Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Blaðsíða 60
EFTIR RÚMAN MÁNUÐ KEMUR ÚT NÝ BÓK EFTIR SIR ALEX FERGUSON, MY AUTOBIOGRAPHY. FERGUSON ÆTLAR ÞAR AÐ SEGJA FRÁ ÖLLU, EITTHVAÐ SEM GÆTI SKEMMT MÖRGUM EN MARGIR ERU MEÐ KVÍÐAHNÚT. WAYNE ROONEY, ROY KEANE, DAVID BECKHAM OG FLEIRI FÁ VÆNTANLEGA Á BAUKINN ÞVÍ FERGUSON HEFUR HAFT ÞANN VANA AÐ EIGA SÍÐASTA ORÐIÐ. F yrir nokkrum árum kynnti Manchester United nýjar reglur. Bækur sem leik- menn væru að skrifa yrðu að fara í gegn- um félagið fyrst. Ástæðan var meðal ann- ars að Roy Keane fór í 8 leikja bann og þurfti að borga 150 þúsund punda sekt eftir að hafa játað að hafa ætlað að meiða Alf Inge Halland í sinni bók. Keane hafði aldrei gleymt því að Haaland, sem þá spilaði með Leeds, hefði öskrað á hann þar sem hann lá sárþjáður nýbúinn að rífa liðband í hné. Keane hafði fallið skringilega inn í teig Leeds og kom Halland að honum og öskraði: „Hættu þessum leikaraskap og stattu upp. Hættu þessu væli.“ Keane sagði í bókinni að hann hefði aldrei gleymt þessu og að hefndin hefði verið sæt. „Ég hafði beðið nógu lengi. Ég hitti hann af öllu mínu afli þó ég haldi að boltinn hafi verið þarna einhvers staðar nálægt. Hafðu þetta, fávitinn þinn. Jafnvel eftir leikinn var mér sama. Hann fékk það sem hann átti skilið. Auga fyrir auga var mitt viðhorf.“ Haaland spilaði aldrei heilar 90 mínútur eftir þetta en tæklingin kom á hægra hnéð. Það var þó vinstra hnéð sem endaði ferilinn. Hollenski kjaftaskurinn Jaap Stam hafði sömuleiðis látið orð falla sem komu sér illa fyrir Alex Ferguson og félagið í sinni bók, Head to Head. Þar sagði Stam að Ferguson hefði beðið menn um að ýkja brot, leika og reyna að fiska í Evrópuleikjum. Hann kallaði Neville- bræðurnar aumingja sem væru skíthælar, við- urkenndi að Manchester hefði nálgast sig ólöglega (Stam hitti Ferguson við flugvöllinn í Amsterdam og samdi þar við félagið, hann varð að halda því leyndu) og þá kallaði hann andstæðinga sína svindlara og annað miður fallegt. Síðan þessar reglur voru settar hafa komið bækur eftir Ronaldo, Paul Scholes, Ryan Giggs og fleiri sem sögðu eig- inlega ekki neitt. Bókin hans Ronaldo var myndablað, Giggs játaði að hafa kýlt mann og Scholes sagðist hata bláa bún- ing Manchester United. Ekki beint skemmtilegt. Og það var auðvitað Fergu- son sem setti þessar reglur en hann þarf ekkert að fara eftir þeim núna þegar hann er hættur. 14 árum eftir að síð- asta bók hans kom út er búist við allskonar játn- ingum og sprengjum. Enda ansi margt búið að ger- ast hjá Manchester United, í lífi Ferguson og í kringum félagið síðan síðasta bók kom út. Ensku blöðin verða uppfull af allsskonar fróðleik úr bók- Sir Alex Ferguson og Roy Keane voru eitt sinn góðir vinir og félagar. Ekki lengur. Trúlega verður frægt viðtal við Keane, sem aldrei birtist, til umfjöllunar í bókinni. Þar talaði Keane tæpitungulaust um félaga sína, eitthvað sem Fergie líkaði ílla. AFP Roy Keane fékk alls átta leikja bann fyrir fólskulega tæklingu sem hann viðurkenndi í bók sinni að hefði verið viljandi. Sir Alex Ferguson hefur haft þann sið að eiga síðasta orðið. Bókar hans er beðið með mikilli eftirvænt- ingu. Hárþurrkan enn í gangi 60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.9. 2013 Boltinn BENEDIKT BÓAS benedikt@mbl.is „Þetta var ótrúlegt atvik. Þótt ég reyndi aftur milljón sinnum þá myndi þetta aldrei gerast aftur.“ Ferguson eftir að hafa óviljandi sparkað í skó sem endaði í höfðinu á David Beckham árið 2003.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.