Morgunblaðið - 21.11.2013, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2013
Fríkirkjan í Hafnarfirði og Hafn-
arfjarðarkirkja standa saman að af-
mælisgöngu nk. laugardag frá
Garðakirkju að Fríkirkjunni. Til-
efnið er 100 ára afmæli kirknanna.
Lagt verður af stað kl. 13, staldrað
við á nokkrum stöðum og endað í
Fríkirkjunni með stuttri athöfn,
auk þess sem boðið verður upp á
kaffi í safnaðarheimilinu. Leið-
sögumaður er Jónatan Garðarsson.
100 ára afmælis-
ganga í Hafnarfirði
Hafnarfjörður Tekið um 1920 frá Kirkju-
vegi yfir bæinn. Fríkirkjan og Hafnarfjarð-
arkirkja sjást í upprunalegri mynd.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Til greina kemur að seinka gildistöku
frumvarps um orkuskipti í sam-
göngum með eldsneyti af endurnýj-
anlegum uppruna. Lögin eiga að taka
gildi 1. janúar næstkomandi.
Málið kom til
umræðu á fundi
atvinnuvega-
nefndar í fyrradag
og segir Jón
Gunnarsson, for-
maður nefndar-
innar, að þar hafi
komið fram ýmis
ný sjónarmið sem
taka þurfi tillit til.
Það sé engu að
síður markmiðið að afgreiða frum-
varpið í þingið í næstu viku þannig að
það geti orðið að lögum fyrir áramót.
Er heimsóknum til nefndarinnar
vegna þessa nú lokið. Við gildistökuna
eiga 3,5% af eldsneyti í samgöngum
að vera endurnýjanleg og á hlutfallið
að hækka í 6% 1. janúar 2016. Tilefnið
er tilskipun frá ESB frá 2009 en
markmið hennar er að hlutfallið verði
komið í 10% árið 2020.
Mikil samstaða í nefndinni
Jón segir einhug á þingi í málinu.
„Við vorum með gestakomur út af
frumvarpinu [í fyrradag] og fyrir
helgi. Það var mikil samstaða um mál-
ið í atvinnuveganefnd þegar það var
afgreitt úr nefndinni sl. vetur. Það var
mikill einhugur um að flýta gildistök-
unni og þverpólitísk sátt um að frum-
varpið myndi auka notkun innlendra
eldsneytisgjafa. Í því efni var fyrst og
fremst horft til framleiðslu fyrirtæk-
isins Carbon Recycling International
í Svartsengi á metanóli til innlendrar
notkunar.
Þá var horft til framleiðslu á lífdísil
innanlands. Þarna er talið að sé kjörið
tækifæri til að efla íslenskan iðnað,
auk þess sem notkun innlends elds-
neytis geti sparað gjaldeyri.
Samkvæmt upphaflega frumvarp-
inu sem kom inn í þingið sl. vor áttu
lögin að taka gildi 1. janúar 2015 en
eftir að nefndin hafði fjallað um málið
var þverpólitísk samstaða um að flýta
þeirri dagsetningu. Síðan hafa komið
fram upplýsingar sem ekki lágu uppi
á borðinu þá. Þar á ég við tæknilega
örðugleika sem ekki komu fram á
fundum nefndarinnar með hags-
munaaðilum á sínum tíma. Við höfum
farið yfir þau atriði með málsaðilum
og erum að móta hvernig við skrifum
frumvarpið. Það er ljóst að það þarf
að mæta þeim á einhvern hátt til þess
að auka svigrúmið fyrir málsaðila áð-
ur en lögin taka gildi.“
– Hvaða nýju atriði eru þetta?
„Það sem kom ekki fram við máls-
meðferðina sl. vor varðar t.d. bæði
metanól og etanól sem yrðu væntan-
lega stærstu íblöndunarefnin.“
Kallar á sérstakar ráðstafanir
„Þá á ég við hvernig efnin haga sér
við bruna. Það þarf að gera sérstakar
ráðstafanir á birgðastöðum og við
flutning. Það þarf önnur slökkviefni
til að slökkva eld í þessum efnum en í
hefðbundnu eldsneyti. Loginn þegar
metanól eða etanól brennur er ekki
sýnilegur. Það þarf því sérstakar hita-
myndavélar til að greina logann.
Það eru svona tæknileg atriði sem
koma inn í þetta. Það er til skoðunar
hjá Mannvirkjastofnun hvernig er
best að fara með geymsluna á þessu.
Það þarf þannig að svara því hvernig
eigi að standa að geymslu á íblönd-
unarefnum, sérstaklega í Örfirisey.
Hvernig á að bregðast við ef eldur
kviknar í þessum efnum?
Samkeppnislöggjöfin kemur hér
einnig við sögu. Sökum þess hversu
lítið magn er um að ræða af heildar-
innflutningi eldsneytis er talið heppi-
legast að olíufélögin sameinist um
geymslu á nýju efnunum í einum
tanki, þau séu ekki geymd í mörgum
tönkum. Það er eitthvað sem sam-
keppnisyfirvöld þurfa að heimila.
