Morgunblaðið - 21.11.2013, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2013
Gamall slökkvibíll á Siglufirði,
Mercedes Benz Unimog, árgerð
1965, mun fara til annars slökkvi-
liðs.
Þrjú tilboð bárust í bílinn þegar
sveitarfélagið Fjallabyggð aug-
lýsti hann til sölu í sumar. Fallið
var frá einu tilboðinu og hinum
var hafnað. Bæjarráð hafði áskilið
sér rétt til að hafna öllum til-
boðum.
„Þetta er ókeyrður bíll, það er
búið að keyra hann eitthvað 7.500
kílómetra og hann lítur feikilega
vel út. Hann er vissulega orðinn
gamall en er með góða dælu og
þokkalegan vatnstank. Við von-
umst til að hann nýtist áfram ein-
hverjum,“ sagði Sigurður Valur
Ásbjarnarson, bæjarstjóri Fjalla-
byggðar. Hann vildi ekki upplýsa
um hvaða slökkvilið falaðist eftir
bílnum fyrr en búið væri að ganga
frá málinu.
„Við fengum kauptilboð sem
var þokkalega gott en svo var fall-
ið frá því,“ sagði Sigurður. Næsta
tilboð var næstum því helmingi
lægra. „En þetta er ekki spurning
um peninga. Við höfum fengið
slökkvibíla frá öðrum slökkvilið-
um. Slökkvibílar hafa farið á milli
slökkviliða í landinu, til dæmis
þegar einhver sýnir áhuga á að fá
eldri bíl til að brúa eitthvert bil.
Þá hefur það þótt lykilatriði að
menn reyni að aðstoða hverjir
aðra. Um það snýst þetta mál, en
ekki um peninga.“ gudni@mbl.is
Unimoginn verður
áfram slökkvibíll
Kauptilboðum í bílinn var hafnað
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Babú-babú Unimog slökkvibíllinn er árgerð 1965 en mjög lítið ekinn.
Samningum um aðild Króatíu að
samningum um Evrópska efna-
hagssvæðið lauk í gær með áritun
samningamanna um meginniður-
stöður samningaviðræðna.
Samningurinn felur m.a. í sér
að EES-ríkin ríkin þrjú; Ísland,
Noregur og Liechtenstein, fá að-
gang að markaði í Króatíu með
sama hætti og að markaði aðild-
arríkja ESB. Ísland mun einnig fá
aukna tollfrjálsa innflutnings-
kvóta inn á markað ESB, þ.e. fyr-
ir fersk karfaflök (100 tonn) og
humar (60 tonn). Ríkin þrjú munu
munu greiða alls fimm milljónir
evra í uppbyggingarsjóð og mun
féð renna til Króatíu. Hlutur Ís-
lands er áætlaður 161.000 evrur,
26,3 milljónir króna. Að auki
greiðir Noregur 4,6 milljónir evra
til Króatíu.
Í tilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu kemur fram að samið hafi
verið um að sömu takmarkanir
gildi um frjálsa för vinnuafls og
gilda í aðildarsamningi Króatíu
að ESB. Íslandi sé því heimilt að
takamarka aðgang Króata að ís-
lenskum vinnumarkaði allt til árs-
ins 2020. Ísland mun beita tak-
mörkunum til 30. júní 2015, hið
minnsta.
Geta tak-
markað að-
gang til 2020
Aðild Króatíska fánanum og fána
ESB flaggað í Zagbreb.
Samið um aðild
Króatíu að EES
Ljósmynd/Elvis Barukcic/ESB
1 AF HVERJUM 5
HEFURSAFNAÐFYRIR
HÚSGÖGNUM
Samkvæmt sparnaðarkönnun
Capacent og Arion banka
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
3
-2
3
1
6
Fjárfestingarsjóður sem fjárfestir að mestu í innlánum og nýtur betri
vaxtakjara í krafti stærðar sinnar.
