Morgunblaðið - 07.10.2013, Side 13

Morgunblaðið - 07.10.2013, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2013                                                                            !                            !             "    # $ "  %&' (''' $ )))#   # $    *   # FRÉTTASKÝRING Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Líkja má hruni viðskiptabankanna þriggja haustið 2008 við mannskæðar náttúruhamfarir. Fyrst kemur áfall- ið. Við því er brugðist með neyðar- aðgerðum, í þessu tilviki með setn- ingu neyðarlaganna. Næst tekur við doði, síðan reiði, sem braust út í búsá- haldabyltingunni. Reiðin rann af fólki og þunglyndið helltist yfir. Þá hófst leit að orsökunum en í því skyni var gefin út viðamikil skýrsla um atburði síðustu ára og var Landsdómur kall- aður saman í fyrsta sinn. Leiðin var fetuð að lokatakmarkinu – að sætta sig við hvað gerðist – en erum við komin þangað? Er hægt að kveða upp dóm sögunnar? Þetta sagði Guðni Thorlacius Jó- hannesson sagnfræðingur í erindi sínu á málþinginu „Guð blessi Ísland – fimm árum síðar“ sem haldið var á vegum Sagnfræðingafélags Íslands, Sögufélagsins og Reykjavíkur- Akademíunnar á laugardaginn. Blás- ið var til málþingsins í tilefni þess að fimm ár eru liðin frá hruni. Guðni benti á að erfitt geti verið að leggja mat á atburði skömmu eftir að þeir eiga sér stað. „Sagnfræðingar hafa bent á að ró þurfi að ríkja, að rykið hafi sest.“ Blaðamenn skrifi jafnan fyrsta uppkastið að sögunni en þá liggi ekki fyrir allar upplýsingar. En þegar rykið er sest og öll viðkom- andi gögn hafa verið skoðuð, þá sé hægt að fella dóm sögunnar. Á málþinginu var meðal annars fjallað um kosti og galla rannsókn- arskýrslu Alþingis. Guðni sagði skýrsluna hafa aukið heldur betur við heimildaforðann. „Í henni liggja upp- lýsingar sem við hefðum annars ekki haft neinn aðgang að.“ Hann vísaði í fleyg orð sem féllu þegar skýrslan kom út: „Nú vitum við allt.“ Málið sé hins vegar ekki svo einfalt. „Margt nýtt hefur komið fram en ofmælt er að nú liggi allt fyrir.“ Benti hann á að sérstakur saksóknari hefði ekki sagt sitt seinasta orð og að enn ætti eftir að sveipa, svo dæmi sé tekið, hulunni af ýmsum skjölum í eigu erlendra rík- isstjórna. Það er álit Guðna að verk rann- sóknarnefndarinnar hafi stuðlað að víðtækri sátt, en að annað megi segja um Landsdóm. „Í því máli blinduðu meintir stjórnmálahagsmunir of mörgum sýn. Til varð pólitíska útgáf- an af einkunnarorðum útrásarvíking- anna: Ég má þetta – ég á þetta.“ Íslendingar bregðast við gagnrýn- isröddum erlendis frá eins og þær séu árásir á sjálfsmynd þjóðarinnar, að mati Eiríks Bergmanns stjórnmála- fræðings. „Við reyndum að sýna út- lendingum að hér væri allt í stakasta lagi, í stað þess að skoða sjálf innvið- ina.“ Á málþinginu fjallaði Eiríkur um áhrif efnahagsmála á sjálfsmynd þjóðar sem og áhrif sjálfsmynd- arinnar á efnahaginn. Hann sagði að samspil efnahags- lífsins og sjálfsmynd þjóðarinnar hefði leitt til kerfisgalla sem ekki enn hefði verið leyst úr. Sem dæmi haldi Íslendingar úti gjaldmiðli sem hafi einungis 300 þúsund manns að baki sér á 500 milljóna manna Evr- ópumarkaði. „Þetta er háskaleikur sem getur ekki gengið, enda voru sett á gjaldeyrishöft.“ Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, sagði fjár- málabólur ekki vera séríslenskt fyr- irbæri. Hann rifjaði upp söguna og sagði frá helstu alþjóðlegu fjár- málabólunum, allt frá túlipanaæðinu í Hollandi árið 1637 – þegar verð á tú- lipanalaukum fór upp í hæstu hæðir en hrundi síðan skyndilega – til fjár- málabólunnar sem við þekkjum svo vel. „Fólk tekur áhættu og hegðar sér með þessum hætti alls staðar. Það eru ákveðnir kraftar sem hafa áhrif á fólk. Menn þurfa þá að breyta reglu- verkinu til að koma í veg fyrir svona hegðun í framtíðinni,“ sagði Gylfi í er- indi sínu. Hann bætti því við að flækjustig fjármálagerninga væri óþarft og í raun orðið hættulegt. Takmarka þurfi vaxtarhraða banka með ein- hvers konar hraðatakmörkunum og brýnt sé að skattleggja stóra banka. Hann nefndi einnig sem eina af or- sökum bankahrunsins þá ofurtrú sem hafi verið lögð á virkni markaða og tæki fjármálaverkfræðinnar. Reglu- verk og fjármálaeftirlit hafi verið vanrækt og endurskoðendur gáfu sköpunargáfunni lausan tauminn. Líkti hruninu við náttúruhamfarir  Guðni Th. Jóhannesson segir meinta stjórnmálahagsmuni hafa blindað of mörgum sýn í Landsdóms- málinu  Hagfræðiprófessor segir að ofurtrú hafi verið lögð á virkni markaða og fjármálaverkfræði Morgunblaðið/Ómar Sagnfræðingur Guðni Th. Jóhannesson segir Landsdómsmálið ekki hafa stuðlað að víðtækri sátt í samfélaginu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.