Morgunblaðið - 21.11.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.11.2013, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 1. N Ó V E M B E R 2 0 1 3  271. tölublað  101. árgangur  VONAST EFTIR KVEÐJULEIK MEÐ LANDSLIÐINU STEFNIR Í STRÍÐ Á ÚTVARPS- MARKAÐI GÖMUL HLAÐA Í HLUTVERKI MENNINGARHÚSS VIÐSKIPTABLAÐ VOGAR Á REYKJANESI 16ÍÞRÓTTIR ÁRA STOFNAÐ 1913 Eftir barning í allt haust glaðnaði mjög yfir síld- veiðunum í Breiðafirði í gær. Skipin fylltu sig hvert af öðru af góðri síld innarlega í Grundar- firði og sum þeirra fengu sannkölluð risaköst. Í fyrrakvöld varð síldar nánast ekki vart á þessum slóðum, en í gær voru „fínustu lóðningar“ í Grundarfirði. Hljóðið var gott í Guðjóni Jó- hannssyni, skipstjóra á Hákoni ÞH, þegar rætt var við hann, enda höfðu þeir fengið eitthvað á annað þúsund tonna kast. „Við tókum um 800 tonn sjálfir, sem við flök- um og frystum á næstu 2-3 dögum. Við erum að fara að dæla í Beiti, sem vantar lítið, og getum vonandi fyllt Álsey líka ef á þarf að halda. Síldin er greinilega mætt á svæðið,“ sagði Guðjón. Við veiðar í Grundarfirði í gær voru einnig Faxi, Bjarni Ólafsson og Kap og öll höfðu fengið góð- an afla. aij@mbl.is Loksins lifnar yfir síldveiðunum eftir barning í Breiðafirðinum í allt haust Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Samvinna á miðunum Skipverjar á Álsey VE nutu góðs af góðum afla þeirra á Kap VE og sömuleiðis var síld dælt úr nót Hákonar ÞH í lestar Beitis NK. Nokkur skipanna með risaköst í Grundarfirði Miðborg Reykjavíkur ber þess glögglega merki að jólin nálgast en í dag eru 33 dagar til jóla. Þessi þriggja ára hnáta, Saga Ljós Sigurðardóttir, var mjög ánægð með jólatréð sem hún sá á Laugaveginum. Tilhlökkunin leyndi sér ekki og eftirvæntingarglampi skein úr augunum. Jólaljósin gleðja börnin Morgunblaðið/Eggert Jólin nálgast en enn eru þó 33 dagar til stefnu Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fyrirtækið Lífdísill í Reykjavík hefur leitað eftir samstarfi við SORPU um tilraunaverkefni í vinnslu lífdísils úr sláturúrgangi. Ef af samstarfinu verður mætti fimmfalda framleiðslu fyrirtækisins þegar á næsta ári, úr um 100.000 lítrum í 500.000 lítra og draga úr urðun lífræns úrgangs. Áformin tengjast væntanlegri gild- istöku laga um hlut endurnýjanlegs eldsneytis í samgöngum. Vinni lífdísil úr skólpi Sigurður Ingólfsson, stjórnarfor- maður Lífdísils, segir félagið hafa áform um að sækja meira hráefni í annan fituríkan úrgang, jafnvel skólp, og lífrænan úrgang frá iðnaði. Frá og með 2016 gæti einnig orðið raunhæft að vinna lífdísil úr lífrænu heimilissorpi. Gangi það eftir yrði framleiðslan komin í 4 milljónir lítra 2016-2017 og veltan í 600 milljónir. Fimmfalda framleiðsluna  Fyrirtækið Lífdísill hyggst vaxa hratt „Við höfum lagt fram okkar hug- myndir um að beita íslenskri tækni til að auka umtalsvert framleiðslu á líf- rænu eldsneyti úr úrgangi sem SORPA ráðstafar og stuðla þannig að hagkvæmri lausn á þeim vanda að urðun lífræns úrgangs verður bönnuð 2020. Hugmyndirnar eru vel mótaðar af okkar hálfu, en viðræður við SORPU standa yfir. SORPA hefur áhuga á að skoða þetta vel en ekki hefur verið gengið frá neinum samn- ingum og engin ákvörðun tekin.“ Bjarni Gnýr Hjarðar, yfirverk- fræðingur hjá SORPU, væntir þess að ákvörðun um verkefnið verði tekin fyrir áramót í samræmi við eigenda- samkomulag sveitarfélaga. Verkefnið sé tilraun sem standi yfir þar til ný gas- og jarðgerðarstöð verði opnuð 2016. Með henni getur SORPA unnið lífeldsneyti úr öllum heimilis- úrgangi. SORPA beri ekki beinan kostnað af tilraunaverkefninu. MGæti tafið áform »14  Frídagar eru óvíða fleiri í Evr- ópu en hér á landi og raunar er Spánn eina Evr- ópulandið sem státar af fleiri frídögum. Hér eru um 11 greidd- ir frídagar á ári en á Spáni eru þeir 14. Fyrir Alþingi liggur frumvarp um að færa frídaga í miðri viku upp að helgum og bæta launafólki upp frí- daga sem lenda á helgum. SA vilja ekki að frídögum verði fjölgað. »20 Aðeins Spánverjar fá fleiri frídaga Dugur Frí er annað en aðgerðaleysi.  Fyrirtækið Lén ehf. hefur áhuga á að reisa 2.000 fermetra gróðurhús þar sem Eden í Hveragerði stóð áð- ur. Í gróðurhúsinu er m.a. fyrir- huguð veitinga- og verslunarstarf- semi. Einnig er gert ráð fyrir að byggðar verði 65 litlar íbúðir í þrem- ur fjölbýlishúsum á lóðinni. »4 Nýtt gróðurhús rísi á Edenlóðinni Atvinnuveganefnd hafa borist nýjar upplýsingar vegna frumvarps um orkuskipti í samgöngum sem kalla á endurskoðun og jafnvel seinkun á gildistöku laganna. Jón Gunnarsson, formaður nefndarinnar, segir m.a. horft til þess hvort samkeppnisyfirvöld samþykki sameiginlega geymslu olíufélaganna á íblöndunarefnum í Örfirisey. Þrátt fyrir að tækni- legir annmarkar hafi komið í ljós sé engu að síður markmiðið að afgreiða frumvarpið í þingið í næstu viku þannig að það geti orðið að lögum fyrir áramót. Gildistökunni jafnvel frestað FRUMVARP UM ENDURNÝJANLEGT ELDSNEYTI  Hópur fjár- festa hefur eign- ast tæplega 30% hlut í laxeldisfyr- irtækinu Fjarða- laxi í Tálknafirði og samið hefur verið um að þeir muni á næstunni eignast ríflegan meirihluta í fé- laginu. Þeir sem fara fyrir hópnum eru Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafs- son, forstjóri Skeljungs. Þau störf- uðu öll áður í fyrirtækjaráðgjöf Ís- landsbanka en hættu á árunum 2009-2011. »Viðskipti Munu eignast meiri- hluta í Fjarðalaxi Eldi Stórlaxar í Fjarðalaxi. –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.