Þetta eru því mál tæknilegs eðlis
sem kalla á að frumvarpið sé endur-
skoðað og að það þurfi jafnvel að
fresta eitthvað gildistöku laganna.“
– Hversu lengi?
„Við leggjum nú mat á hversu mik-
inn tíma þarf til að leysa málin þannig
að vel sé og allir geti uppfyllt þetta á
réttum tíma.“
Óvissa um tímasetningar
– Kveðið er á um 500.000 kr. dag-
sektir til handa söluaðilum sem ekki
uppfylla skilyrði um íblöndunarefni
frá gildistöku laganna. Verður undan-
þága veitt frá sektum til bráðabirgða
samfara frestun laga?
„Það er einn möguleikinn, að láta
sektargreiðsluákvæðin verða virk síð-
ar, eða hreinlega fresta gildistöku lag-
anna um ákveðinn tíma, þannig að við
sköpum svigrúm og aðlögun fyrir um-
rædd fyrirtæki. Þótt nýjar upplýsing-
ar hafi komið fram hefur viðhorf
nefndarinnar hins vegar ekkert
breyst. Hún er einhuga um gildistöku
laganna.“
– Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins komu hagsmunaaðilar, þar
með taldir starfsmenn Carbon Re-
cycling International, að gerð upphaf-
lega frumvarpsins. Telurðu það eðli-
legt í ljósi beinna hagsmuna þeirra?
„Ég held að það sé ekki hægt að
vinna frumvörp um svona mál öðru-
vísi en að leita í smiðju þeirra sem
best þekkja til. Allir hagsmunaaðilar
voru kallaðir að borðinu. Það eru að
mínu viti mjög eðlileg vinnubrögð.“
Að sögn Jóns mun atvinnuvega-
nefnd flytja frumvarpið en ekki
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra. Hefur hún lýst
sig fylgjandi frumvarpinu.
Morgunblaðið/Kristinn
Við dæluna Verði frumvarpið að lögum verður hlutfall endurnýjanlegs eldsneytis í samgöngum að vera minnst 3,5%.
Gæti tafið áform um
íblöndun eldsneytis
Nýjar upplýsingar kalla á breytingar frumvarpsins
Fyrirtækið Lífdísill ehf. hyggst á
næsta ári auka framleiðslu á lífdísil-
olíu úr 100.000 lítrum á ári í
500.000 lítra ef samningar nást við
SORPU um sláturúrgang sem nú er
urðaður. Þá hefur fyrirtækið uppi
áform um að auka framleiðsluna í 1,5
milljónir lítra árið 2015, ef allt geng-
ur að óskum, og í 4 milljónir lítra
2016-2017.
Sigurður Ingólfsson, hagfræð-
ingur og stjórnarformaður Lífdísils
ehf., staðfestir þetta og segir að við
áætlanasmíðina sé horft til væntan-
legrar gildistöku laga um hlut endur-
nýjanlegs eldsneytis í samgöngum.
Að hans sögn verður fitunni af slát-
urúrganginum fleytt af með suðu en
það sem eftir stendur myndi fara til
gas- og jarðgerðar hjá Sorpu.
Framleiðslan fer fram í verksmiðju
fyrirtækisins á Lynghálsi í Reykjavík.
Segir Sigurður að ekki þurfi að
stækka hana til
að anna vænt-
anlegri eftirspurn
þegar hlutur
íblöndunarefna í
eldsneyti verður
bundinn í lög
enda sé hún nú
aðeins nýtt að
hluta. Stofnun
Lífdísils ehf. má
rekja til styrks sem veittur var úr
Tækniþróunarsjóði árið 2009 til
verkefnisins Íslenskur lífdísill. Hrá-
efnið í vinnsluna hefur hingað til
verið sótt í Orkugerðina fyrir aust-
an Selfoss sem er förgunarstöð fyr-
ir sláturhúsin í Hraungerðishreppi.
Sala afurðanna í dýrafóður varð
erfiðari eftir að Creutzfeldt-Jakob-
sjúkdómurinn kom upp en fituþátt-
urinn hentar vel til eldsneytisfram-
leiðslu, að sögn Sigurðar.
Vinni lífdísil úr sláturúrgangi
FYRIRTÆKIÐ LÍFDÍSILL HYGGST STÓRAUKA VINNSLUNA
Sigurður
Ingólfsson
Jón Gunnarsson
Þönglabakka 4, sími 571-2288, www.gauja.is
MERINO +
NÝTT OG SPENNANDI
GARN FRÁ LANGYARNS
SJÓN ER SÖGU RÍKARI
VERIÐ VELKOMIN
HÚMÖR Í HAFNARFIRÐI
www.holabok.is/holar@holabok.is
Ingvar Viktorsson les upp úr bók
sinni, HÚMÖR Í HAFNARFIRÐI, í
Eymundsson-búðinni þar í bæ
kl. 17:00 í dag. Þarna verður
mikið fjör, enda bókin bráð-
skemmtileg og því mætir þú
þangað að sjálfsögðu.
Allir velkomnir.