Sjóðurinn hefur jafnframt heimild til að fjárfesta í víxlum, skuldabréfum
og öðrum fjármálagerningum með ábyrgð íslenska ríkisins.
Hentar vel í skammtímasparnað, laus með dags fyrirvara.
Hægt að spara í sjóðnum frá 5.000 kr. á mánuði.
STEFNIR – LAUSAFJÁRSJÓÐUR
VERÐÞRÓUN ÁRLEG
NAFNÁVÖXTUN
100
2
7
.0
4
.2
0
1
2
2
7
.0
5
.2
0
1
2
2
7
.0
6
.2
0
1
2
2
7
.0
7
.2
0
1
2
2
7
.0
8
.2
0
1
2
2
7
.0
9
.2
0
1
2
2
7
.1
0
.2
0
1
2
2
7
.1
1
.2
0
1
2
2
7
.1
2
.2
0
1
2
2
7
.0
1
.2
0
1
3
2
7
.0
2
.2
0
1
3
2
7
.0
3
.2
0
1
3
2
7
.0
5
.2
0
1
3
2
7
.0
6
.2
0
1
3
2
7
.0
7
.2
0
1
3
2
7
.0
8
.2
0
1
3
2
7
.0
9
.2
0
1
3
2
7
.1
0
.2
0
1
3
2
7
.0
4
.2
0
1
3
101
102
103
104
105
106
107
108
STEFNIR - LAUSAFJÁRSJÓÐUR
0%
2%
4%
6%
5,6% 5,4 %
ÞÚ GETUR KEYPT Í SJÓÐNUM:
Í síma
444 7000
Í netbanka
Arion banka
Í næsta útibúi
Arion banka
Stefnir hf. er sjálfstætt starfandi fjár-
málafyrirtæki sem rekur innlenda og
alþjóðlega verðbréfasjóði, fjárfestingar-
sjóði og fagfjárfestasjóði fyrir einstak-
linga og fagfjárfesta. Verðbréfaþjón-
usta Arion banka er söluaðili sjóða
Stefnis. Ávöxtunartölur eru fengnar hjá
Stefni hf. Árangur í fortíð er ekki örugg
vísbending eða trygging fyrir árangri
í framtíð.
Vakin er athygli á að fjárfesting í hlut-
deildarskírteinum sjóða er áhættusöm
og getur fjárfesting rýrnað eða tapast
að öllu leyti. Nánari upplýsingar um
sjóðinn, þ.á.m. nánari upplýsingar um
áhættu við fjárfestingu í hlutdeildar-
skírteinum hans og fjárfestingarstefnu
má finna í útboðslýsingu, og í útdrætti
úr útboðslýsingu sjóðsins sem nálgast
má á arionbanki.is/sjodir.31
.1
0
.2
0
1
2
3
1
.1
0
.2
0
1
3
F
rá
st
o
fn
u
n
sj
ó
ð
s
2
7
.0
4
.2
0
1
2
3
1
.1
0
.2
0
1
3
Varðberg, samtök
um vestræna sam-
vinnu og alþjóða-
mál, boðar til op-
ins fundar í
hádeginu í dag,
fimmtudaginn 21.
nóvember.
Á fundinum
mun Hanna Birna
Kristjánsdóttir
innanríkis-
ráðherra flytja ræðu og fjalla um
breyttar forsendur í öryggismálum.
Hún mun fjalla um hvernig skilgreina
beri öryggi í víðum skilningi, áhersl-
una á borgaralegt og samfélagslegt
öryggi, samhliða þeim áskorunum
sem blasa við, t.d. vegna nýrrar
tækni.
Fundurinn er haldinn í fyrirlestr-
arsal Þjóðminjasafns Íslands við Suð-
urgötu og stendur frá kl. 12 til 13.
Öryggi almennings
– nýjar áskoranir
Hanna Birna
Kristjánsdóttir