Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Síða 30
Fyrir 1
3 msk. kínóaflögur
½-1 tsk. kanill
2 dl vatn
1 dl íslensk aðalbláber eða
bláber
½ tsk. smjör eða kókósolía
½-1 tsk. hunang eða
engiferhunang
sjávarsalt
Setjið vatn, kanil, salt og kínóa-
flögur í pott og sjóðið í 1–2 mínútur
án loks, þar til grauturinn er orðinn
þykkur. Athugið að í þennan graut
eru notaðar kínóaflögur en ekki heil
kínóagrjón, sem tekur mun lengri
tíma að sjóða. Bætið síðan frosnum
eða ferskum berjum út í og hitið í
örstutta stund, eða þar til graut-
urinn er orðinn fallega fjólublár á lit-
inn. Setjið hann þá í skál og hrærið
smjörklípu og hunang saman við. Til
að búa til engiferhunang er ferskur
engifer rifinn í krukku og fljótandi
hunangi bætt við þar til það flýtur yf-
ir, en það geymist í margar vikur á
þennan hátt.
TEBLAND
VIÐ KVEFI OG
FLENSU
1 msk. vallhumall
1 msk. blóðberg eða
garðablóðberg (timjan)
1 msk. fjallagrös, mulin
1 msk. hvannarfræ
2 cm ferskur engifer,
saxaður
Tejurtirnar eru settar í 750 ml hitabrúsa og sjóðandi vatni hellt yfir. Síið jurt-
irnar frá þegar hellt er í bolla en setjið þær svo aftur í hitabrúsann og látið
liggja í allan daginn. Drekkið einn hitabrúsa af tei á dag.
Morgun-
grautur
grasalæknisins
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.9. 2013
Matur og drykkir
Þ
etta er hér um bil eina rútínan í lífi mínu – að
borða þennan graut. Það er svo mikil forvörn í
honum og fyrir utan vítamínin þá innihalda blá-
berin auðvitað svo mikið af andoxunarefnum.
Hann er sem sagt bráðhollur þótt hann líti kannski ekki
sérlega vel út,“ segir Anna Rósa Róbertsdóttir grasa-
læknir og hlær. Anna Rósa tínir marga lítra af bláberj-
um á hverju hausti enda þarf hún að geta gert grautinn
sinn alveg þar til annar berjamór býðst að ári.
Anna Rósa bjó til grautinn fyrst þegar hún var með
sjúklinga í ráðgjöf hjá sér vegna glútenóþols en kínóa er
glútenlaust og afar próteinríkt. Brátt var hún þó farin að
elda hann handa sjálfri sér á hverjum degi enda er
grauturinn fljóteldaður og inniheldur fá hráefni. „Á
sunnudögum bæti ég rjóma saman við.“
Anna Rósa gaf Sunnudagsblaði Morgunblaðsins einnig
uppskrift að te en sjálf hugar hún vel að forvörnum fyrir
haustflensur og kvef. Bæði tekur hún tinktúrur þær sem
hún hefur útbúið og margir þekkja að góðu, en þær inni-
halda kröftugar lækningajurtir, og svo drekkur hún heil-
an lítra af jurtatei á dag þegar henni líður eins og
ónæmiskerfið sé eitthvað að veikjast. Meðal tinktúra
Önnu Rósa sem njóta vinsælda er einn rótsterkur flen-
subani sem kallast Sólhattur og hvönn og er fullur af
pipar og engiferi.
„En varðandi grautinn má líka benda á að ef fólk lang-
ar í enn matarmeiri graut má bæta í hann fræjum og
möndlum að vild og auðvitað má svo hafa hvaða ber sem
er; kræki-, jarðar- ,hind- og hrútaber. Sjálfri finnst mér
hann þó langbestur með aðalbláberjum.“ Benda má les-
endum á að á heimasíðu Önnu Rósu, annarosa.is, er mik-
inn fróðleik um jurtir að finna en sjálf byrjar Anna Rósa
að tína jurtir í maí, byrjar þá á fíflablöðunum, og er tína
langt fram í september. Þetta hefur því verið mikil ann-
atíð og sérstaklega hefur tínslan reynt á núna því hafa
þarf fyrir því að finna berin þar sem spretta er ekki
góð.
Morgunblaðið/Golli
HAUSTGRAUTUR OG TE
Úr berjamó í
grautargerð
Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir fær sjaldan flensu enda
dugleg að neyta fjölbreyttrar fæðu og drekka jurtate daglega.
Bláberjagrauturinn er sneisa-
fullur af andoxunarefnum og
vítamínum og bæta má því við
sem hvern lystir; möndluflögum,
svo og annars konar berjum.
ANNA RÓSA RÓBERTSDÓTTIR GRASALÆKNIR
HEFUR VERIÐ IÐIN Í BERJAMÓ TIL AÐ EIGA Í
GRAUTINN NÆSTU 12 MÁNUÐI.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is