Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.9. 2013
Fátt skiptir meira máli í lífinu en
hvernig við komum fram við ann-
að fólk. Eftir okkar dag er ólíklegt
að nokkur muni hvað við vorum
með í laun, hvernig bíl við áttum
eða hvers konar parket við völd-
um á stofuna. En líklega man fólk
hvort við brostum til þess eða
ekki. Hvort við komum almenni-
lega fram eða sýndum fálæti.
Í Sunnudagsblaðinu í dag er
farið um víðan völl sem fyrr. Ung
leikkona, Elma Stefanía Ágústs-
dóttir, sem er að stíga sín fyrstu
skref í Þjóðleikhúsinu, talar um
kvíða og ótta sem hún tekst á við
með heilbrigðu líferni. Lögfræð-
ingurinn Ásta Sóley Sigurðar-
dóttir ræðir opinskátt um reynslu
sína af því að greinast með ADHD
á fullorðinsárum og lýsir því
hvernig henni hefur tekist að lifa
með sjúkdómnum.
Útrás íslenskra glæpasagna er
til umfjöllunar en okkar fámenna
þjóð á fjölda hæfra höfunda sem
selja bækur til ótal landa.
Í blaðinu í dag er líka sterk frá-
sögn blaðamanns úr flóttamanna-
búðum í Úganda. „Mæður gáfu
ungum börnum sínum brjóst og
nudduðu fætur þeirra eldri. Hit-
inn var mikill og ferðalagið hafði
tekið toll af mörgum. Það sást
best á börnunum sem reyndu að
sofa með höfuð á öxl mæðra
sinna,“ segir um hóp flóttamanna
sem var nýkominn í búðirnar.
Með því að deila sögum hjálp-
um við hvert öðru. Börnin í flótta-
mannabúðunum í Úganda hafa
fyrir tilstilli blaðamanns frá Ís-
landi deilt broti af sinni sögu með
lesendum hér heima. Nú er það
okkar að finna út úr því hvað við
gerum við þessa frásögn. Kannski
getum við komið almennilega
fram við þau. Geymt frásögnina
með okkur og munað eftir henni
næst þegar við ætlum að setja
peningana okkar í að kaupa eitt-
hvað sem ekki vantar.
RABBIÐ
Máttur frásagnarinnar
Eyrún Magnúsdóttir
Það er gömul list og göfug að yrkja sinn garð. Það hefur þessi ágæti maður án efa haft í huga þegar hann rakaði saman laufinu í Grasagarðinum í Laug-
ardalnum fyrir helgina. Haustið er komið með allri sinni litadýrð og Íslendingar, alltént þeir sem búa á suðvesturhorninu, vona að það verði milt og gott
þetta árið. Einskonar sárabót fyrir sumarið sem aldrei kom. Raunar má með ágætum rökum halda því fram að haustið ríki hér syðra allt árið um kring. Í
það minnsta sagði góður maður einhverju sinni að veðrið væri alltaf eins í höfuðborginni og nágrenni, bara fáeinum gráðum heitara yfir þann part sem í
útlöndum er kallaður „sumar“. Sitthvað til í því.
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Ómar
AÐ YRKJA SINN GARÐ
HAUSTLAUFIN ERU TEKIN AÐ FALLA AF TRJÁNUM OG VETUR KONUNGUR RÍÐUR SENN KOTROSKINN Í HLAÐIÐ
– MEÐ TILHEYRANDI FÖRUNEYTI. SUMIR HALDA ÞVÍ RAUNAR FRAM AÐ SUMARIÐ HAFI ALDREI KOMIÐ.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Húð-
flúrsráðstefna
Hvar? Súlnasal
Hótel Sögu
Hvenær? Opið
öllum kl. 12-24
laugardag og 12-19 sunnudag
Nánar: Húðflúrarar víða að úr heim-
inum sýna listir sínar. Kostar 1500 krón-
ur inn, frítt fyrir börn 12 ára og yngri.
Flúrað fyrir gesti
Hvað? Bókmenntahá-
tíð í Reykjavík
Hvar? Norræna hús-
inu, Iðnó og víðar
Hvenær? Fjöldi við-
burða og upplestra
laugardag og sunnudag.
Nánar: Dagskrá á bokmenntahatid.is.
Bækur bækur bækur
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? 30 ára afmælissýning 4x4
Hvar? Fífunni Kópavogi
Hvenær? Kl. 12-18 laugardag og
sunnudag
Nánar: Breyttir jeppar og saga 4x4
klúbbsins sögð. Aðgangur 1.000 krónur,
helgarpassi 1.500 krónur.
Tröll í Fífunni
Hvað? Næstsíðasta
umferð 1. deildar
karla í knattspyrnu.
Hvar? Leikið víða um
land.
Hvenær? Sex leikir á
laugardag kl. 14.00
Nánar: 1. deildin hefur sjaldan verið
eins spennandi.
Fyrsta flokks fótbolti
Hvað? Tónleikar „Þú getur“-sjóðsins.
Hvar? Eldborg, Hörpunni.
Hvenær? Sunnudag kl. 20.
Nánar: Ágóði tónleikanna fer í að
styrkja til náms einstaklinga sem hafa átt
við andleg veikindi að stríða.
Andlegir tónleikar
Hvað? Sýning á íslenskri vídeólist frá
1975-1990.
Hvar? Hafnarhús, listasafn Reykjavíkur.
Hvenær? Laugardag.
Nánar: Markmiðið með sýningunni er
að draga fram verk sem sýna fyrstu til-
raunir íslenskra listamanna til að nota
vídeómiðilinn til listsköpunar.
Íslensk vídeólist
* Forsíðumyndina tók Árni Sæberg.