Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Blaðsíða 19
Bókin var kynnt á Bókamessunni í Frankfurt 2011.
Áður hafði hún aðeins verið opin fólki í bók-
menntageiranum. Þarna hugsaði Emil Þór
með sér að það gæti ekki verið að mjög
margir nenntu að mæta svona snemma.
„En það var fullur salur og sumir þurftu að
sitja á gólfinu,“ segir hann. Þremur mánuðum
síðar fóru Arndís Halla og Emil Þór í sam-
starfi við Icelandair til Oberursel í Þýskalandi
til að kynna Ísland í máli og myndum, ásamt
því að kynna nýju bókina. „Það sama gerðist
þar, við sprengdum húsið utan af okkur,“ seg-
ir Emil Þór. Eftir Bókamessuna í Frankfurt
varð bókin sú söluhæsta á Amazon í Þýska-
landi af liðlega 70 Íslandsbókum hátt í heilt
ár. „Einhver markaður er þarna fyrir Ísland,“
segir Emil Þór og brosir.
Eftir góðar viðtökur í Frankfurt kviknaði
sú hugmynd hjá Emil Þór að setja upp „kúlt-
úrkvöld“ með Arndísi Höllu fyrir ferðamenn
á Íslandi. Emil Þór sá fyrir sér kvöld þar
sem þau tvö kynntu Ísland í myndum og tón-
list. Stuttu síðar hringdi Arndís Halla í hann
og sagði: „Ég er tilbúin með þetta!“ Enda
þaulvön sýningarbransanum. Hugmyndin var
að gera þetta að léttri og skemmtilegri kvöld-
stund, einskonar fræðsluskemmtun með tón-
list og lifandi fróðleik. Þau byrjuðu í fyrra-
haust að prufukeyra kúltúrkvöldin og hafa
viðtökurnar verið mjög góðar.
Mikið vatn hefur því runnið til sjávar síðan
Emil Þór keypti disk Arndísar Höllu og fór
að máta myndir sínar í huganum við tónlist
hennar. „Við köstuðum einfaldlega á milli
okkar hugmyndum og svo hefur Arndís Halla
svo mikla reynslu af sviðsframkomu,“ segir
Emil. Á kúltúrkvöldunum hefur hann komist
að því að áhorfendur hafa einnig gaman af
því að hitta ljósmyndarann, manninn á bak
við myndavélina, og heyra hann lýsa sínu
sjónarhorni á tilveruna.
Ný bók í vinnslu?
Þessa dagana er Emil Þór að vinna að nýrri
bók í Iceland Original- bókaflokknum, sem
mun bera titilinn „Iceland Exotic?“. Arndís
Halla skrifar formálann í bókina. „Ég var
aldrei viss um nafnið fyrr en ég setti spurn-
ingarmerkið fyrir aftan það, en þá var ég bú-
inn að varpa staðhæfingunni yfir á lesendur,“
segir Emil sem er í raun að spyrja hvort
nokkuð sé eitthvað framandi við Ísland.
Arndís Halla er hinsvegar að setja saman
geisladisk með íslenskri tónlist sem kemur út
síðar á árinu. Emil Þór líkir verkferlinu við
nýjustu bókina við það þegar Arndís vinnur
tónlistina sína. „Maður er stöðugt að leita að
rétta hljómnum.“ Þessir fjölhæfu listamenn
stefna á að halda samstarfinu áfram og hver
veit nema önnur bók líti dagsins ljós von
bráðar.
Arndís Halla tekur lagið á ferðakaupstefnu í Berlín. Arndís Halla með bókina sem sló sölumet á Amazon í Þýskalandi.
* Eftir góðar viðtökur í Frankfurt kviknaði súhugmynd hjá Emil Þór að setja upp „kúltúr-kvöld“ með Arndísi Höllu fyrir ferðamenn á Íslandi.
15.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Langtímaleiga
Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram
allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða.
Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun,
tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert
vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald.
Losnaðu við vesenið með langtímaleigu
Kynntu þér málið í síma 591-4000
Vetrarleiga frá46.900 kr.á mánuði!
0 kr. útborgun
Á
R
N
A
S
Y
N
IR