Morgunblaðið - 07.10.2013, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 07.10.2013, Qupperneq 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2013 ✝ Ari JúlíusÁrnason fædd- ist í Reykjavík 15. september 1990. Hann lést 24. sept- ember 2013. Móðir Ara Júl- íusar er Sigríður Pálsdóttir, f. 8. nóvember 1957, og faðir Árni Daníel Júlíusson, f. 31. júlí 1959. Systir Ara er María, f. 15. mars 1992. Unn- usti hennar er Ívar Vincent Smárason, f. 6. september 1992. Eiginkona Árna Daníels og fósturmóðir Ara er Birna Gunnarsdóttir, f. 12. mars 1965. Sonur þeirra og bróðir Ara er Pétur Xiaofeng, f. 24. apríl 2007. Móðuramma Ara Júlíusar er María Frímanns- dóttir, f. 28. febrúar 1935, og móðurafi Páll Þ. Finnsson, f. 16. október 1930. Föðuramma hans er Þuríður Árnadóttir, f. 23. júlí 1933, og föðurafi Júlíus Jón Daníelsson, f. 6. janúar 1925. Ari Júlíus gekk í Kópavogs- skóla og lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð vor- ið 2010. Hann var góður námsmaður, vinmargur og tók virkan þátt í fé- lagslífi. Ari gerði stuttmyndir með félögum sínum og byrjaði ungur að spila í hljóm- sveitum, pönk, metal og rokk, en á síðari árum samdi hann bæði ljóð og lög í þjóðlagastíl og flutti sjálfur. Hann hannaði einnig tölvuleiki og samdi teiknimyndasögur. Hann var áhugamaður um samfélagsmál og tók þátt í starfi ýmissa hópa aðgerðasinna. Ari Júlíus hafði listræna hæfileika á mörgum sviðum, var góður teiknari og efnilegur tónlistarmaður og liggur eftir hann mikið safn laga og ljóða. Útför Ara verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, 7. októ- ber 2013, og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku Ari. Ég trúi því varla að ég þurfi nú að kveðja þig, minn kæra vin og frænda. Ég mun aldr- ei gleyma öllum stundunum sem við höfum eytt saman í gegnum ævina. Þegar við vorum litlir pjakkar brugðum við okkur í gervi riddara, geimfara, lögga eða hvað sem þitt skemmtilega frjóa ímyndunarafl bauð upp á. Allar stundirnar á unglingsárunum sem við eyddum saman að horfa á Badass-bíómyndir, hlusta á indí- tónlist eða spila tölvuleiki. Við fór- um samferða í menntaskóla ásamt þriðja amígóanum Stefáni. Þar var cat position, fréttapésinn og svo ótal mörg önnur uppátæki sem kalla fram sælar minningar. Öll tónlistin sem við gerðum sam- an, hvort sem hún var geimveru- vélmenna-raftónlist, marmelaðis- myrjandi-læti eða hringvöðva-pönk. Þú skilur eftir þig gífurlegt magn af alls konar teikningum, tónlist en ekki síst skemmtilegum minningum í hjörtum okkar vinanna sem bröll- uðum margt með þér. Við áttum yndislegar og gefandi stundir saman á þessum tuttugu og þrem- ur árum og ég kveð þig með mikl- um söknuði. Hver veit nema við gerum eitthvað „svítzillað“ á ný þegar við hittumst aftur á öðru til- verustigi. Þinn Hjalti Karl. Elsku Ari Júlíus. Það er svo sárt og óréttlátt að þurfa að kveðja þig núna. Þú áttir svo mikið inni og það var svo mik- ið í þig spunnið. Við systkinin vor- um heppin að kynnast þér öll vel þó við værum á ólíkum aldri, þú varst góður vinur okkar allra. Við tvö eldri munum þegar fjölskyld- ur okkar bjuggu á sama tíma í Danmörku. Þú varst lítill ljúfur sem talaði reiprennandi dönsku og á þessum tíma varstu að byrja að þróa með þér áhugann á risa- eðlum, eða dínósárum eins og þú sagðir. Þá var auðvelt að gefa þér jóla- og afmælisgjafir, það hitti í mark ef það hafði eitthvað með risaeðlur að gera. Svona varstu gegnum lífið, fékkst einlægan áhuga á hinum og þessum við- fangsefnum sem smitaði alltaf út frá sér. Þú varst tíður gestur í gula húsinu á Ásvallagötunni og þar eydduð þið Bjarki löngum stundum liggjandi á gólfinu að skapa og myndskreyta ævintýra- heim sem átti að vera vettvangur skáldsögu og tölvuleiks, drifnir áfram af sköpunarkrafti og gleði. Þó ekkert hafi orðið úr þeim áformum er Bjarki viss um að ár- in sem hann eyddi með þér hafi átt stóran þátt í að móta áhuga- mál og persónuleika hans. Einu sinni vantaði Auði myndefni fyrir ljósmyndaverkefni og bað ykkur tvo að koma út með sér. Hún end- aði á að taka mynd af ykkur liggj- andi á bílskúrsþakinu að teikna og sú mynd er allt í einu orðin af- skaplega dýrmæt minning. Undir sama bílskúrsþaki mátti oft finna þig með okkur eða vinum þínum glamrandi á ýmis hljóðfæri, enda varstu í ófáum hljómsveitum í gegnum tíðina sem ber vitni um þann ótrúlega sköpunarkraft sem bjó í þér. Margar helgar í æsku Gunnhildar og Bjarka fóru í heim- sóknir með þér og Maríu til ömmu Þuríðar og afa Júlíusar í Breið- holtið. Þar fóru heilu dagarnir í útivist á leikvöllunum fyrir aftan blokkina þeirra, en ef veðrið var slæmt var líka ágætt að liggja saman fyrir framan sjónvarpið og horfa á Cartoon Network. Svo kom að því að þú varðst stór, fórst í mútur (okkur öllum til mikillar skemmtunar) og fórst seinna að stunda skemmtanalífið. Það var alltaf jafn gaman að hitta þig á djamminu því þú varst svo glaður að sjá mann. Þú varst óspar á faðmlögin og lést okkur alltaf vita hversu vænt þér þótti um okkur öll. Það var líka dásamlegt þegar öll fjölskyldan kom saman við ým- is tækifæri og oft erfitt að meta hvor hló hærra, þú eða Ingólfur. Við sem eftir sitjum erum ennþá að átta okkur á að dýrmætt líf hefur verið hrifsað frá okkur og við fáum aldrei að sjá bjarta bros- ið þitt aftur, nema á myndum. Hugur okkar er hjá elsku Árna Daníel, Birnu, Pétri, Siggu, Maríu og Ívari, alltaf. Við treystum því að þú sért kominn á betri stað, frjáls undan oki þessa skelfilega sjúkdóms og að fallegu hugsan- irnar okkar um þig berist til þín eins og hlýr vindur. Við öfundum þig jafnvel örlítið fyrir að fá núna að knúsa, hlæja og drekka bjór með Ingólfi frænda. Hvíldu í friði, elsku hjartans Ari okkar. Við munum aldrei gleyma þér og gleðjumst yfir því að þú varst til. Lífið þitt var stutt en fallegt. Þín frændsystkin, Egill, Auður, Bjarki Hreinn og Gunnhildur Viðarsbörn. Ég man ekki lengur hvar ég hitti vin minn Ara fyrst eða hvern- ig það atvikaðist. Ég mun hins vegar ævinlega vera þakklátur fyrir að hafa kynnst honum. Leið- ir okkar lágu saman um það leyti sem ég var að færa mig um set úr Menntaskólanum í Kópavogi yfir í Menntaskólann við Hamrahlíð. Þessi breyting hefði vafalaust orðið mér erfiðari ef ég hefði ekki verið svo lánsamur að eignast þar snemma góða vini. Einn þeirra var Ari Júlíus. Það var sama hvort maður hitti Ara úti í frímínútum að fá sér smók eða á kaffihúsi hér í bænum, nú eða bara uppi í risi á Hringbrautinni, alltaf vildi hann ræða málin. Og aldrei gleymdi hann að hlusta á það sem aðrir höfðu til málanna að leggja. Hann hafði áhuga á öllu milli himins og jarðar og kunni vel að segja frá. Það var helst ef íþróttir bar á góma sem hann var ekki alltaf fyllilega með á nótunum. Ef ég vildi ræða leiki helgarinnar í enska boltanum hlustaði hann oft- ast af takmörkuðum áhuga og