Morgunblaðið - 21.11.2013, Side 11
allir nýtt kjötgálgann. Kristján
segir það hrútleiðinlegt að vera í
hlutverki þess sem venjulega sker,
til dæmis þegar gestirnir vilja fá
ábót. „Æ, ansans, hugsar maður.
Þarf ég þá að standa upp aftur og
skera og svona? Enginn vill nátt-
úrlega skera, til dæmis út af
þessu, en það er gaman að skera í
kjötgálganum og þá er þetta kom-
ið út í: Má ég skera?“
Gamla góða rúllupylsan
Þetta er nú á meðal þess sem
Kristján gerir í frítímanum og
hann fær fjölmargar hugmyndir.
Hann hefur smíðað ófáar kjöt-
pressur sem áður voru til á hverj-
um bæ þegar menn gerðu sína
rúllupylsu sjálfir. „Flestir voru nú
hættir að gera rúllu-
pylsu en þetta er að
vísu að koma aft-
ur og það er
svona einn og einn
að spyrja um kjöt-
pressuna,“ segir
Kristján.
Annað sem hann
smíðar eru flugubox sem veiði-
menn kunna vel að meta, enda fátt
mikilvægara en að passa vel upp á
flugurnar sínar. Hann er ekki við
eina fjölina felldur og smíðar allt á
milli himins og jarðar en allir hafa
hlutirnir notagildi og gagnast í
mörgum tilvikum þeim sem lent
hafa í slysum eða eru veikir. Dæmi
um það eru hlutir á borð við spila-
stokkinn en hann er fyrir þá sem
ekki hafa báðar hendur til að not-
ast við og sömu sögu er að segja
um kjötgálgann sem þó getur nýst
öllum.
Þúsundþjalasmiðurinn
Kristján Sveinsson við
kjötgálgann góða
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2013
Í kvöld klukkan 20 sýnir áhuga-
ljósmyndarinn Kristinn Einarsson
myndir úr leiðöngrum sínum um
Grænland og segir í leiðinni frá þeim
stöðum sem hann heimsótti. Kalak,
vinafélag Íslands og Grænlands held-
ur utan um viðburðinn sem verður í
Norræna húsinu í Vatnsmýrinni.
Myndirnar tók Kristinn á austur-
strönd Grænlands: Kulusuk, Tasiilaq,
Tiniteqilaq, og Kummiiut, sem og frá
þorpunum Sisimiut, Kangerdluarsuk
Ungatleq, Ilulissat og Pakitsoq á
vesturströndinni.
Árið 1996 fór Kristinn fyrst til
Grænlands og starfaði næstu þjú
sumur við brúarsmíði í Sisimiut.
Síðan fór hann aftur 2004 til Tasi-
ilaq í virkjunarframkvæmdir.
Árið 2006 fór hann til Qorlortor-
suaq á Suður-Grænlandi og starfaði
þar um sumarið einnig við virkjunar-
framkvæmdir.
Auk þess starfaði hann í Sisimiut
og Ilulissat við virkjunarfram-
kvæmdir frá árinu 2007 til 2013.
Myndirnar sem sýndar verða eru
mjög áhrifaríkar og sýna mannlíf,
dýralíf, náttúru og veðurfar á þessum
slóðum. Kristinn ferðaðist bæði fót-
gangandi og á kajak um austurstönd-
inna og notaði tækifærið til að festa
sem flest á filmu. Útkoman er ein-
stök og eru allir hvattir til að koma
við í Norræna húsinu í kvöld. Aðgang-
ur er ókeypis.
Mannlíf og dýralíf hjá okkar næstu nágrönnum
Einstakt Umhverfið á austurstöndinni er engu líkt.
Grænland í myndum og máli
Fjarðarkaup
Gildir 21. nóv.-23. nóv. verð nú áður mælie. verð
Svínahnakki úrb. úr kjötborði ...... 1.198 1.598 1.198 kr. kg
Kindalundir úr kjötborði.............. 2.798 3.598 2.798 kr. kg
Hamborgarar, 4x80 g m/brauði .. 620 720 620 kr. pk.
