Morgunblaðið - 25.09.2013, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013
Hausthefti tímaritsins Þjóðmála er
komið út. Meðal efnis í því er grein
Óla Björns Kárasonar um verkefni
hagræðingarnefndar ríkisstjórn-
arinnar og Björn Bjarnason skrifar
af vettvangi stjórnmálanna í grein-
inni „Úr viðjum ESB-viðræðna til
vestnorrænnar forystu“. Af öðru
efni má nefna að Bjarni Jónsson
fjallar um „ógöngur hins opinbera“
á undanförnum árum og hvernig
snúa eigi af þeirri braut; Hannes H.
Gissurarson segir frá nýlegu þingi
Mont Pélerin-samtakanna á Gala-
pagos-eyjum og uppgötvar óvænt
Íslandstengsl á framandi slóðum;
Vilhjálmur Bjarnason fjallar um
skýrsluna um Íbúðalánasjóð og tek-
ur fyrrverandi ríkisendurskoðanda
til bæna og Jónas Ragnarsson segir
frá fréttaflutningi á Íslandi af dráp-
inu á Kennedy Bandaríkjaforseta
fyrir 50 árum. Jafnframt er í haust-
ritinu birt brot úr nýjum eftirmála
Barböru Demick úr 2. útgáfu bókar
hennar um daglegt líf í Norður-
Kóreu, Engan þarf að öfunda.
Haust Kápa haustrits Þjóðmála. Ritið
er gefið út vetur, sumar, vor og haust.
Hausthefti Þjóð-
mála komið út
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Allar lúðrasveitir landsins, skipaðar
fullorðnum hljóðfæraleikurum, munu
koma saman á sannkölluðum stór-
tónleikum í íþróttahúsinu í Þorláks-
höfn 5. október nk. Lúðrasveita-
meðlimir verða um 200 í heildina og
verður þeim skipt í þrjár stórar sveit-
ir á tónleikunum. Ein mun leika með
Jónasi Sigurðssyni, önnur með
hljómsveitinni 200.000 naglbítum og
sú þriðja með karlakórnum Fjalla-
bræðrum en allir þessir listamenn
eiga það sameiginlegt að hafa á ferli
sínum unnið með lúðrasveitum. Sér-
stakur gestur Fjallabræðra á tón-
leikunum verður söngvarinn Sverrir
Bergmann. Tónleikarnir eru hluti af
landsmóti Sambands íslenskra lúðra-
sveita sem Lúðrasveit Þorlákshafnar
skipuleggur að þessu sinni og fer
fram í Þorlákshöfn 4.-6. október.
Undir lok tónleikanna koma svo allir
blásararnir saman og leika þrjú lög,
eitt með Jónasi, annað með 200.000
naglbítum og þriðja með Fjalla-
bræðrum.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir,
framkvæmdastjóri Popphornsins,
segir að mikill uppgangur hafi verið
hjá lúðrasveitum landsins undanfarin
misseri og að hann hafi m.a. ein-
kennst af samstarfi við landsþekkta
tónlistarmenn á borð við Jónas. „Okk-
ur fannst þetta landsmót núna þurfa
að endurspegla þennan uppgang,“
segir hún.
250 tónlistarmenn í heildina
„Þetta er alveg örugglega Íslands-
met,“ segir Ása og hlær, spurð að því
hvort slíkt met verði ekki slegið hvað
varðar stærð lúðrasveitar á tónleikum
hér á landi. „Við héldum landsmót
hérna í Þorlákshöfn fyrir fimm árum
og þá voru 90 manns. Nú eru þeir
komnir upp í 190 og ég held að þeir
fari upp í 200, það eru ennþá að tínast
inn skráningar,“ segir Ása og bætir
því við að í heild muni um 250 tónlist-
armenn koma fram á Popphorninu.
Stjórnendur lúðrasveitanna
þriggja á tónleikunum verða Róbert
Darling, stjórnandi Lúðrasveitar
Þorlákshafnar; Jarl Sigurgeirsson,
stjórnandi Lúðrasveitar Vest-
mannaeyja, og Kári Húnfjörð Ein-
arsson, stjórnandi Lúðrasveitar
verkalýðsins.