þegar hann lagði orð í belg fór allt í steik. Þá var Wenger allt í einu orðinn stjóri Tottenham og van Persie hafði staðið sig frábærlega í hjarta varnarinnar hjá Chelsea. Oft hentum við gaman að þessu í vinahópnum. Það sem tengdi okkur Ara þó ekki síst var sameiginlegur áhugi okkar á öllu sem varðaði listir og menningu. Þegar ég hafði upp- götvað eitthvað nýtt á þeim vett- vangi var Ari sá fyrsti sem ég setti mig í samband við. Og ekki var ég fyrr búinn að lýsa fyrir honum einhverri skáldsögu eða tónverki sem hafði hreyft við mér en hann var kominn á fullt að kynna sér málin. En Ari var samt ekki eins og við flest sem njótum listarinnar og látum þar við sitja. Hann var nefnilega listamaður sjálfur. Hann var ótrúlegur teikn- ari og flinkur gítarleikari og það verður bara að segjast eins og er að partíin sem maður fór í voru ekki merkileg ef Ari tók ekki upp á því að draga mann afsíðis til að spila Dylan eða eitthvað frum- samið. Já, þetta voru svo sannar- lega ógleymanlegir tímar. Menn eins og Ari Júlíus eru fágætir vin- ir og hans verður sárt saknað. Fjölskyldu hans sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin lifir um góðan dreng. Magnús Jökull Sigurjónsson. Engin er eik án kvista, það er víst. Öll eigum við okkar kosti og galla, þínir kostir, elsku Ari, voru fleiri en gallarnir. Þú varst hæfi- leikaríkasti einstaklingur sem ég hef á ævi minni kynnst, öllu sem þú tókst þér fyrir hendur skilaðir þú af þér fullkomnuðu og vel skreyttu. Þú varst listamaður, hugsuður, frumkvöðull. Ég leit upp til þín, þú gafst mér kraft og trú á að allra stærstu hindranir væru yfirstíganlegar, að maður getur verið sá sem mað- ur ætlar sér að vera. Heimsins frægustu hetjur féllu í bardaga, þú ert ein þeirra. Ég er stoltur af þér og ég elska þig. Þín verður sárt saknað, vinur minn, þér mun ég aldrei gleyma. Margt hugar þíns fóstur svo firna ljótt, þú felur, því illu skal leyna. En mundu að lífið er léttasótt. Lengi skal manninn reyna. (Megas) Róbert Róbertsson. Vinátta okkar Ara hófst í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þar var Ari mikilvægur hlekkur í okkar vinahóp, þéttum hópi ótrú- lega ólíkra einstaklinga sem áttu þó mjög vel saman. Samband okk- ar Ara var á engan hátt frábrugð- ið þessu. Persónuleikar okkar voru mjög ólíkir en það bætti vin- áttuna og gerði hana sterkari. Skólabróðir okkar Ara úr MH sagði eitt sinn að mikilvægt væri að geta litið upp til allra vina sinna, það væri í raun undirstaða alvöruvináttu. Ari Júlíus var maður sem svo auðvelt var að líta upp til. Hann var einnig maður sem ómögulegt er að lýsa í fáum orðum, marg- slunginn persónuleiki og gríðar- lega hæfileikaríkur á marga ólíka vegu. Allir sem þekktu Ara kynntust hans listrænu hlið, hvort sem það voru teikningar, texta- eða lagasmíðar. Ari var einnig fróður um ótrúlegustu hluti, orð- heppnari en flestir og besti mögu- legi félagi í alls kyns hugmynda- vinnu þar sem frjór hugurinn fékk lausan tauminn. Einnig var ánægjulegt hvað hann átti auðvelt með að kynnast fólki og eignast nýja vini. Á MH-árunum furðaði maður sig oft á því hvernig hann virtist þekkja hvern einn og ein- asta í þessum rúmlega þúsund manna skóla. Ari var stórmerkilegur maður en fyrst og fremst var hann frá- bær vinur sem gaf mikið af sér. Söknuðurinn er mikill en þakk- lætið fyrir að hafa kynnst Ara Júl- íusi er það einnig. Hvíldu í friði, elsku vinur. Helgi