Morgunblaðið - 21.11.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Fyrir ótrúlega tilviljun hefur Kristín
Sólveig Bjarnadóttur, hjúkrunar-
fræðingur, komið að fjórum bíl-
slysum á árinu, síðast skammt frá
heimili sínu á Svalbarðsströnd í Eyja-
firði í fyrradag. Kristín segir sem bet-
ur fer engan hafa látist í slysunum,
þótt aðkoman hafi sannarlega ekki
alltaf verið góð.
„Ég kom í fyrsta skipti að mjög
ljótu slysi 17 ára. Þetta venst illa en
maður verður samt viðbúnari; miklu
meðvitaðri um að allt getur gerst og
ekkert ætti að koma á óvart,“ segir
Kristín við Morgunblaðið.
Í fyrradag rákust saman á Sval-
barðsströnd lítill fólksbíll og flutn-
ingabíll, með þungt grjóthlass úr
Vaðlaheiðargöngum. Þykir með ólík-
indum að ökumaður litla bílsins skuli
hafa sloppið með skrámur. „Aðkoman
var ljót, en sem betur fer meiddist
enginn illa. Það er alltaf óþægilegt að
koma að svona vettvangi, ekki síst
þegar maður er með börn í bílnum.
Maður vill helst ekki að þau sjái
svona lagað.“
Eftir að hafa komið nokkrum sinn-
um á slysstað tók Kristín upp á því að
hafa alltaf helsta nauðsynlegan búnað
í bílnum. „Þegar fjölskyldan fór í frí á
Vestfirðina í sumar pakkaði ég í bíl-
inn öllum mínum mælitækjum úr
starfinu, verkalyfjum og fleiru; hugs-
aði um að á þessu landsvæði væri
ekki alltaf hjálp að fá í hvelli. Við vor-
um í 20 manna hópi og mikið var
hlegið að mér fyrsta kvöldið á tjald-
stæðinu þegar ég ókyrrðist vegna
þess að ég hafði ekki komist í apótek
að kaupa tungurótartöflur. Nokkrum
vikum seinna gerðist það hins vegar
að kona í fjölskyldunni, á besta aldrei,
fékk hjartaáfall; enn einu sinni sann-
aðist fyrir mér að allt getur gerst.“
Kristínu er efst í huga mikilvægi
þess að allir séu meðvitaðir um að
eitthvað geti gerst, hvenær sem er.
„Ég hvet alla sem komnir eru með
bílpróf að vera með sjúkrapúða í bíln-
um; hefðbundna sjúkrapúða með því
helsta sem til þarf og fást í apótekum.
Það er líka mjög mikilvægt að vera
með eitt eða tvö teppi í bílnum; í
kulda eins og í [fyrradag] kólnar fólk
niður á svipstundu og þeir slösuðu
enn hraðar en aðrir.“
Hún segir þá sem fyrst koma á
vettvang að sjálfsögðu huga að fólki í
bílunum en mikilvægt sé að þeir
næstu hugi að því að vara aðra öku-
menn við. „Ég hef tvisvar verið á
vettvangi þar sem mjög litlu munaði
að frekari slys yrðu vegna aðvífandi
bíla,“ segir Kristín.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þungur Flutningabíll með þungan grjótfarm úr Vaðlaheiðargöngum sem fór út af á Svalbarðsströnd í fyrradag.
Best að vera alltaf
viðbúin hverju sem er
Hjúkrunarfræðingur komið að fjórum bílslysum í ár
Mæðgur Kristín Sólveig Bjarnadóttir og Sóley María Hauksdóttir.
„Ferðaþjónustan vill sjá daglega
þjónustu yfir veturinn á þessum fjöl-
förnustu leiðum eins og Gullna
hringnum. Ferðamönnum hefur
fjölgað gríðarlega og umferðin auk-
ist eftir því. Þetta hefur skapað rík-
issjóði tekjur. Núna er tími til að
setjast niður og ræða þessi mál. Við
fengum væga ábendingu þarna á
Þingvallaveginum en slysin geta
gerst aftur og orðið alvarlegri,“ seg-
ir Þórir Garðarsson, sölu- og mark-
aðsstjóri hjá rútufyrirtækinu Ice-
land Excursions. Hann gagnrýnir
vetrarþjónustu Vegagerðarinnar á
einni fjölförnustu ferðamannaleið
landsins, Gullna hringnum svo-
nefnda, en þar varð óhapp á Þing-
vallavegi sl. þriðjudag þegar rúta
með 45 erlenda ferðamenn valt í
mikilli hálku og roki á leið til Geysis
og Gullfoss.
Vetrarþjónusta, og þ.m.t. hálku-
varnir, eru fimm daga vikunnar á
þessari leið. Engin þjónusta er á
þriðjudögum og laugardögum og
segir Þórir að ferðaþjónustufyrir-
tæki hafi óskað eftir aukinni þjón-
ustu, ekki síst á laugardögum. Ekki
eru þó mörg ár síðan þjónustu-
dögum var fjölgað úr þremur í
fimm.
„Ísland á að vera öruggur áfanga-
staður og umferðaröryggi er partur
af því. Sem betur fer fór allt vel í
þessu tilviki, bíllinn var vel útbúinn
og öll viðbrögð voru til fyrirmyndar.
Ég bið bara um að við þurfum ekki
að fá annað óhapp til að menn fari
að gera eitthvað,“ segir Þórir.
Fjármagnið hamlar
„Við skoðum alla hluti en við
fyrstu sýn sjáum við ekki ástæðu til
að gera breytingar þarna. Við höf-
um margrætt þetta við ferðaþjón-
ustuna en erum einfaldlega að kljást
við stóran mínus í vetrarþjónust-
unni,“ segir G. Pétur Matthíasson,
upplýsingafulltrúi Vegagerð-
arinnar. „Það er víða kallað eftir
aukinni þjónustu en við getum ekki
haldið öllum vegum auðum. Fjár-
magnið hamlar okkur þar. Vegfar-
endur verða að taka mið af að-
stæðum hverju sinni,“ segir G.
Pétur. bjb@mbl.is
Vilja meiri vetrar-
þjónustu á ferða-
mannaleiðum
Talsmaður rútufyrirtækis vonar að
ekki verði beðið eftir alvarlegra slysi
Morgunblaðið/Sigmundur S.
Óhapp Rútan sem fór út af í hálku á
Þingvallavegi sl. þriðjudag.
Rúmlega 28.600
manns höfðu
skráð sig á Face-
book-síðuna:
Takk fyrir okkur
Eiður Smári um
klukkan ellefu í
gærkvöldi. Síðan
var stofnuð
klukkan 22 á
þriðjudag í kjöl-
far leiks Króatíu
og Íslands en eftir hann sagði Eiður
að hann væri „hræddur um“ að
þetta væri hans síðasti landsleikur.
Nærri 10 þúsund manns höfðu
skráð sig á síðuna einungis tveimur
tímum eftir að hún var stofnuð.
Rúm 28.600 manns
höfðu þakkað Eiði
Smára á Facebook
Takk Eiður Smári
Guðjohnsen
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Um fjórðungur stráka hér á landi á
aldrinum 15-16 ára fer daglega á
klámsíður á netinu en aðeins 4%
stelpna á sama aldri. Um 90% ung-
mennanna fara daglega á netið en
rúmlega 7% eru í áhættuhópi vegna
netávana.
Þetta kemur fram í nýrri evr-
ópskri rannsókn sem gerð var á ár-
unum 2011 og 2012 í sjö Evrópulönd-
um. Hjördís Sigursteinsdóttir,
sérfræðingur hjá
Rannsókna- og
þróunarmiðstöð
Háskólans á Ak-
ureyri, kynnti
niðurstöðurnar á
málþingi um
vernd barna
gagnvart skað-
legu efni í fjöl-
miðlum og tölvu-
leikjum í gær.
Hjördís segir helstu niðurstöðurn-
ar vera þær að 90% ungmenna á
þessum aldri fari daglega á netið og
eyði þar um tveimur og hálfri
klukkustund. Stelpur eru frekar á
samskiptasíðum en fleiri strákar
horfa á myndbönd. Þeir sinna einnig
áhugamálum sínum, þar á meðal
tölvuleikjaspili, í mun meira mæli en
stelpurnar.
Fram kemur í niðurstöðunum að
ungmennin noti í miklum mæli sín
eigin tæki til að fara á netið og segir
Hjördís að það geri foreldrunum erf-
iðara fyrir að hafa umsjón með net-
notkuninni.
Fara daglega á klámsíður
Um fjórðungur stráka á aldrinum 15-16 ára skoðar klámsíður á netinu daglega
Strákar fara í tölvuleiki og horfa á myndbönd Stelpur frekar á samskiptasíðum
Í hættu vegna netávana
» 0,8% ungmenna á Íslandi
eru haldin netávana, en 7,2%
eru í áhættuhópi.
» Hjördís segir ungmenni með
netávana námslega og félags-
lega veikari en jafnaldrar þeirra.
» Andleg vanlíðan tengist mik-
illi netnotkun.
Hjördís
Sigursteinsdóttir
LÉTTOG
LAKTÓSAFRÍ
SÚRMJÓLK
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA