Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Blaðsíða 36
Fréttir um að Microsoft hefði keypt farsímahluta Nokia komu vænt-anlega fáum á óvart, eða í það minnsta ekki þeim sem fylgst hafa meðfarsímamarkaðnum undanfarin ár. Hvernig Microsoft mun síðan ganga
að byggja vörumerkið upp að nýju er erfitt að spá um, en nýr sími, Lumia
925, sýnir að tæknilega stendur Nokia jafnfætis hvaða símaframleiðanda
sem er.
Nokia Lumia 925 er ekki svo frábrugðinn
Lumia 920, reyndar ansi líkur þegar grannt er
skoðað. Ég geng ekki svo
langt að segja að inn-
volsið sé það sama, en þó
er sami örgjörvinn í báð-
um símunum, Dual-core
1.5 MHz Snapdragon, og
sömu örgjörvar reyndar
því grafík-örgjörvinn er
líka sá sami og sama
vinnsluminni.
Myndavélin er og frá-
bær, 8,7 milljón dílar
með Carl Zeiss fljótandi linsu, og sú besta sem ég
hef séð á snjallsíma. Það er þó ekki bara vélin
sjálf, linsan og tilheyrandi sem gerir hana svo
góða heldur er hugbúnaðurinn sem fylgir, Crea-
tive Studio, sérdeilis hugvitssamur. Síminn tekur
Full HD vídeó, 30 ramma á sek., og vert að geta
GÆÐAGRIPUR FRÁ NOKIA
MICROSOFT GLEYPTI FARSÍMAHLUTA NOKIA UM DAGINN OG UM LÍKT LEYTI KOM Á MARKAÐ NÝR NOKIA-SÍMI,
LUMIA 925, SEM STENST SAMJÖFNUÐ VIÐ FLESTA, EF EKKI ALLA FARSÍMA Á MARKAÐI Í DAG.
Græja
vikunnar
* Tengimöguleikar erunógir, síminn styður 802.11
a/b/g/n þráðlaus net, 3G, 4G
og svo framvegis, NFC og
DLNA, það fyrra til að
skiptast á gögnum með
snertingu við áþekkt tæki og
það síðarnefnda til að
streyma efni þráðlaust í
sjónvarp, hljómflutningstæki,
prentara eða ámóta tæki.
* Samskonar 200 mAhrafhlaða er í Lumia 925 og
Lumia 920, en nú nýtir sím-
inn rafmagnið betur svo hún
endist lengur; 440 í bið og
hálfan þrettánda tíma í tali.
Þráðlaus hleðsla gengur ekki
við símann en hægt að
kaupa sérstakt bak á hann
til þess.
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Skjárinn á símanum er4.5“ AMOLED ClearBlack
upplausninni 1280x768, 334
ppi, jafn stór og á 920, en
önnur tækni á bak við hann
sem gerir hann betri, fram-
úrskarandi reyndar.
þess að hljóðupptakan er fáránlega góð miðað við ekki stærri hljóðnema.
Verulegar breytingar hafa líka verið gerðar á símanum sjálfum, húsinu
utan um hann; hann er þynnri og léttari og kanturinn á honum er úr áli.
Fyrir vikið er hann með glæsilegri símum og fer einkar vel í hendi. Rétt að
geta þess að hann kostar 99.950 kr.
Stýrikerfið á símanum er það sem flestir setja fyrir sig, eða réttara sagt
að það sé ekki á honum Android-stýrikerfi. Það
er líka smá skref að stíga inn í Windows fyrir
farsíma, en eftir að hafa notað símann sem að-
alsíma í tvær vikur kann ég mjög vel við hann.
Rétt er þó að taka fram að ekki er allur hug-
búnaður til fyrir Windows Phone, til að mynda
saknaði ég Dropbox, en nota SkyDrive í staðinn,
Facebook-forritið er frá Microsoft en ekki Fa-
cebook, það er ekkert Instagram, þó til séu
ágæt forrit sem vinna eins, og ekkert Gmail svo
dæmi séu tekin. Ég saknaði aftur á móti ekki
Google Maps, enda er kortaþjónusta Nokia
framúrskarandi.
Það segir kannski ekki mikið að Lumia 925 sé
besti Windows Phone síminn á markaði í dag og
væntanlega finnst engum það mikil tíðindi að
hér sé kominn besti Nokia-síminn, en kannski
menn sperri eyrun við þessu: Nokia Lumia 925
er frábær sími sem stenst samjöfnuð við flesta,
ef ekki alla farsíma á markaði í dag.
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.9. 2013
Græjur og tækni
A
pple kynnti til sögunnar tvo nýja síma í
vikunni sem leið. Annars vegar er um
að ræða hágæðasíma í ætt við þá sem
við höfum kynnst frá Apple til þessa og
mun bera heitið iPhone 5S. Hins vegar var um
óýrari gerð af síma að ræða sem nefnist iPhone
5C. Þá tilkynntu þeir einnig um nýja útgáfu smá-
tækjastýrikerfisins iOs sem heitir iOS 7, en það
mun drífa öll snjalltæki Apple, bæði iPod touch,
iPad og iPhone.
