Morgunblaðið - 07.10.2013, Qupperneq 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2013
Morgunblaðið/Eva Björk
Best Stuttmyndin Hvalfjörður var valin besta íslenska stuttmyndin. Hér
eru forsvarsmenn hennar ásamt Margréti Erlu Maack.
Lokahóf kvikmyndahátíðarinnar
RIFF fór fram á laugardagskvöld í
Gamla bíói og þá voru verðlaun af-
hent. Ítalski kvikmyndaleikstjórinn
Uberto Pasolini hreppti aðal-
verðlaunin, Gullna lundann, fyrir
kvikmyndina Still Life (Kyrralífs-
mynd). Dómnefnd samþykkti ein-
róma að veita kvik-
myndinni fyrstu
verðlaunin fyrir list-
rænt gildi hennar og
efnistök, en einnig
fyrir næma túlkun og
mannleg skilaboð sem
leikstjóranum tekst að
fanga. Samræður í
myndinni voru sagðar
fáar en vandaðar og
merkingin margræð.
Undirtextinn sé hins-
vegar þrunginn
merkingu. Still Life
hreppti auk þess FI-
PRESCI, verðlaun al-
þjóðlegra samtaka kvik-
myndagagnrýnenda.
Leikstjórinn Daniel Den-
cik fékk Umhverfis-
verðlaun RIFF fyrir heim-
ildarmyndina Eksped-
itionen til verdens ende (Leiðangur
á enda veraldar). Í umsögn dóm-
nefndar segir m.a.: „Að kvikmyndin
lýsi ferð vísindamanna og lista-
manna inn á svæði á Norður-
Grænlandi sem áður voru hulin ís.
Hrikaleg fegurð svæðisins í bland
við óborganleg samskipti og hug-
leiðingar áhafnarmeðlima fangar
sérstakan andblæ, smæð mannsins
og áhrif hans á hnöttinn, varnar-
leysi okkar og eyðingarmátt.“
Kvikmyndaverðlaun
kirkjunnar fékk The
Lunchbox (Nestisboxið)
í leikstjórn Indverjans
Ritesh Batra.
Kvikmyndin Hval-
fjörður í leikstjórn
Guðmundar Arnar
Guðmundssonar
var valin besta ís-
lenska stuttmyndin.
Í umsögn dómnefnd-
ar segir m.a: „Á ein-
faldan, ljóðrænan
hátt tekst leikstjór-
anum að gera ang-
istina ljóslifandi í
huga áhorfandans.
Næm kvikmynda-
takan undirstrikar grámóskuna í
náttúru, umhverfi og innra lífi
bræðranna. Hljóðmynd, búningar,
hár og förðun ramma myndina inn
á afar fagmannlegum nótum og all-
ur leikur er fyrsta flokks.“ Huldar
Freyr Arnarson, Gunnar Óskarsson
og Björn Viktorsson fengu BRÍÓ
verðlaunin fyrir Hvalfjörð, fyrir
besta hljóð í íslenskri stuttmynd,
veitt í minningu Steingríms Ey-
fjörð. Stuttmyndin Good Night í
leikstjórn Muriel D’Ansembourg
fékk Gullna eggið, sem þátttakandi
í Kvikmyndasmiðjunni.
Kvikmyndin Vi är bäst! (Við er-
um bestar!) í leikstjórn Lukas
Moodysson, fékk áhorfendaverð-
laun RIFF í samvinnu við Mbl.is
Gullna lundann
fékk Ítalinn
Uberto Pasolini
Næm túlkun í Kyrralífi (Still Life)
Björk Afhendir Daniel Dencik um-
hverfisverðlaun fyrir mynd hans.
Góðir gestir Sigurður Björn Blön-
dal og Jón Gnarr borgarstjóri.
Kynnir Frímann Gunnarsson fór á
kostum sem kynnir í lokahófinu,
sprellaði og skipti um klæði.
Sáttur Uberto
Pasolini með Gullna
lundann sinn.
» Viðamikil brúðusýning Brúðuheima, Aladdín eftir Bernd Ogrod-nik, var frumsýnd á Brúðuloftinu í Þjóðleikhúsinu í gær. Aðstand-
endur sýningarinnar eru um þrjátíu talsins og er Bernd höfundur
handrits, tónlistar og leikmyndar, flytur verkið og smíðaði brúð-
urnar sem eru 40 talsins. Eftirvæntingin var mikil hjá leikhúsgestum
sem mættu í sínu fínasta pússi.
Brúðusýningin Aladdín var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu í gær
Gaman Brynja Þorgeirsdóttir og Þorgeir Nói Atlason
skemmtu sér vel á sýningunni um Aladdín..
Kampakátir Ólafur Andri Jónasson
og Ásgrímur Rúnarsson.
Bræður Daníel Örn Jóhannesson og
Birgir Þór Jóhannesson voru samhentir.
Sparileg Sigurður Sigurjónsson og
Elísabet Sigurjónsdóttir.
Morgunblaðið/ÓmarDalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Plankaparket
í miklu úrvali
Burstað, lakkað, olíuborið, hand-
heflað, reykt, fasað, hvíttað...
hvernig vilt þú hafa þitt parket?
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!