Kristinn Björnsson. Ari var einn af þessum mönn- um sem ómögulegt er að lýsa með orðum. Þrátt fyrir margra ára vináttu, gegnum grunn- og menntaskólaárin og árin eftir það tókst honum alltaf að koma manni á óvart með nýjum fróðleik, skiss- um eða hugmyndum. Hann hugs- aði alltaf út fyrir kassann eins og er sagt. Hvort sem það voru stutt- myndirnar í grunnskóla, tónlistin eða teiknimyndasögurnar. Hann var ótrúlegt eintak af manni og er maður lánsamur að hafa fengið að kynnast honum. Ég man eins og það hafi gerst í gær þegar við héldum fyrirlestur á lagningar- dögum í MH. Við höfðum lofað að halda fyrirlestur fyrir MH-inga um hvað það þýddi að vera „awe- some“. Við höfðum verið seinir að undirbúa okkur og kláruðum 30 síðna fyrirlestur á 15 mínútum. Ari settist og vann eins og vél. Hann taldi upp 100 hluti án þess að blikka sem væru magnaðir í þessum heimi. Allt frá kvikmynd- um, teiknimyndasögum, fólki yfir í uppfinningar. Þegar við áttuðum okkur á því að við vorum orðnir seinir og rúmlega 100 manna fyr- irlestrarsalur var að fyllast var hann ekki lengi að leysa það vandamál. Hann breytti fyrstu glærunni í mynd af okkur og sagði að það væri „awesome“ að vera „fashionably late“. Ein af fjöl- mörgum snilldar minningum af Ara sem ég mun aldrei gleyma. Söknuðurinn er mikill enda ein- stakur maður. Hvíldu í friði, kæri vinur. Þín verður sárt saknað en aldrei gleymt. Magnús Heimir Jónasson. Kæri Ari. Ég er búin að fara nokkrum sinnum út að ganga. Ég gái að sel- um en hef engan séð enn. Þeir hljóta að koma, þeir koma alltaf á haustin. Mér líður eins og ég hafi misst af sumrinu, ég gat ekki ver- ið úti, niðri við sjó eins og þau sumur sem komu á undan. Þá fylgdist ég með einhverjum ótal fuglum sem ég kann ekki að nefna, þeir söfnuðust saman rétt hjá húsinu mínu, niðri við sjó í miðnætursólinni, ég gekk á hljóð- ið sem var hljóðið í sköpunarverk- inu sjálfu, það söng um sjálft sig og hinum megin við sjóinn logaði jökullinn sem bráðnar og verður horfinn eftir 100 ár, grænn og blár eins og dæmisaga um að ekk- ert varir að eilífu. Stundum kemur sumar en maður fær ekki að vera í því. Stundum missum við af því að sjá hvönn og lúpínu hlið við hlið, græna og fjólubláa, niðri við sjó. Þær halla sér hvor að annarri, og báðar hallast í þá átt sem vind- urinn ákveður. Stundum kom- umst við ekki út, stundum segir hjartað að þrátt fyrir sumar sé vetur. Ég hef misst af sumrum, í heitu sumri í heitu landi hefur mig dreymt að ég stæði í hríð, snjón- um kyngdi niður og ég grét af því ég þráði sumar. Þegar ég vaknaði var sumar en ég hélt samt áfram að gráta. Nú er hvönnin niðri við sjó ekki lengur græn og lúpínan varla þekkjanleg. Þær bíða eftir fyrsta stormi vetrarins. Þá leggjast þær út af til að geta risið upp aftur. Þær sjá ekki selina þegar þeir loksins koma en þær sjá lengra, þær sjá tilgang lífsins, fólginn í því að blómstra og fölna til skiptis. Þú varst svo ungur, með fallegt æst hár og fallegar hendur sem kunnu að teikna og spila á gítar, klár og flinkur, einstakur. Þú varst manneskja sem lifir inni í sköpunarverkinu, sem finnur risahjarta þess slá sínum stóru og þungu höggum. Að lifa inni í sköp- unarverkinu er dásamlegt, merki- legt en líka erfitt, stundum hræði- legt. Stundum er hjartsláttur risahjartans svo þungur að við förum að trúa því að við þolum ekki að heyra hann. Stundum hættir okkar eigið hjarta að heyra í sínum eigin