Morgunblaðið - 21.11.2013, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2013
Grunnskólabörn smíða báta
BÁTASÝNING Í HLÖÐUNNI
Valgerður Guðlaugsdóttir, myndlistarkona og kennari í Stóru-Vogaskóla,
hefur undanfarið unnið með börnum í skólanum að því að smíða litla
báta, sem til stendur að sýna í Hlöðunni hinn sjötta desember. Á mynd-
inni eru Jökull Þór Harðarson, Þorsteinn L. Macasarte Tómasson, Helena
Björg Oddsdóttir, Elsa Lind Sigurðardóttir, Breki Freyr Atlason og Mar-
geir Bent Oscarsson með bátana sem þau hafa smíðað.
„Við höfum til dæmis verið með
sveitamarkað, en þá fengum við lán-
uð borð úr íþróttamiðstöðinni og
fleira í þeim dúr. Samstarf okkar og
sveitarfélagsins hófst fyrir nokkrum
árum þegar þjónustuíbúðir ætlaðar
öldruðum stóðu auðar. „Listamenn
dvöldu þá í þessum íbúðum en voru
hér með aðstöðu, og greiddu fyrir
með því að halda sýningu eða eitt-
hvað slíkt. Undanfarið höfum við
tekið smáhlé á skipulagðri dagskrá,
en fólk hefur haft samband við okk-
ur til að nýta rýmið, og það er sjálf-
sagt mál. Það er oft erfitt að finna
rými til að vinna eða sýna í. Hérna
getur fólk bara komið án þess að
greiða fyrir það.“
Venjuna í þjóðfélaginu segir
hún vera að leggja mikið fjármagn í
menningarhús, en svo gleymist hvað
eigi að gera í húsunum.
„Það hefur verið tilgangurinn
með þessu. Þeir sem hafa komið
hingað endurskapa algjörlega þetta
rými. Síðasta sumar komu hingað
Brother Grass og Eldar, og þau
settu upp svið og skreyttu þannig að
Hlaðan varð alveg óþekkjanleg. Það
var mjög gaman að koma hingað inn
og sjá það.“
Marta í Hlöðunni Marta Guðrún Jóhannesdóttir segir Hlöðuna standa opna þeim listamönnum sem vilja sýna þar.
Morgunblaðið/Kristinn
Allir í bátana Sokkalaus grunnskólabörn í Stóru-Vogaskóla smíða
báta fyrir sýningu í Hlöðunni. Sýningin verður hinn sjötta desember.
Íþróttafélagið Þróttur er stolt
íbúa í Vogum. Hagur félagsins
hefur þó ekki alla tíð verið góð-
ur.
Nýlega tók Tinna Hallgríms-
dóttir, framkvæmdastjóri Þrótt-
ar, við stjórnartaumum félags-
ins, sem á þeim tíma var í
nokkrum fjárhagserfiðleikum.
„Áður en ég varð fram-
kvæmdastjóri félagsins hafði ég
verið að vinna í félagsstarfi með
unglingunum hérna. Fyrir þrem-
ur árum söðlaði ég um og fór að
vinna hjá Vinnumálastofnun
(VMST), en réð mig á endanum
sem framkvæmdastjóra hér,“
segir Tinna, og segist frekar
vilja hasarinn sem fylgir fram-
kvæmdastjórastöðunni en þau
rólegheit sem hún upplifði hjá
VMST. „Stjórn og fram-
kvæmdastjórn höfðu verið dálít-
ið losaraleg og örar mannabreyt-
ingar og félagið var ekki vel
statt. Ég leit á það sem áskorun
að koma félaginu á réttan kjöl,
og tók til starfa í september í
fyrra.“
Hún átti fund með bæjarstjóra
þar sem hún óskaði eftir hærri
styrkjum til að reka félagið og að
snúa rekstrinum við. „Síðan var
kjörin mjög stöðug stjórn, en það
er mjög mikilvægt. Við höfum
unnið mikið og vel saman, en síð-
astliðið ár hefur verið mjög erf-
itt. Það er fyrst núna sem maður
sér árangur.“
gunnardofri@mbl.is
Framkvæmdastjóri Þróttar
„Síðastliðið ár hefur
verið mjög erfitt“
Morgunblaðið/Kristinn
Þróttur Tinna Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Þróttar, tók við fé-
laginu í fjárhagskröggum, en hefur gengið vel að rétta við stöðuna.
