Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Qupperneq 47
15.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47
þjóðminjasafnið í Nuuk og sjá víkingahlut-
ann, svo ég tali nú ekki um inúítahlutann,
sem er gjörsamlega stórbrotinn. Almennt
held ég að Íslendingar viti meira um tunglið
en Grænland.“
Skömmumst okkar ekki
– Hvers vegna er það?
„Ég veit það ekki. Stoltasti menningararf-
urinn sem við eigum er sá sem situr eftir
frá landnámsöld. Menn byrjuðu snemma að
ferðast um heiminn og hringnum var ekki
lokað fyrr en Íslendingar fóru til Grænlands
og þaðan áfram til vesturheims og hittu
skrælingjana þar. Í heimssögulegu tilliti eru
þessar slóðir því mjög merkilegar. Þarna
mættust þessi ólíku menningarheimar í
fyrsta skipti og að mínu áliti eigum við
miklu meira sameiginlegt með fólki sem býr
á Grænlandi en fólki sem býr í Brussel. Það
er engin ástæða til að skammast sín fyrir
sinn norræna uppruna.“
– Við getum þá lært margt af Grænlend-
ingum?
„Að sjálfsögðu. Ekki er til harðgerðari
þjóð. Grænlendingar búa við mjög erfið lífs-
skilyrði en halda eigi að síður uppi háu
menningarstigi. Það er ekki sjálfgefið þegar
brauðstritið er mikið. Vandamálið hefur ver-
ið að danska yfirvaldið dregur allan mátt úr
fólkinu, það höfum við Íslendingar reynt á
eigin skinni. Nú er hins vegar komin ný
kynslóð í Grænlandi sem sér að leggi hún
hart að sér nær hún að gera allt sem henni
dettur í hug. Þessi nýja kynslóð er uppfull
af von en ekki vonleysi og horfir til Íslands
og hvernig við fórum að því að brjótast til
sjálfstæðis. Og það var miklu erfiðara að
vera sjálfstæður árið 1944 en í dag. Ástæð-
an er sú að samgöngur, verslun og viðskipti
milli landa eru nú með allt öðrum hætti en
þá var.
Ég er ekki í vafa um að Grænlendingar
geti blómstrað sem sjálfstæð þjóð.“
Ekki bara Grænland
– Í bókinni talarðu um að bræða saman
samgöngur Íslands og Grænlands. Gerðu
aðeins grein fyrir því sjónarmiði.
„Adam Smith sagði í Auðlegð þjóðanna að
samgöngur væru undirstaða viðskipta, vel-
megunar og verkaskiptingar. Það er því
nauðsynlegt að tengja flutninganet Íslands
og Grænlands, það er hagur beggja. Í dag
er ekki fríverslunarsamningur milli land-
anna sem þýðir að í stað þess að vara fari
beint frá New York í Sundahöfn og þaðan
til Grænlands fer hún í dag gegnum Rotter-
dam og Álaborg áður en annað skip kemur
frá Grænlandi og sækir hana. Þetta er vita-
skuld ekki hagkvæmt.“
– Og það er ekki bara Grænland.
„Einmitt. Það er líka Kanada og Norður-
Noregur, svæði sem eru menningarlega lík
okkur. Svæði sem eiga eftir að blómstra
næstu fimmtíu árin hið minnsta, höldum við
áfram á sömu braut. Það er ekki auðvelt að
finna önnur svæði í heiminum sem hægt er
að segja með vissu að eigi eftir að bjóða
upp á mikinn lífskjarabata á næstu öld. Ís-
land er hjarta þessa svæðis. Ekkert land
liggur betur við til að vera miðstöð þjónustu
fyrir allar stórar framkvæmdir og viðskipti
á norðurslóðum. Góðar íslausar hafnir og
stórir flugvellir. Vissulega búa hér bara
rúmlega þrjú hundruð þúsund manns en við
getum samt hæglega þjónustað milljón.
Þökk sé mikilli fjölgun ferðamanna á síðustu
misserum.“
Þarna liggur framtíðin
– Hvers vegna velurðu bókarformið til að
koma þessum sjónarmiðum á framfæri?
