Morgunblaðið - 21.11.2013, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.11.2013, Blaðsíða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2013 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Kúbönsk kvikmyndavika hefst í kvöld í Bíó Paradís og stendur til og með 26. nóvember. Sex nýlegar kvikmyndir frá Kúbu verða sýndar í kvikmyndavikunni, frá árunum 2006 til 2011 og er þetta í fyrsta sinn sem kúbanskar kvikmyndir eru sýndar í íslensku kvikmynda- húsi, skv. tilkynningu frá kvik- myndahúsinu. Kvikmyndavikan er haldin í sam- starfi Vináttufélags Íslands og Kúbu og kvikmyndahússins en kvikmyndastofnunin ICAIC á Kúbu veitti leyfi fyrir sýningu myndanna, fyrir milligöngu sendiráðs Kúbu. Meðal skipuleggjenda hátíðarinnar eru rappbræðurnir Erpur og Eyj- ólfur Eyvindarsynir og Sigurlaug Gunnlaugsdóttir, formaður Vin- áttufélags Íslands og Kúbu. Sigurlaug segir myndirnar á há- tíðinni koma frá Stokkhólmi, af kúbanskri kvikmyndahátíð þar í borg. Vináttufélag Íslands og Kúbu komi nú í fyrsta sinn að slíkri hátíð hér á landi. „Við vorum með 20 myndir að velja úr og það sem við erum að sýna er það nýjasta, til árs- ins 2011. Það er ný bylgja kvik- myndaframleiðslu hjá þeim sem mótast af því að það var mjög erfitt fjárhagslega að framleiða slíkt efni á tíunda áratugnum. Það hefur ræst úr og það er ábyggilega líka að þakka samstarfi við önnur lönd, t.d. Spán,“ segir Sigurlaug. Kvikmynd um Benny Moré Opnunarmynd hátíðarinnar er El Benny frá árinu 2006, eftir leik- stjórann Jorge Luis Sánchez. Hún fjallar um líf og störf Benny Moré, eins þekktasta söngvara Kúbu á sjötta áratug síðustu aldar og hlaut myndin verðlaun á hátíðinni New Latin American Cinema í Havana árið 2006. Eins og gefur að skilja er mikið af tónlist í myndinni og þá m.a. í flutningi Chucho Valdés. Á morgun verður sýnd kvik- myndin Ciudad en Rojo, Háska- borg, frá árinu 2009 eftir leikstjór- ann Rebeccu Chávez. „Hún er heimildarmyndagerðarkona og fjallar þarna um uppvöxt sinn á austurhluta Kúbu, í Santíagó og þau átök sem voru þar fyrir 1960 þegar brast á með morðum og átök- um fyrir byltingu. Sú mynd er ekki beinlínis um pólitík, hún er eig- inlega meira um hið mannlega, eins og henni er lýst. Hvað gerir það manneskjunni að standa í svoleiðis átökum?“ segir Sigurlaug um Háskaborg. Handrit myndarinnar er byggt á skáldsögunni Bertillon 166 eftir José Soler Puig sem hlaut bókmenntaverðlaun Casa de Las Americas árið 1960. Af öðrum myndum hátíðarinnar má nefna Habanastation, Havana- stöðina, frá árinu 2011 eftir leik- stjórann Ian Padrón. Sú mynd fjallar um tvo unglingsstráka sem búa við gjörólíkar aðstæður, annar við allsnægtir en hinn við sára fá- tækt. Leiðir þeirra skarast og segir um myndina í tilkynningu að hún snerti viðkvæman streng í kúb- önsku samfélagi. Snertir viðkvæma strengi Ekki er síður forvitnileg kvik- myndin Boleto al Paraíso, Para- dísarmiði, frá árinu 2010 eftir leik- stjórann Gerardo Chijona. Hún gerist snemma á tíunda áratugnum og fjallar um táningsstúlku sem flýr að heiman og kemst með aðstoð nokkurra kúbanskra þungarokk- ara til Havana. Í myndinni er m.a. fjallað um sifjaspell og segir í til- kynningu að hún snerti viðkvæma strengi í kúbönsku samfélagi. Opnunarhóf kvikmyndavikunnar hefst kl. 19 í kvöld með salsadansi sem félagar í Salsa Iceland stíga fyrir gesti og boðið verður upp á kúbanskt romm áður en sýning opnunarmyndarinnar hefst kl. 20. Upplýsingar um aðrar myndir há- tíðarinnar má finna á bioparadis.is. Benny Stilla úr kvikmyndinni El Benny, opnunarmynd hátíðarinnar. Fyrsta kúbanska kvikmyndahátíðin  Kúbanskar kvikmyndir í Bíó ParadísSviðslistahópurinn Bíbí ogblaka vakti verðskuldaðaathygli fyrir danssýn-inguna Skýjaborg sem frumsýnd var fyrir hálfu öðru ári. Þar mun hafa verið um að ræða fyrstu danssýninguna hérlendis sem sérstaklega er ætluð yngstu börn- unum, þ.e. frá sex mánaða upp að fjögurra ára aldri, og tókst hún með miklum ágætum. Það er því sérlega ánægjulegt að hópurinn skuli bjóða upp á nýja sýningu fyrir sama ald- urshóp. Fetta Bretta fjallar um systurnar Fettu Flækju og Fléttu Brettu. Í upphafi sýningar eru þær flæktar saman, en ná smám saman að vinna sig hvor frá annarri. Líkt og lítil börn uppgötva þær líkama sinn í gegnum hreyfingar, prófa að klappa saman lófum og iljum, rúlla sér og hnuðlast saman. Smátt og smátt stækkar heimurinn og þær fara að skoða kringumstæður sínar og leika sér að því sem fyrir augu ber, en þar eru litir og form áberandi í umhverf- inu. Þær klifra á kubbum, henda þeim á milli sín, dansa saman, hoppa og reyna meira að segja á þanþol líkamans þegar þær reyna að troða sér ofan í kistu. Öll samskipti fara fram án orða og byggjast einvörð- ungu á hreyfingum. Þetta er sýning sem virkjar ímyndunarafl áhorfenda og heyra mátti börnin spyrja foreldra sína í forundran: „Hvað er þetta?“ m.a. þegar Fetta og Bretta voru búnar að flækja sig saman og ferðuðust um sviðið nánast eins og torkennilegt dýr með tvo fætur og fjórar hendur. Leikmynd og búningar Gyðnýjar Hrundar Sigurðardóttur eru mjög vel heppnaðir. Leikmyndin sam- anstendur af litríkum leikfanga- kubbum sem flest börn þekkja úr dótakassanum sínum, nema hér voru kubbarnir ekki litlir og úr tré heldur stórir og úr mjúkum svampi, klæddir litríku áklæði. Fetta og Bretta leika sér að því að byggja úr kubbunum til þess eins að henda sér á nýsmíðina og láta hana hrynja aft- ur við mikla kátínu ungra áhorf- enda. Sólrún Sumarliðadóttir, sem þekktust er fyrir starf sitt með hljómsveitinni amiinu, hefur skapað heillandi hljóðheim sem byggist að stórum hluta á bæði tré- og málm- sílófónum. Tónlist hennar er skemmtilega grípandi og taktföst þannig að áhorfendur áttu erfitt með að sitja kyrrir í fjörugustu rytmaköflunum. Inga Maren Rúnarsdóttir og Snædís Lilja Ingadóttir voru heillandi sem systurnar Fetta og Bretta. Gleðin og forvitnin skein úr augum þeirra og þær náðu góðum tengslum við áhorfendur sem fylgd- ust áhugasamir með því sem fram fór í þær 30 mínútur sem sýningin tók. Tinna Grétarsdóttir danshöf- undur og hópurinn á hrós skilið fyrir þessa yndislegu sýningu. Fetta Bretta er konfektmoli fyrir bæði augu og eyru sem enginn með ung börn ætti að láta framhjá sér fara. Ímyndunarafl „Þetta er sýning sem virkjar ímyndunarafl áhorfenda og heyra mátti börnin spyrja foreldra sína í forundran: „Hvað er þetta?“.“ Konfektmoli fyrir augu og eyru Kúlan í Þjóðleikhúsinu Fetta Bretta bbbbn Eftir Tinnu Grétarsdóttur og hópinn. Tónlist: Sólrún Sumarliðadóttir. Leik- mynd og búningar: Guðný Hrund Sig- urðardóttir. Lýsing: Ólafur Pétur Georgsson. Dansarar: Inga Maren Rún- arsdóttir og Snædís Lilja Ingadóttir. 3. sýning í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu 17. nóvember 2013. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Heimildarmyndin Dauðans alvara, eftir Áslaugu Baldursdóttur, verð- ur frumsýnd í dag kl. 18 í Bíó Para- dís. Myndin verður aðeins sýnd í dag, 23. og 24. nóvember. Í henni er fjallað um starfsemi útfararþjón- ustu, ljósi varpað á það ferli sem á sér stað frá andláti til grafar. Í tilkynningu segir að myndin svari mörgum spurningum sem fólk kunni að hafa um það viðkvæma ferli. Fylgst er með Rúnari Geir- mundssyni og sonum hans að störf- um hjá Útfararþjónustunni í Reykjavík í eina viku og fer Rúnar með áhorfendur í gegnum hefð- bundinn vinnudag og það ferli sem fylgir dauðanum. „Dauðinn sem er áþreifanlegur og alltumlykjandi í myndinni er skoðaður á óhefðbund- inn hátt,“ segir í tilkynningu. Ná- lægðin við efnið sé mikil og áhorf- endur verði þátttakendur í ferlinu. Stiklu úr myndinni má finna á slóð- inni vimeo.com/59855524. Frá andláti til grafar Útför Stilla úr heimildarmynd Ásu Baldursdóttur, Dauðans alvara. Bíófrumsýning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.