„Það stendur til að koma lífi í húsið,“ sagði Ok-
tavía Ragnarsdóttir í Minjafélaginu. „Hér verður sett
upp sýning, en við höfum fengið styrk frá Menning-
arráði Suðurnesja til að setja upp sýningu sem sýnir
skólahald á þeim tíma sem húsið var byggt,“ sagði
Birgir Þórarinsson, formaður Minjafélagsins.
„Hugmyndin er ekki að fylla húsið af gömlum
munum og hafa þar safn, heldur hafa líf í því,“ sagði
Oktavía og benti á að eldhús- og klósettaðstaða væri í
nærliggjandi þjónustuhúsi við kirkjuna.
Vinsæll norðurljósastaður
Norðurkot er ekki eina mannvirkið sem stendur
við Kálfatjörn. Þar er líka Kálfatjarnarkirkja, reist
1893, og hlaðin grjóthlaða. Hlaðan er í eigu Minja-
félagsins og var reist í kringum 1850, en hefur nú verið
endurhlaðin að stórum hluta. „Það vantar ennþá þakið
á hlöðuna, en það fauk af í einhverju óveðrinu,“ sagði
Oktavía. „Við viljum klára að gera hana upp og hafa
einhverja starfsemi í henni, eins og til dæmis kakósölu
eða eitthvað svoleiðis,“ bætti Birgir við. „Hingað koma
stundum nokkur hundruð ferðamenn á kvöldi til að
horfa á norðurljós og því væri upplagt að geta boðið
þeim inn í hlöðuna. Svæðið er alveg óupplýst þannig að
við erum að skoða hvort félagið geti haft nokkrar
tekjur af þessari hlöðu. Minjavernd hefur stutt vel við
bakið á félaginu og við höfum átt mjög gott samstarf
við stofnunina.“
Birgir sagði að eftir bruna íbúðarhússins við
Kálfatjörn hefði jörðin komist í eigu sveitarfélagsins,
sem síðan hefði gefið félaginu jörðina, en hlaðan stóð á
henni. „Það var heilmikil framkvæmd að hlaða veggina
í hlöðunni að nýju. Þakið verður svo í gömlum stíl,
tjargað þak úr viðarborðum,“ sagði Birgir.
Meðal annarra verðmæta í eigu félagsins er bátur,
feræringur, sem þau telja vera þann síðasta sem Ingi-
mundur á Litlabæ smíðaði.
Morgunblaðið/Kristinn
Norðurkot við Kálfatjörn Birgir Þórarinsson, Krist-
ján Karl Kay Frandsen og Oktavía Ragnarsdóttir.
Skannaðu kóðann
til að sjá mynd-
skeið um Hlöðuna
í Vogum.
Næst verður komið við í
Hafnarfirði á 100 daga hring-
ferð Morgunblaðsins.
Á morgun
Vogar er sveitarfélag á norðanverðum Reykjanesskaga og nær
yfir Vatnsleysuströnd og bæinn Voga. Staðarins er fyrst getið
á landnámsöld, en jörðin Stóru-Vogar var höfuðból um
aldir. Áður byggðist atvinnulíf Voga að mestu á sjósókn,
en nú sækja margir íbúar vinnu til nágrannabyggðar-
laganna. Í Vogum búa rúmlega 1.000 manns.
Næst land-
stærsta sveit-
arfélagið á
Suðurnesjum
VP vélaverkstæði
veitir góða þjónustu á sanngjörnu verði.
Við sinnum öllum verkefnum
á sviði málmsmíði og trésmíði.
www.vp.is