Eins og gefur að skilja hefur mestur styr staðið
um nýja flaggskipið, iPhone 5S símann. Hann mun
leysa af hólmi iPhone 5 símann, en framleiðslu
hans verður hætt. Fram til þessa hefur framleiðsla
eldri módela haldið áfram, en verið seld ódýrari.
5S síminn tekur talsverðum breytingum frá því
sem við þekkjum frá fyrri símum frá Apple. Má
þar helst nefna talsvert betri myndavél, betri
vinnslugetu og fingrafaraskanna. Þá bætist nýr lit-
ur við þessa vörulínu Apple, en síminn verður nú
fáanlegur í gylltum lit, auk hinna hefðbundnu hvítu
og svörtu lita.
Miklar nýjungar
Nýja myndavélin er þeim kostum gædd að linsan
hefur ljósop ƒ2,2, en fyrri linsur Apple hafa notast
við ƒ2,4. Þótt það hljómi ekki eins og mikill mun-
ur, þá gefur stærra ljósop notendum talsvert betri
myndir við léleg birtuskilyrði. Þá hefur Apple bætt
við jafnvægisskynjara (image stablization) við
myndavélina, sem dregur úr hættunni á hreyfðum
myndum. Síðast en ekki síst hefur myndavélin
talsvert stærri skynjara sem gerir það að verkum
að hægt er að notast við minni díla í myndum en
reyndin hefur verið hingað til. Þá hefur mynd-
bandsupptakan verið bætt talsvert, en nú er hægt
að taka myndbönd sem skila allt að 120 römmum
á sekúndu, sem gerir það mögulegt að sýna mjög
hægar endursýningar án þess að tapa neinu í
gæðum. Með þessum breytingum má reikna með
að myndavélin í iPhone 5S standi fyllilega jafn-
fætis því besta sem þekkist í farsímum.
Apple 5S býður upp á A7-örgjörva sem er tals-
vert hraðari en A6-örgjörvinn sem prýddi iPhone
5. Þá er einnig talsvert öflugra vinnsluminni fyrir
grafík í símanum. Apple fullyrðir að þetta skili
síma sem sé allt að tvöfalt fljótari en fyrri sími.
Nýjasta viðbótin við símann er svo fingra-
faraskanni, sem gerir leyniorð og aðrar slíkar auð-
kenningar óþarfar. Nú þarf einungis að styðja
fingri á hnapp til að opna símann, eða til að sam-
þykkja kaup á forritum í gegnum App Store svo
eitthvað sé nefnt.
Ódýrari sími fyrir nýja markaði
Samhliða 5S símanum kynnti Apple einnig nýja
gerð síma sem nefnast iPhone 5C. C-ið er sagt
standa fyrir „colour“ þó gárungarnir vilji margir
meina að það standi fyrir „China“. Þessi sími er
fáanlegur í nokkrum björtum litum, en síminn er
gerður úr plasti, sem er nýjung frá Apple, þar
sem iPhone hefur hingað til einungis verið fáan-
legur í áli. Plastnotkunin er til þess hugsuð að
draga úr framleiðslukostnaði við símann, en inn-
volsið er að mestu leyti það sama og prýddi fyr-
irrennarann iPhone 5.
Með því að bjóða upp á ódýrari útgáfu af iP-
hone er Apple að leita leiða til að sækja á nýja
markaði og auka hlutdeild sína til að reyna að
halda í við útbreiðslu Samsung og annarra Andro-
id-síma. Sérfræðingar telja að Apple sé einkum að
leita leiða til að sækja inn á hinn ört vaxandi far-
símamarkað í Kína, en þar fjölgar notendum mjög
hratt og er eftir miklu að slægjast fyrir Apple,
sérstaklega þar sem tekjur fyrirtækisins eru ekki
einungis bundnar við símasöluna, heldur einnig for-
rit sem seld eru í App Store, og afþreyingu sem
seld er í gegnum iTunes. Kínverjar keyptu alls
Hvað er títt frá Cupertino?
AFP
FYRIRTÆKIÐ APPLE KYNNTI Í VIKUNNI NÝJAR VÖRUR Í HÖFUÐSTÖÐVUM SÍNUM Í CUPERTINO Í KALIFORNÍU.
LÍKT OG JAFNAN ER MEÐ NÝJAR VÖRUR FRÁ APPLE HEFUR MIKIÐ VERIÐ FJALLAÐ UM ÞÆR Í FJÖLMIÐLUM, ENDA KYNNTI
FYRIRTÆKIÐ TVO NÝJA SÍMA SEM LÍKLEGT ER AÐ MUNI NJÓTA MIKILLA VINSÆLDA Á NÆSTU MÁNUÐUM.
Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com
Apple aðdáandi hefur komið sér fyrir á gangstétt fyrir framan Apple verslun í Tokyo.
APPLE KYNNIR TVÆR NÝJAR GERÐIR AF SNJALLSÍMUM