„Ég var búinn að skrifa fullt af greinum
fyrir hrun um það að mér litist ekkert á
gjaldmiðilinn, ekkert á útlánaþensluna og
svo framvegis. Eftir hrun hef ég skrifað
margar greinar um það hvernig hægt sé að
laga stöðuna með tiltölulega einföldum
hætti. Í stað þess að rifja það upp vildi ég
frekar skrifa bók til að sýna fólki fram á
það að þarna liggi framtíðin að mínum dómi.
Trúi menn því er síðan hægt að fara að
ræða saman um leiðirnar.“
– Hvað kom þér mest á óvart þegar þú
fórst að sökkva þér niður í efnið vegna bók-
arskrifanna?
„Það sem kom mér mest á óvart var hvað
þessi lönd á norðurslóðum eiga margt sam-
eiginlegt. Öll eru þau að fást við sömu
vandamál. Fyrst og fremst er það náttúran
sem er óblíð og erfið. Það er líka erfitt að
búa til innviði fyrir lítið samfélög og alls
staðar glíma menn við það vandamál að sum
samfélög dafna meðan önnur visna. Á þessu
þarf að taka. Í þeirri vinnu geta menn klár-
lega haft styrk hverjir af öðrum. Við kunn-
um að lifa á norðurhjara veraldar, látum
hvorki myrkur né kulda buga okkur. Það er
engin ástæða til að barma sér.“
Kerfisgallar til trafala
– Börmum við Íslendingar okkur of mikið?
Liggur vandi þjóðarinnar ef til vill í því eft-
ir hrun?
„Að einhverju leyti. Sumir eru alltof litlir
í sér. Það er engin ástæða til þess. Ég er
samt ekki að kynna þessa norðurslóðasýn
vegna þess að það fór svona illa 2008. Ís-
lenska ríkið gaf út tvær skýrslur árið 2006.
Önnur hét „Alþjóðleg fjármálastarfsemi á
Íslandi“, hin „Ísland á norðurslóðum“.
Stemningin var hins vegar þannig á þeim
tíma að síðarnefnda skýrslan fór fyrir ofan
garð og neðan. Hitt málið var bara miklu
heitara. Nú er öldin önnur. Hvað er betra
við aðstæður eins og nú eru uppi á Íslandi
en að vinna í raunhagkerfinu? Finna eitt-
hvað sem allir hafa not fyrir. Aukið sam-
starf á norðurslóðum er liður í því.“
– Eru einhver ljón í veginum?
„Já, því miður. Gjaldeyrishöftin. Þau tefla
þessari framtíðarsýn í hættu. Það eru kerf-
isgallar á Íslandi sem ollu hruninu. Þeir eru
ennþá til staðar og munu valda öðru hruni
ef ekkert er að gert. Það er óþarfi að vera
með svartsýni en framhjá þessu er samt
ekki hægt að horfa. Rússneskur málsháttur
segir: „Hinn hyggni lærir af mistökum ann-
arra, hinn heimski lærir af eigin mistökum.“
Hvað kallar maður þá þann sem ekki lærir
af eigin mistökum?
Lærdómurinn sem við eigum að draga af
hruninu er sá að hér eru kerfisgallar. Lög-
um við þá geta lífskjör hér á landi án vand-
kvæða verið framar því sem annars staðar
býðst – næstu hundrað árin. Það er undir
okkar frumkvæði komið. Það eru ýmsir
þættir sem við ráðum ekki, ytri þættir, en
innri þáttunum ráðum við og getum lagað.
Þá erum við búin að búa til sjálfbært og
traust samfélag til framtíðar.“
Fjallgarðurinn við Liverpool Land norður af Ittoqqortoormiit á Grænlandi.
* „Það sem kom mérmest á óvart varhvað þessi lönd á norð-
urslóðum eiga margt sam-
eiginlegt. Öll eru þau að
fást við sömu vandamál.
Fyrst og fremst er það
náttúran sem er óblíð og
erfið. Það er líka erfitt
að búa til innviði fyrir
lítið samfélög og alls
staðar glíma menn við
það vandamál að sum
samfélög dafna meðan
önnur visna.“