Matfugl, frosnar kjúklingbringur... 1.798 2.264 1.798 kr. kg
Matfugl, frosnir kjúklingaleggir .... 669 796 669 kr. kg
Fjallalambs hangilæri, úrb. ......... 2.898 3.298 2.898 kr. kg
Fjallalambs hangilæri, úrb. ......... 2.098 2.498 2.098 kr. kg
Kjarval
Gildir 21.-24. nóvember verð nú áður mælie. verð
KEA hangiframpartur m/beini ..... 1.323 1.698 1.323 kr. kg
Holta kjúklingur, ferskur .............. 848 998 848 kr. kg
Goða svið, frosin........................ 219 349 219 kr. kg
Jólabrauð, nýbakað .................... 369 498 369 kr. stk.
FP hundafóður, 4 kg ................... 1.199 1.349 1.199 kr. pk.
Klementínur/mandarínur............ 299 399 299 kr. kg
Ital pitsa, 3 teg., 370 g .............. 479 598 479 kr. pk.
Krónan
Gildir 21. nóv.-24. nóv. verð nú áður mælie. verð
Krónu kjúklingabringur, ferskar.... 1.999 2.298 1.999 kr. kg
Krónu kjúklingur, ferskur ............. 799 859 799 kr. kg
Kjúklingur m/lime og rósmarin .... 1.198 1.349 1.198 kr. kg
Lambalæri, ófrosið ..................... 1.298 1.498 1.298 kr. kg
Lambalæri kryddað, ófrosið ........ 1.298 1.598 1.298 kr. kg
Lambahryggur, ófrosinn.............. 1.598 2.198 1.598 kr. kg
Krónu hamborgarhryggur ............ 1.098 1.398 1.098 kr. kg
Nóatún
Gildir 22. nóv.-24. nóv. verð nú áður mælie. verð
Folaldasnitsel úr kjötborði .......... 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Folaldagúllas úr kjötborði ........... 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Folaldapiparsteik úr kjötb. .......... 1.979 3.298 1.979 kr. kg
Folaldainnralæri úr kjötborði ....... 1.979 3.298 1.979 kr. kg
Folaldafille úr kjötborði............... 2.699 3.898 2.699 kr. kg
Folaldalundir úr kjötborði ........... 3.289 4.698 3.289 kr. kg
Folaldahakk úr kjötborði ............. 399 598 399 kr. kg
Helgartilboðin
Það er ekki leyfilegt að jarða
gæludýr í kirkjugörðum manna
en til eru sérstakir kirkjugarðar
fyrir gæludýr. Einn er í Njarðvík
og sér Jónas Eyjólfsson um
hann. Kristján hefur dundað sér
við að smíða kistur handa gælu-
dýrum sem jörðuð eru þar. „Fólk
vill fylgja dýrunum til grafar
enda hafa þau oft verið heim-
ilisvinir í þrettán til fimmtán ár.
Þá er ekkert skrítið að það vilji
fylgja þeim alla leið,“ segir Krist-
ján sem nostrar við kisturnar
sem sumar hverjar eru
agnarsmáar. Upp-
lýsingar um hand-
verk Kristjáns er að
finna á vefsíðunni
www. skogarholl.is.
Kistur fyrir
gæludýrin
ÞEGAR DÝRIN DEYJA
„Það er langt síðan ég komst upp á
bragðið með að taka 1944 kjötsúpu
meðmér til Grænlands. Þetta er
nefnilega alveg ekta íslensk kjötsúpa,
matarmikil og bragðgóð. Svona
vinnuferðir eru nokkuð krefjandi,
það er mikill búnaður sem fylgir
ljósmyndun og þess vegna er 1944
kjötsúpan bæði þægileg og hentug.
Síðan komst ég að því að grænlenskir
ferðafélagar mínir eru sólgnir í hana,
sem hefur kosti og galla: Við erum
rétt lagðir af stað þegar birgðirnar af
súpu eru búnar. Þá er bara að muna
að birgja sig betur upp næst.“
RAX
HEIT MÁLTÍÐ Á 5 MÍNÚTUM
Ómissandi
kjötsúpa
Hægeldun
tryggir að
vítamín, bragðefni
og næringarefni
halda sér.
Engin viðbætt
rotvarnarefni.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA