Morgunblaðið - 21.11.2013, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2013
Katrín Jakobsdóttir, formaðurVinstri grænna og fyrrver-
andi menntamálaráðherra, ritaði
grein hér í blaðið í gær og lýsti
áhyggjum sínum af því að hag-
ræðingarnefnd
vildi leggja niður
fjölmiðlanefnd.
Formaðurinn tel-ur að þar sem
fjölmiðlar séu svo-
kallað „fjórða
vald“ og nauðsyn-
legir lýðræðisríkjum til að
„tryggja öfluga og gagnrýna um-
ræðu“ þurfi nefnd á vegum rík-
isins til að hafa yfirumsjón með
því að fjölmiðlar sinni þessu hlut-
verki sínu og þá hvernig þeir geri
það.
Mikilvægt hafi verið talið aðsetja á laggirnar „sjálfstæða
fjölmiðlanefnd, óháða ráðherra“
til að fylgjast með fjölmiðlum.
Fjölmiðlanefndin sem Katrín ersvo ánægð með að hafa sett á
laggirnar hefur ekki aðeins eftir-
lit með eignarhaldi eða að fjöl-
miðlar brjóti ekki lög, enda þyrfti
ekki sérstaka nefnd til þess, held-
ur reynir nefndin að hlutast til
um hvernig fjölmiðlar starfa.
Hægt er að taka undir meðKatrínu að fjölmiðlar geta
gegnt mikilvægu hlutverki, en
þeir eiga ekki að gera það sam-
kvæmt fyrirmælum eða undir
eftirliti ríkisins.
Fjölmiðlar hafa meðal annarsþað hlutverk að stuðla að
gagnrýninni umræðu, en sú gagn-
rýna umræða þarf einnig frjálst
og ótruflað að geta beinst að vald-
höfum hverju sinni. Ekki síst þess
vegna á ríkið ekkert með að vera
með afskipti af umfjöllun fjöl-
miðla.
Katrín
Jakobsdóttir
Opinbert eftirlit
með fjölmiðlum
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.11., kl. 18.00
Reykjavík -1 alskýjað
Bolungarvík 4 skýjað
Akureyri -5 léttskýjað
Nuuk -2 snjókoma
Þórshöfn 0 frostrigning
Ósló -6 heiðskírt
Kaupmannahöfn 3 heiðskírt
Stokkhólmur 2 heiðskírt
Helsinki 2 heiðskírt
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 3 skúrir
Dublin 6 léttskýjað
Glasgow 6 léttskýjað
London 6 heiðskírt
París 2 skúrir
Amsterdam 3 skúrir
Hamborg 3 heiðskírt
Berlín 3 skýjað
Vín 7 skúrir
Moskva 2 heiðskírt
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 10 léttskýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 8 léttskýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 18 léttskýjað
Winnipeg -6 skýjað
Montreal -1 léttskýjað
New York 3 heiðskírt
Chicago 3 skýjað
Orlando 25 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:17 16:11
ÍSAFJÖRÐUR 10:45 15:53
SIGLUFJÖRÐUR 10:29 15:35
DJÚPIVOGUR 9:52 15:35
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur sam-
þykkti deiliskipulag fyrir Vesturbugt og Nýlendu-
reit á fundi sínum í gær. Í skipulaginu er gert ráð
fyrir 195 íbúðum og tæplega 8 þúsund fermetrum
af atvinnuhúsnæði við höfnina. Þá stendur til að
leyfa slippnum að standa eins og hann er við
Suðurbugt. Horfið var frá því að rífa hann eins og
til stóð samkvæmt fyrra deiliskipulagi. Í frétta-
tilkynningu segir einnig að fallið hafi verið frá að-
alskipulagi Reykjavíkurborgar 2001-2024 um að
leggja Mýrargötu í stokk yfir Nýlendugötu.
Í tilkynningunni segir að komið hafi verið til
móts við hagsmunaaðila sem gerðu athugasemdir
á auglýsingatíma deiliskipulagsins. Var það gert
með því að lækka hús næst hafnarbakkanum úr
fimm hæðum í fjórar en húsþök þeirra skulu
verða úr grasi til eingangrunar. Þá voru hús við
Héðinsgötu lækkuð til að gera húsahæðir á reitn-
um fjölbreyttari. Hætt er við að lengja Bræðra-
borgarstíg niður að Mýrargötu en þess í stað gert
ráð fyrir göngustíg sem liggi í beinu framhaldi af
Bræðraborgarstíg frá Vesturgötu. vidar@mbl.is
Samþykktu deiliskipulag
Breytingar frá fyrri tillögu Mýrargata ekki lögð í
stokk Fjölbýlishús verði fjórar hæðir í stað fimm
Deiliskipulag Nýtt deiliskipulag var samþykkt
fyrir Vesturbugt og Nýlendureit í gær.
Hydrovane loftpressur eru lágværar,
fyrirferðarlitlar, öflugar og henta alls
staðar þar sem þörf er á þrýstilofti.
Mikið úrval af hágæðaloftpressum,
lögnum og síum. Bjóðum lausnir
í þrýstilofti fyrir allar aðstæður.
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is
Allt annað líf
- með hljóðlátri loftpressu
Kynntu
þér úrvalið
á idnvelar.is
Í samþykktu deiliskipulagi liggur
fyrir tillaga með nánari útfærslu
rússneskrar rétttrúnaðarkirkju.
Ekki er lengur gert ráð fyrir bíla-
geymslu undir kirkjunni. Í ljósi at-
hugasemda var byggingarreitur
hennar þrengdur enn frekar, þann-
ig að bygging á 75% grunnflatar má
ekki fara yfir 12 metra hæð en var
áður 17 metrar. Tveir turnar mega
vera 17 metra háir og einn stór allt
að 22 metrar. Íbúasamtök Vestur-
bæjar höfðu gert athugasemd við
stærð kirkjunnar. Birgir Þröstur
Jóhannsson, formaður samtakanna,
segir að samtökin eigi eftir að fara
yfir nýtt skipulag og var hann ekki
tilbúinn að tjá sig um það að sinni.
Tölvumynd/Rússn. rétttrúnaðark.
Kirkja Rússneska rétttrúnaðar-
kirkjan er á skipulagi.
75% 12 metr-
ar eða lægri