Morgunblaðið - 21.11.2013, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 21.11.2013, Qupperneq 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2013 Mótmæli Þessi loðni ferfætlingur teygði úr sér og sýndi afturendann í mótmælum fyrir framan innanríkisráðuneytið í gær. Á anna tug mótmælti brottvísun hælisleitanda sem fer huldu höfði. RAX Orsakir kreppu Landspítalans eru vafalaus margþættar, en gríðarlegur nið- urskurður fjárveitinga á þar stóran hlut. Það er næsta ótrúlegt hvað fjárveitingavaldið hef- ur skorið Landspít- alann mikið niður, langt umfram annan ríkisrekstur. Á und- anförnum áratug hafa fjárveitingar til Landspítala lækkað mun meira en fjárveitingar til ríkisstofnana al- mennt. Landspítali skorinn umfram aðrar ríkisstofnanir Mynd 1 (frá hagdeild Landspít- ala) sýnir þróun opinberra útgjalda eftir málaflokkum frá 2001 til 2012, byggða á þjóðhagsreikningum Hag- stofu Íslands og ársreikningum Landspítala. Á myndinni má sjá að útgjöld til almannatrygginga og velferðarmála hafa hækkað um meira en 50% á þessu tímabili og framlög til menntamála og heil- brigðismála um u.þ.b. 10-15%. Framlög til Landspítala hafa aftur á móti lækkað um næstum 10%. Framlög ríkisins til Landspítala á tímabilinu hafa lækkað í öllum samanburði eins og sjá má í töflu . Árið 2001 voru framlög til Land- spítala 2,6% af þjóðarframleiðslu og fóru upp í 2,9% 2003. Árið 2012 er hlutfallið komið niður í 2,1%. Fram- lag til Landspítalans sem hlutfall af útgjöldum hins opinbera var 6,3% fyrir áratug en er komið niður í 4,5% árið 2012. Á mannamáli þýðir þetta að peningar hafi verið teknir frá Landspítala og fluttir til ann- arra ríkisstofnana. Landspítali lækkar en önnur heilbrigð- isútgjöld hækka Það vekur athygli að fjárframlög hins op- inbera til Landspít- alans hafa lækkað verulega sem hlutfall af framlögum ríkisins til heilbrigðismála. Ár- ið 2001 fékk Landspít- alinn 32,3% af út- gjöldum hins opinbera til heilbrigðismála en 27,9% árið 2012 (sjá töflu). Árið 2001 fékk Landspítalinn 61,9% af heildarframlögum hins opinbera til sjúkrahúsþjónustu, sem er nú kom- ið niður í 58,1%. Á sama tíma hefur Landspítalinn tekið til sín aukin verkefni. Aftur má túlka það þann- ig að peningar hafi verið færðir frá Landspítala til annarra verkefna innan heilbrigðiskerfisins. Þessi samanburður sést vel á mynd 2 (frá hagdeild Landspítala), sem sýnir þróun heilbrigðisútgjalda hins op- inbera frá 2001 til 2012 og er sem fyrr byggð á þjóðhagsreikningum Hagstofu Íslands og ársreikningum Landspítala. Myndin sýnir að heild- arútgjöld ríkisins til heilbrigðismála hafa aukist verulega á liðnum ára- tug. Útgjöld til almennrar sjúkra- húsþjónustu að Landspítala und- anskildum hafa hækkað um nær 10% á þessu tímabili á meðan út- gjöld til Landspítala hafa lækkað verulega. Þess ber þó að geta að kostnaður vegna S-lyfja er hluti af almennum sjúkrahúskostnaði og hefur hækkun þeirra verið talsverð síðustu ár. Stefnumótun um niður- skurð Landspítala? Þessar staðreyndir sýna svo ekki er um villst að fjárveitingarvaldið hefur skorið Landspítalann sér- staklega niður á liðnum áratug, langt umfram aðrar ríkisstofnanir. Slíkt hlýtur að teljast stefnumót- andi en þó hefur mér vitandi ekki farið fram nein umræða né sú nið- urstaða verið sett fram að Land- spítalinn sé léttvægari en önnur heilbrigðisþjónusta í landinu. Það er stefnumótandi ákvörðun að Landspítalinn fari úr 6,3% í 4,5% af útgjöldum hins opinbera. Slík breyting felur í sér þá sann- færingu fjárveitingarvaldsins að Landspítalinn sé síður nauðsyn- legur fyrir íslenskt þjóðfélag en aðrar ríkisstofnanir. Þegar Land- spítalinn lækkar úr 6,3% niður í 4,5% af útgjöldum ríkisins er verið að flytja peninga frá Landspítala til annarra ríkisstofnana sem fjárveit- ingarvaldið telur greinilega mik- ilvægari. Það er ótrúlegt að svo veigamikl- ar ákvarðanir um fjárveitingar til Landspítala skuli hafa verið teknar án sérstakrar umræðu og án þess að opinber stefnumótun hafi farið fram. Afleiðingar þessara ákvarð- ana blasa við. Landspítalinn glímir við verstu kreppu í 80 ára sögu sinni og íslenskt heilbrigðiskerfi er að hrapa úr fremstu röð niður í aðra deild. Það mun skaða lífsgæði Íslendinga til langrar framtíðar. Eftir Einar Stefánsson » Framlag til Land- spítalans sem hlut- fall af útgjöldum hins opinbera var 6,3% fyrir áratug en er komið nið- ur í 4,5% árið 2012. Einar Stefánsson Höfundur er prófessor og yfirlæknir við Landspítala. Hvers vegna er Landspítalinn í kreppu? Mynd 1: Þróun opinberra útgjalda eftir málaflokkum Hlutfallsbreyting frá 2001 á verðlagi samneyslu 2012 Heimild: Þjóðhagsreikningar Hagstofu og ársreikningar LSH (án S-lyfja) Heilbrigðismál Menntamál Almannatr og velferðarmál Landspítali 70% 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0% -10% 2001 ‘02 ‘03 ‘04 ‘05 ‘06 ‘07 ‘08 ‘09 ‘10 ‘11 2012 Ríkisframlag til Landspítala (Landspítali án S-lyfja) 2001 2002 2003 2004 2005 2006 % af vergri landsframleiðslu 2,6 2,8 2,9 2,6 2,5 2,4 % af útgjöldum hins opinbera 6,0 6,3 6,3 5,8 6,0 5,7 % af útgj. hins opinb. til heilbrigðismála 32,3 32,3 32,2 30,3 31,2 30,0 % af útgj. hins opinb. til sjúkraþjónustu 61,9 62,5 62,5 90,9 62,8 60,3 Heimild: Þjóðhagsreikningar Hagstofu Íslands og ársreikningar LSH Mynd 2: Þróun heilbrigðisútgjalda hins opinbera frá árinu 2001 Hlutfallsbreyting frá 2001 á verðlagi samneyslu 2012 Heimild: Þjóðhagsreikningar Hagstofu og ársreikningar LSH (*Landspítali án S-lyfja) Útgjöld hins opinbera til Landspítala* Heilbrigðisútgjöld hins opinbera án Landspítala Almenn sjúkrahúsþjónusta án Landspítala 40% 30% 20% 10% 0% -10% 2001 ‘02 ‘03 ‘04 ‘05 ‘06 ‘07 ‘08 ‘09 ‘10 ‘11 2012

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.