hjartslætti af því að risahjarta alheimsins verður svo hávært. Og þá heyrum við kannski ekki í sumrinu þegar það kemur, svo örstutt; eins og dæmi- saga um að ekkert varir að eilífu, að allt hverfur, við leggjumst til svefns og það sem var er ekki lengur fyrir okkur að sjá eða snerta þegar við vöknum. Sköp- unarverkið gefur okkur allt en það tekur líka allt frá okkur aftur. Það gefur okkur hvönn og hrafn, lúpínu og sel, feitan eftir 5.000 fiska og silfraðan af tilgangi, það gefur fallega hönd og hár og væng og hjarta til þess eins að taka það af okkur aftur. Kæri Ari, ég ætla bráðum aftur út að ganga, ég ætla niður að sjó að gá að selum, að gá að vetrinum, að bíða eftir hröfnum. Og þegar almættið miskunnar sig yfir mig og leyfir mér að tengjast sér ör- stutt, í vefstól sköpunarverksins þar sem allt fléttast saman; fing- ur, vængir og hreifar, finn ég þína fallegu hönd með flinku fingrun- um og ég þakka sköpunarverkinu fyrir að gefa og taka, fyrir að manneskja eins og þú varst akk- úrat hér í aðeins meira en 22 ár. Sólveig Anna Jónsdóttir. Við þökkum samfylgd á lífsins leið þar lýsandi stjörnur skína og birtan himneska björt og heið hún boðar náðina sína en Alfaðir blessar hvert ævinnar skeið og að eilífu minningu þína. (Vigdís Einarsdóttir.) Horfinn er á braut fyrrverandi nemandi okkar, Ari Júlíus. Margs er að minnast frá samveru okkar í Kópavogsskóla. Ari Júlíus var glaðlegur, vinmargur ungur drengur, vel gefinn og námsleiðin því greið. Hópurinn í kringum hann var fjölbreyttur því áhuga- mál hans voru mörg, tónlist, kvik- myndir og margvíslegur fróðleik- ur. Margar stuttmyndirnar voru sýndar, sem þeir félagarnir höfðu lagt mikla vinnu í. Hann tók þátt í skólastarfinu af ábyrgð og áhuga og var kappsamur og metnaðar- fullur. Hópurinn fór í námsferð til Danmerkur og þar naut hann sín vel, fróðleiksfús og eftirtektar- samur. Leiðir skildi svo við útskrift vorið 2006 en við fylgdumst með honum úr fjarlægð og hugsuðum með hlýhug til fjölskyldunnar þegar erfiðleikar fóru að steðja að. Við minnumst góðs drengs, ánægjulegs samstarfs og sam- veru á skólaárunum og vottum fjölskyldu Ara Júlíusar okkar innilegustu samúð. Valdís Þorkelsdóttir, Sigurður Þorsteinsson, Jóna Möller, Ólafur Guðmundsson. Ari Júlíus Árnason ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, ÁSMUNDUR PÁLSSON, Eskihlíð 6, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 8. október kl. 13.00. Unnur Konráðsdóttir, Páll Ásmundsson, Einhildur Pálsdóttir, Dagbjört Thelma Ásmundsdóttir, Sigríður Ásmundsdóttir, Kristófer Magnússon, Hermann Pálsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, ARNÞRÚÐUR STEFÁNSDÓTTIR (ADDÝ) sjúkraliði, Strikinu 8, lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 4. október. Útför hennar verður auglýst síðar. Arna Valdís Kristjánsdóttir, Vilberg K. Kjartansson, Stella Kristjánsdóttir, Lilja Kristjánsdóttir, Jóhanna Kristín Gísladóttir, Jana Björk Ingadóttir, barnabörn og systkini. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HAFSTEINS GUÐMUNDSONAR skipstjóra frá Kleifum við Steingrímsfjörð. Sérstakar þakkir til starfsfólks á 4B á Hrafnistu, Hafnarfirði, fyrir alúð og umhyggju. Guðbjörg Ólafsdóttir, Sigurbjörg Hafsteinsdóttir, Ægir Hafsteinsson, Þuríður Unnarsdóttir, Sigríður Harpa Hafsteinsdóttir, Hákon Ólafsson, Anna Katrín Hafsteinsdóttir, og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.