Tónleikarnir hefjast kl. 19 og fer
miðasala fram á midakaup.is.
„Þetta er alveg
örugglega Íslandsmet“
200 lúðrasveita-
meðlimir koma sam-
an á Popphorninu
Á sjó Jónas Sigurðsson með Lúðrasveit Þorlákshafnar. Sveitin lék með hon-
um á síðustu plötu hans, Þar sem himin ber við haf, og á útgáfutónleikum.
Fæst einnig í veFverslun stoðar
31ár
1982-2013
Trönuhrauni 8 | 220Hafnarfirði | Sími 565 2885
Opið kl. 8 - 17 virka daga | stod@stod.is | www.stod.is
Þar sem
sérFræðingar
aðstoðaÞig
viðvalá
hlíFum
Við styðjum þig
STOÐ
P
O
R
T
hö
nn
un
16
12
12
„Hressasta, líflegasta og litríkasta fjölskyldumyndin
sem þú finnur á þessu ári. Betri en fyrri.“
T.V. - Bíóvefurinn/S&H
HHH
ÍSL TAL
ENSKT TAL
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
L
DIANA Sýnd kl. 5:30 - 8 - 10:30
MALAVITA Sýnd kl. 8 - 10:20
AULINN ÉG 2 3D Sýnd kl. 5:30
DESPICABLE ME 2 2D Sýnd kl. 5:30 - 8
JOBS Sýnd kl. 10:20
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
Á TOPPNUM Í ÁR
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
RIDDICK KL.8-10:30
RIDDICKVIP2 KL.5:30-8-10:30
THEBUTLER KL.6-9
PARANOIA KL.8-10:30
AULINNÉG ÍSLTAL3D KL.5:50
AULINNÉG ÍSLTAL2D KL.5:50
AULINNÉGENSTAL2D KL.5:50
THECONJURING KL.8-10:30
FLUGVÉLAR ÍSLTAL2D KL.5:50
WERETHEMILLERS KL.8 - 10:30
KRINGLUNNI
THE BUTLER KL. 5 - 8 - 10:30
RIDDICK KL. 10:45
CITY OF BONES KL. 8
FLUGVÉLAR ÍSLTAL3D KL. 5:50
KVIKMYNDADAGAR 11. - 26. SEPTEMBER
MUD ÓTEXTUÐ KL. 10:20
MIDNIGHTS CHILDREN ÓTEXTUÐ KL. 5
TO THE WONDER ÓTEXTUÐ KL. 8
RIDDICK KL. 5:30 - 8 - 10:30
THE BUTLER KL. 5:20 - 8 - 10:40
AULINN ÉG ÍSLTAL2D KL. 5:50
PARANOIA 2 KL. 8 - 10:20
CITY OF BONES KL. 5:20
THE CONJURING KL. 8 - 10:30
NÚMERUÐ SÆTI
AKUREYRI
RIDDICK KL. 8 - 10:30
THE BUTLER KL. 8
PARANOIA 2 KL. 10:40
CITY OF BONES KL. 5:30
FLUGVÉLAR ÍSLTAL3D KL. 5:50 KEFLAVÍK
RIDDICK KL.8-10:30
THEBUTLER KL.8
PARANOIA KL.10:40
SAN FRANCISCO CHRONICLE
T.V. - BÍÓVEFURINN/S&H
T.V. - BÍÓVEFURINN/S&H
JOBLO.COM
HRESSASTA, LÍFLEGASTA OG LITRÍKASTA
FJÖLSKYLDUMYNDIN SEM ÞÚ FINNUR Á ÞESSU ÁRI.
BETRI EN FYRRI.
EIN SÚ SVALASTA Í ÁR.
A.O.S NEW YORK TIMES BOSTON GLOBE
Á TOPPNUM Í USA 3 VIKUR Í RÖÐ
FORRESTWHITTAKEROGOPRAHWINFREY
FARA ALGJÖRLEGA Á KOSTUM!
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á