fjölskyldunni. Sjá nánar í
netversluninni: www.babaria.is
Húsgögn
Barnahúsgögn
Þið finnið okkur á Facebook
undir Litla Trévinnustofan eða í
síma 845-4096.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ
Einkar léttir og þægilegir dömuskór
úr mjúku leðri.
TILBOÐSVERÐ: 2.500.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
VANDAÐIR ÞÝSKIR HERRASKÓR
ÚR LEÐRI , SKINNFÓÐRAÐIR OG
MEÐ GÓÐUM SÓLA
Teg. 206204 23 Vandaðir herraskór
úr mjúku leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 41-47. Verð: 16.975.
Teg. 455201 340 Vandaðir herraskór
úr mjúku leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 41-47. Verð: 17.975.
Teg. 308204 354 Vandaðir herraskór
úr mjúku leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 40-47. Verð: 15.885.
Teg. 416407 35 Vandaðir herraskór
úr mjúku leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 40-47. Verð: 21.600.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - fös. 10 - 18.
Lokað laugardaga.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
NÝKOMIÐ AFTUR FRÁ LIZ
Teg. 72390 - Frábær aðhaldsbolur í
stærðum S, M, L, XL á kr. 6.550.
Teg. 50390 - Mjúkar aðhaldsbuxur í
S, M, L, XL, 2X á kr. 3.550.
Teg. 53690 - Krókabuxurnar sívin-
sælu í S, M, L, XL, 2X á kr. 5.990.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-föst. 10-18,
Lokað á laugardögum.
Þú mætir - við mælum
og aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Ökukennsla
Kenni á BMW 116i
Snorri Bjarnason,
sími 892 1451.
Bilaskoli.is